{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/adstaedur-barna-i-irak-fara-versnandi","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/adstaedur-barna-i-irak-fara-versnandi","uid":"adstaedur-barna-i-irak-fara-versnandi","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1Nyy","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2007-04-18T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Vegna afleiðinga átaka í Írak hefur UNICEF beðið ríkisstjórnir og alþjóðasamfélagið um að auka stuðning sinn við börn landsins, sem eru sífelt í hættu á að fá sjúkdóma og verða vannærð. Ástandið hefur farið vernsandi á síðustu 12 mánuðum í Írak og nágrannalöndum þess og börn eru fórnarlömb aukinna átaka og vernsandi heilsugæslu og menntakerfis."},"page_title":{"text":"Aðstæður barna í Írak fara versnandi"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"e6fb678f-95db-5832-ae77-f2059c526252","primary":{"text":{"html":"
Vegna afleiðinga átaka í Írak hefur UNICEF beðið ríkisstjórnir og alþjóðasamfélagið um að auka stuðning sinn við börn landsins, sem eru sífelt í hættu á að fá sjúkdóma og verða vannærð. Ástandið hefur farið vernsandi á síðustu 12 mánuðum í Írak og nágrannalöndum þess og börn eru fórnarlömb aukinna átaka og vernsandi heilsugæslu og menntakerfis.

„Bregðast þarf skjótt við mannúðarástandinu,“ sagði Daniel Toole, yfirmaður neyðaraðgerða UNICEF, og bætti við að það væri á ábyrgð alþjóðasamfélagsins að tryggja stuðning við Írak og nágrannalanda til að skapa betri aðstæður fyrir írösk börn og fjölskyldur þeirra.

„Ástandið hefur versnað fyrir írösk börn - bæði innan Íraks og í nágrannalöndum þess þar sem flóttamenn hafast við. Á síðasta ári breyttust aðstæður mikið og í dag hafa nærri tvær milljónir manna flúið heimili sín í Írak og eru því á flótta í eigin landi,“ sagði Toole á ráðstefnu í Genf með fulltrúum ríkisstjórna þar sem rætt var um mannúðarástandið í Írak. „Aðrar tvær milljónir, þar sem helmingurinn eru börn, sækjast eftir hæli í nágrannalöndunum,“ sagði Toole.

Ástandið hefur farið versnandi Fyrir ári síðan var álitið að ástandið í Írak væri á viðkvæmu stigi en þó stöðugt, en í dag hefur ofbeldisverkum fjölgað svo mikið að það hindrar börn og ungmenni til að sækja skóla. Aðgangur að hreinu vatni og annarra grundvallarþjónustu heldur áfram að versna vegna óöryggisins, vöntun á sérfræðingum og hæfu starfsfólki og veikburða innviða samfélagsins. Samanlagt hafa þessir þættir skapað slæmar aðstæður þar sem börn eru í hættu á að verða vannærð. Enn fremur vex sú hætta á að sjúkdómar breiðist út á hverjum degi. Aðgangur að hreinu vatni hefur náð lágpunkti og niðurgangur er algengur meðal barna á sumarmánuðunum.

Hundruðir þúsunda fjölskyldna hafa flúið versnandi ástand til Sýrlands og Jórdaníu, þar sem aukin eftirspurn eftir heilsugæslu og menntun er að skapa mikið álag á kerfi þessara landa.

Aðgerðir UNICEF
UNICEF og samstarfsaðilar í Írak hafa veitt aðgang að hreinu vatni og þjónustu á sviðið heilsugæslu og næringar, þrátt fyrir að öryggi starfsfólksins sé ógnað daglega . Til að undirbúa sig fyrir næstu mánuði ætlar UNICEF að verja 2 milljónum dollara til að bæta ástandið í Írak og 700 þúsund dollurum verður veitt til flóttamanna í Sýrlandi.

Samt sem áður er þörfin á grundvallarþjónustu mun meiri en framboðið. Án stuðnings við stjórnvöld í Írak og samfélagsins mun ástandið í landinu versna. UNICEF þarf 20 milljónir króna til að mæta brýnustu þörfinni í Írak, en hefur aðeins fengið 11% þess fjármagns í dag.

Tími aðgerða er núna
„Tími aðgerða er núna,“ sagði Daniel Toole og bætti við að mikilvægt væri að koma á öruggu ástandi til að hjálparstarf gæti borið þann ávöxt sem lagt er í það. „Við getum ekki tryggt heilsugæslu ef foreldrar eru hræddir við að fara með börnin sín á heilsugæslustöðvarnar; við getum ekki vonast eftir fullum skólastofum og þátttöku nemenda ef fjölskyldur eru hræddar við að senda börn sín í skóla; og við getum ekki vonast eftir að heilsa og næringarástand íbúa muni batna ef þeir hætta lífi sínu bara við það eitt að kaupa í matinn.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1Nyy"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}