{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/70-thusund-born-a-vergangi","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/70-thusund-born-a-vergangi","uid":"70-thusund-born-a-vergangi","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L2K","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2019-10-14T16:55:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NTRlNDgyNDktMWJjZi00ZjliLWExNGMtYjhkOTk5ODhkODNk_uni214259.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C148%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NTRlNDgyNDktMWJjZi00ZjliLWExNGMtYjhkOTk5ODhkODNk_uni214259.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NTRlNDgyNDktMWJjZi00ZjliLWExNGMtYjhkOTk5ODhkODNk_uni214259.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"UNICEF áætlar að 70 þúsund börn séu nú á vergangi síðan innrás Tyrkja í norðurhluta Sýrlands hófst í síðustu viku. Þjóðarleiðtogar hafa keppst við að fordæma hernaðaraðgerðir Tyrkja sem beinast gegn Kúrdum fyrst og fremst."},"page_title":{"text":"70 þúsund börn á vergangi vegna árása Tyrkja í Sýrlandi"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"31f39102-8e47-5fe4-8f46-ec08da0f9f16","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NTRlNDgyNDktMWJjZi00ZjliLWExNGMtYjhkOTk5ODhkODNk_uni214259.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"888aa45e-270d-5265-bd72-9d38922d3c21","primary":{"text":{"html":"

14. október 2019 UNICEF áætlar að 70 þúsund börn séu nú á vergangi síðan innrás Tyrkja í norðurhluta Sýrlands hófst í síðustu viku. Þjóðarleiðtogar hafa keppst við að fordæma hernaðaraðgerðir Tyrkja sem beinast gegn Kúrdum fyrst og fremst.

„UNICEF hefur staðfest að fjögur börn hafi látið lífið í árásum og níu til viðbótar slasast í norðausturhluta Sýrlands. Sjö börn hafa samkvæmt fregnum látist í Tyrklandi,“ segir í yfirlýsingu frá framkvæmdastjóra UNICEF, Henriettu Fore.

Árásir hafa verið gerðar á þrjár heilbrigðisstofnanir, sjúkrabíl og einn skóla síðan árásir hófust og líkt og greint var frá hér fyrir helgi var A-louk-vatnsdælustöðin, sem sér 400 þúsund manns í Al-Hasakeh fyrir hreinu vatni, eyðilögð. Fore segir að UNICEF hafi þungar áhyggjur af því að minnsta kosti 170 þúsund börn muni þurfa á neyðaraðstoð að halda vegna átakanna ef fram heldur sem horfir.

Þrátt fyrir yfirstandandi skálmöld, ofbeldis- og óhæfuverk sem fregnir berast nú af daglega er UNICEF á svæðinu að vinna með samstarfsaðilum við að veita nauðsynlega aðstoð.

Þetta felur í sér:

Neyðaraðstoð fyrir fjölskyldur sem koma í neyðarskýli sem komið hefur verið upp.

Útvega 95 þúsund lítra af vatni og 12 vatnstanka til að takast á við vatnsskort í neyðarbúðum í Al-Hasakeh þar sem vatnsdælustöðin skemmdist.

Skipuleggja viðgerðarvinnu á A-louk-vatnsdælustöðinni.

Veita heilbrigðisþjónustu, skima fyrir næringarvandkvæðum barna og kvenna.

Gera viðeigandi ráðstafanir fyrir þrettán börn sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar.

Þessu til viðbótar heldur UNICEF áfram að flytja hreint vatn, heilbrigðis- og næringarþjónustu í Al-Hol búðunum þar sem nærri 64 þúsund börn og konur hafast við. UNICEF ítrekar fyrri ákall sitt um að allir aðilar geri allt sem í þeirra valdi stendur til að verja börnin, saklaus fórnarlömb þessara glórulausu átaka.

„Stríðandi fylkingar í norðausturhluta Sýrlands sem og annars staðar verða að vernda innviði, helstu þætti samfélaga, sem börnum eru nauðsynlegir og ekki nota þá í hernaðarlegum tilgangi,“ segir Fore.

Þú getur lagt starfi UNICEF í norðausturhluta Sýrlands lið. Stuðningur þinn skiptir máli og hefur áhrif.

Sendu sms-ið STOPP í númerið 1900 (1.900 kr.)

Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950

Nánari upplýsingar um hvernig þú getur hjálpað börnum í Sýrlandi hér.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L2K"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}