13. febrúar 2026

Síðasta ár var blóðugt fyrir börn í Úkraínu

Fleiri börn létust eða særðust í árásum í fyrra en árið áður – Harðar árásir á orkuinnviði tekið sinn toll.

Hin fjögurra ára gamla Alika ornar sér við eldinn í Kíev.

92 börn voru drepin í árásum Rússa í Úkraínu á síðasta ári og 652 börn særðust. Er þetta aukning um 11 prósent milli ára nú þegar brátt verða liðin fjögur ár frá innrásinni.

Eins og fram hefur komið hertu Rússar árásir á orkuinnviði Úkraínu á síðari hluta árs með tilheyrandi rafmagns- og orkuleysi sem hefur áhrif á vatn, hita, skólastarfsemi, heilbrigðisstofnanir og neyðir börn til að sofa í kulda og myrkri í þeirri miklu kuldatíð sem ríkt hefur í vetur.

UNICEF, í samstarfi við stjórnvöld og samstarfsaðila, veittu rúmlega 7 milljónum einstaklinga, þar af 2,5 milljónum barna, mannúðaraðstoð á síðasta ári. 4,3 milljónir fengu aðgengi að hreinu vatni og hreinlætis- og salernisþjónustu, 425 þúsund fengu aðgang að heilbrigðisþjónustu, 547 þúsund aðgengi að sálfræði og sálfélagslegri aðstoð. 311 þúsund börn fengu bæði formlega og óformlega menntun við hinar ýmsu aðstæður og 217 þúsund manns fengu beina fjárhagsaðstoð. Frá þessu greinir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, í ársuppgjöri sínu vegna neyðarinnar í Úkraínu í dag.

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Úkraínu.


Fleiri
fréttir

13. mars 2026

Minnst 8 nemendur látnir eftir árás á skóla í Súdan
Lesa meira

09. mars 2026

83 börn drepin í Líbanon í liðinni viku: „Þetta eru skelfilegar tölur“
Lesa meira

06. mars 2026

Talið að 180 börn hafi verið drepin í árásum á Íran
Lesa meira
Fara í fréttasafn