{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/8-thusund-born-thurfa-mannudaradstod-eftir-jardskjalfta-i-panama","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/8-thusund-born-thurfa-mannudaradstod-eftir-jardskjalfta-i-panama","uid":"8-thusund-born-thurfa-mannudaradstod-eftir-jardskjalfta-i-panama","type":"post","prismicId":"as4IuxEAACoAvcdO","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-10-13T10:33:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/xXC7m6QfBj4esTJt_UNI1018600.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C155%2C1200%2C568&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/xXC7m6QfBj4esTJt_UNI1018600.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=40%2C0%2C1143%2C801&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/xXC7m6QfBj4esTJt_UNI1018600.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=456%2C0%2C501%2C801&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"UNICEF og stjórnvöld í Panama bregðast við með neyðargögnum og aðstoð á sviði heilbrigðisþjónustu, vatns og hreinlætis, menntunar og barnaverndar."},"page_title":{"text":"Átta þúsund börn þurfa mannúðaraðstoð eftir jarðskjálfa í Panama"},"image_text":{"text":"Miklar skemmdir urðu á fjölmörgum byggingum á jarðskjálftasvæðunum. Mynd; UNICEF/UNI1018600/ "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"b7cda997-6716-5523-a31e-02424a6cefd5","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, áætlar að 38.000 manns, þar af 8.300 börn, þurfi á mannúðaraðstoð að halda eftir jarðskjálfta sem reið yfir Panama 9. október síðastliðinn.

Jarðskjálftinn mældist 7,5 að stærð og olli skemmdum á íbúðarhúsum, skólum, heilbrigðisstofnunum og mikilvægum innviðum fyrir vatnsveitu og samgöngur. Mat á umfangi tjónsins stendur enn yfir, en verulegar skemmdir hafa verið staðfestar í héruðunum Veraguas, Coclé, Herrera og Los Santos.

„Þremur dögum eftir jarðskjálftann búa börn og fjölskyldur þeirra enn við ótta og vanlíðan á meðan eftirskjálftar halda áfram. Þúsundir barna á verst stöddu svæðunum hafa misst aðgang að nauðsynlegri þjónustu, þar á meðal hreinu vatni og menntun,“ segir Olga Isaza, fulltrúi UNICEF í Panama. „UNICEF vinnur náið með stjórnvöldum í Panama og samstarfsaðilum að því að styðja við börn og fjölskyldur þeirra á næstu vikum.“

Aðgengi barna að menntun hefur raskast. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá stjórnvöldum hafa 656 menntastofnanir orðið fyrir skemmdum víðs vegar um landið. Skólahald var fellt niður 12. október á meðan öryggi skólabygginga er metið. Stjórnvöld hafa jafnframt tilkynnt um skemmdir á að minnsta kosti 25 heilbrigðisstofnunum.

UNICEF veitir aðstoð á vettvangi

Í samstarfi við heilbrigðisráðuneyti Panama hefur UNICEF komið upp 72 fermetra tjöldum til að tryggja áframhaldandi heilbrigðisþjónustu á svæðum þar sem heilbrigðisstofnanir hafa orðið fyrir skemmdum. UNICEF hefur lagt heilbrigðisyfirvöldum til 16 tjöld og heldur áfram að meta frekari þarfir til að tryggja að börn og ungmenni hafi aðgang að nauðsynlegri þjónustu.

UNICEF metur jafnframt aðgengi að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, skemmdir á skólum og þarfir í menntamálum. Samtökin fylgjast einnig með þeirri hættu sem börnum kann að stafa af því að þurfa að yfirgefa heimili sín, missa aðgang að nauðsynlegri þjónustu eða glíma við sálræna vanlíðan í kjölfar hamfaranna.

UNICEF áætlar að 2,5 milljónir dala þurfi til að fjármagna lífsbjargandi neyðaraðstoð og fyrstu skrefin í endurreisn fyrir börn og fjölskyldur sem urðu fyrir áhrifum jarðskjálftans.

Í samvinnu við stjórnvöld í Panama og samstarfsaðila í mannúðarstarfi hefur UNICEF eflt neyðarviðbrögð, sent viðbótarstarfsfólk á vettvang og virkjað flutning og dreifingu á mikilvægum neyðarbirgðum. Markmiðið er að tryggja að þarfir barna séu í forgrunni bæði í neyðaraðstoðinni og við endurreisn samfélaganna í kjölfar hamfaranna.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"as4IuxEAACoAvcdO"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}