{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/250-thusund-born-i-haettu-a-bradri-vannaeringu-a-haiti","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/250-thusund-born-i-haettu-a-bradri-vannaeringu-a-haiti","uid":"250-thusund-born-i-haettu-a-bradri-vannaeringu-a-haiti","type":"post","prismicId":"arDqaBEAAC4AteDG","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-09-21T08:30:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":{"url":null},"smaller":{"url":null}}},"excerpt":{"text":"UNICEF, FAO og WFP kalla eftir tafarlausum aðgerðum til að koma í veg fyrir frekari versnun vannæringar meðal barna á Haítí. Áætlað er að ástandið verði alvarlegt í Cité Soleil og Cabaret á tímabilinu desember 2026 til maí 2027."},"page_title":{"text":"250.000 börn í hættu á bráðri vannæringu á Haítí"},"image_text":{"text":"Ung stúlka með móður sinni á næringarmiðstöð UNICEF á Haítí. Mynd: UNICEF/UNI1011582/Gallardo "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"c3cdaa2e-c354-5fad-9e68-f744014cacfa","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Áætlað er að 253.725 börn á aldrinum 6–59 mánaða á Haítí muni glíma við bráða vannæringu á tímabilinu júní 2026 til maí 2027. Þar af eru tæplega 94.000 börn í hættu á alvarlegri bráðavannæringu, á sama tíma og áframhaldandi ofbeldisverk vopnaðra hópa gera ástandið enn verra fyrir börn og almenning.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri sameiginlegri yfirlýsingu og greiningu UNICEF, Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO).

Alvarleg bráð vannæring getur orðið lífshættuleg ef börn fá ekki meðferð tímanlega. Þá er gert ráð fyrir að 159.852 börn muni glíma við miðlungsalvarlega bráða vannæringu og að 25.750 barnshafandi konur og konur með barn á brjósti þurfi á næringaraðstoð að halda.

Greiningin, sem heilbrigðis- og mannfjöldaráðuneyti Haítí (MSPP) leiddi með stuðningi UNICEF, FAO, WFP, WHO og samstarfsaðila á sviði næringarmála, sýnir hvar þörfin fyrir frekari aðstoð er brýnust. Gert er ráð fyrir að ástandið versni og að eftirspurn eftir meðferð aukist í fleiri samfélögum, sem muni setja enn meira álag á þjónustu sem margar fjölskyldur eiga nú þegar erfitt með að nálgast.

Aukið ofbeldi vopnaðra hópa veldur víðtækum fólksflótta og raskar aðgengi barna að mat, heilbrigðisþjónustu vegna vannæringar og annarri nauðsynlegri aðstoð. Fjölskyldur halda áfram að flýja heimili sín árið 2026 og voru um 1,47 milljónir manna á vergangi innan Haítí um miðjan maí 2026.

Á tímabilinu desember 2026 til maí 2027 er gert ráð fyrir að 29 af 140 sveitarfélögum fari í 3. stig IPC-flokkunarkerfisins fyrir bráða vannæringu, sem telst alvarlegt ástand. Í Cité Soleil og Cabaret er hins vegar búist við að ástandið nái 4. stigi, sem telst mjög alvarlegt.

Fjórða stigið er næsthæsta flokkunin á IPC-kvarðanum fyrir bráða vannæringu og gefur til kynna mjög háa tíðni bráðrar vannæringar og aukna hættu á veikindum og dauða meðal barna sem verða fyrir áhrifum.

„Á bak við þessar tölur eru börn sem geta fengið lífi sínu breytt þegar þau fá rétta aðstoð á réttum tíma,“ segir Geeta Narayan, fulltrúi UNICEF á Haítí, í sameiginlegri yfirlýsingu stofnananna. „IPC-greiningin hjálpar okkur að sjá hvar þörfin er mest. Nú verðum við að nýta þessar upplýsingar til að ná fyrr til barna, koma í veg fyrir vannæringu og tryggja að ekkert barn verði án þeirrar aðstoðar sem það þarf.“

„Til að koma í veg fyrir bráða vannæringu þurfum við ekki aðeins að bregðast við afleiðingunum heldur einnig undirliggjandi orsökum,“ segir Pierre Vauthier, fulltrúi FAO á Haítí. „Fjölskyldur verða að geta nálgast fjölbreyttan og næringarríkan mat og framleitt hann sjálfar. Með því að vernda lífsviðurværi bænda og efla matvælaframleiðslu á staðnum getum við hjálpað viðkvæmum fjölskyldum að mæta næringarþörfum sínum, takast á við áföll í framtíðinni og dregið úr þörf þeirra fyrir mannúðaraðstoð.“

„Hraðversnandi ástand er skýr áminning um að fjárfesting í forvörnum gegn vannæringu er ekki kostnaður heldur stefnumótandi fjárfesting í framtíð Haítí,“ segir Lauren Landis, fulltrúi WFP á Haítí og landsstjóri samtakanna. „Hver einasta króna sem fjárfest er í dag í næringu, heilbrigðisþjónustu, skólamáltíðum og stuðningi við viðkvæmar fjölskyldur hjálpar til við að koma í veg fyrir mun meiri mannlegan, félagslegan og efnahagslegan kostnað á morgun. Barn sem fær næga og góða næringu er líklegra til að standa sig vel í skóla, halda góðri heilsu og taka virkan þátt í uppbyggingu samfélags síns.“

Þar sem gert er ráð fyrir að ástandið versni á tímabilinu desember 2026 til maí 2027 hvetja UNICEF, FAO og WFP stjórnvöld á Haítí, styrkjendur sína, samtök, alþjóðastofnanir og alla samstarfsaðila sem starfa á sviði heilbrigðis, næringarmála, vatns, hreinlætis og matvælaöryggis til tafarlausra aðgerða til að auka meðferð og koma í veg fyrir að fleiri börn falli fyrir vannæringu. Meðal annars með því að:

Auka forvarnir og meðferð, með sérstakri áherslu á sveitarfélög þar sem ástandi er spáð að muni hraka. Tryggja þarf skimun í nærumhverfinu, tímanlega meðferð, aðgengi að meðferðarfæði og næringarstuðning fyrir barnshafandi konur og konur með barn á brjósti.

Styðja við næringarríkt fæði og nauðsynlega grunnþjónustu með því að samþætta næringarúrræði fyrir mæður og börn við aðgang að öruggu vatni, salernisaðstöðu, heilbrigðisþjónustu og aðgerðir til að vernda matvælaframleiðslu og lífsviðurværi fjölskyldna.

Tryggja öruggt aðgengi að þjónustu og tafarlausa, sveigjanlega fjármögnun svo fjölskyldur komist í þá þjónustu sem þær þurfa og stjórnvöld og samstarfsaðilar geti komið nauðsynlegum birgðum á áfangastað, undirbúið sig fyrir aukna þörf og viðhaldið neyðarviðbrögðum.

Með því að bregðast við núna er hægt að koma í veg fyrir að fleiri börn verði alvarlega vannærð og bjarga mannslífum.

"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"arDqaBEAAC4AteDG"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}