{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/adstaedur-barna-i-irak","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/adstaedur-barna-i-irak","uid":"adstaedur-barna-i-irak","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N0m","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2007-03-29T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Ný rannsókn á aðstæðum barna í Írak dregur upp nokkuð dökka mynd af lífi barna í landinu. Írösk börn þurfa að horfast í augu við aukið óöryggi í landinu þar sem jafnvel skólaganga getur falið í sér hættur. Fjöldi einstæðra mæðra hefur aukist vegna ofbeldisins og sömuleiðis fjöldi flóttafólks. Fyrstu niðurstöður rannsóknar yfirvalda í Írak og UNICEF benda til þess að aðstæður barna í landinu eru ekki góðar."},"page_title":{"text":"Aðstæður barna í Írak"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"76f6504b-86cc-5bca-8636-efae3e73bf35","primary":{"text":{"html":"
Ný rannsókn á aðstæðum barna í Írak dregur upp nokkuð dökka mynd af lífi barna í landinu. Írösk börn þurfa að horfast í augu við aukið óöryggi í landinu þar sem jafnvel skólaganga getur falið í sér hættur. Fjöldi einstæðra mæðra hefur aukist vegna ofbeldisins og sömuleiðis fjöldi flóttafólks. Fyrstu niðurstöður rannsóknar yfirvalda í Írak og UNICEF benda til þess að aðstæður barna í landinu eru ekki góðar.

Niðurstöðurnar benda til að: - líkamlegur þroski í einu af hverjum fimm börnum undir fimm ára aldri í Írak er heftur, þ.e.a.s. að börn séu smávaxin miðað við aldur, en það bendir til að þau hafi búið við vannæringu í langan tíma.
- Aðgangur að heilsugæslu hefur minnkað en það kemur m.a. í ljós vegna færri bólusetningaherferða í landinu.

Sá árangur sem náðst hefur þarf að skoða gaumgæfilega:
- Allt í allt var skólasókn í grunnskóla 83% á árunum 2005-2006. EN þeir nemendur sem kláruðu grunnskóla voru aðeins 30% á landsvísu og 21% á landsbyggðinni. Skólasókn stúlkna á gagnfræðiskólastiginu er enn mjög lág þar sem aðeins 44 stúlkur sækja nám á móti hverjum 100 strákum á landsbyggðinni.

- Brjóstagjöf jókst um helming eða frá 17% árið 2000 til 34% árið 2006. En brjóstagjöf er ein áhrifaríkasta aðferðin til að koma í veg fyrir vannæringu ungabarna. Þetta hlutfall er þó enn heldur lágt og gæti orsakast af því að mæður hafa ekki aðgang að annars konar fæðu fyrir nýfædd börn sín.

Rannsóknin er byggð á tölulegum upplýsingum frá 18 svæðum frá febrúar til júní 2006. Það er ljóst að í fyrsta lagi er um algjörar frumniðurstöður að ræða og enn er verið að lesa í tölurnar til að meta ástandið og draga ályktanir. Í öðru lagi er einungis um að ræða innsýn í líf kvenna og barna á ákveðnu tímabili og er rannsóknin ekki lýsandi fyrir ástandið í landinu í heild sinni, en í Írak hefur ástandið breyst mikið síðastliðið ár.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N0m"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}