23. september 2025

Barnaréttindavaktin fundaði með talsmönnum barna á Alþingi

Föstudaginn 19. september hittust fulltrúar félagasamtakanna í Barnaréttindavaktinni og talsmenn barna á Alþingi á morgunfundi í Smiðju. Á fundinn mættu talsmenn barna úr fjórum þingflokkum; Halla Hrund Logadóttir kom fyrir hönd Framsóknar, Guðmundur Ari Sigurjónsson fyrir Samfylkinguna, Bryndís Haraldsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn og María Rut Kristinsdóttir fyrir Viðreisn. 

Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri Innanlandsteymis UNICEF á Íslandi, stýrði fundinum. Hjördís Freyja Kjartansdóttir, ungmenni í stjórn UNICEF á Íslandi, hélt gott erindi þar sem hún brýndi fyrir talsmönnum barna mikilvægi þess að börn taki þátt í ákvarðanatöku í málum sem þau varðar, ásamt því að minna öll á hvað börn eru stór og fjölbreyttur hópur.

Tótla I. Sæmundsdóttir fór að lokum yfir fjölmörg mál sem talsmenn barna hafa náð í gegn á Alþingi, ásamt þeim málum sem varða börn og eru á dagskrá í vetur. Fundurinn endaði á góðu samtali um samstarfið milli talsmanna barna og Barnaréttindavaktarinnar og þau verkefni sem framundan eru á þessum þingvetri. 

Við þökkum öllum þeim sem komu á fundinn kærlega fyrir þátttökuna og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Fleiri
fréttir

16. júní 2026

Nær helmingur barna heims býr við minnst þrjár samverkandi loftslagshættur
Lesa meira

11. júní 2026

Lamine Yamal nýr velgjörðarsendiherra UNICEF
Lesa meira

10. júní 2026

Fimm piltar breyttu lokaverkefninu í ótrúlegan fjáröflunarleik fyrir UNICEF 
Lesa meira
Fara í fréttasafn