{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/alag-a-heilbrigdiskerfi-ogn-vid-kornaborn-a-timum-covid","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/alag-a-heilbrigdiskerfi-ogn-vid-kornaborn-a-timum-covid","uid":"alag-a-heilbrigdiskerfi-ogn-vid-kornaborn-a-timum-covid","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L5i","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2020-05-07T11:45:29+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZmYzMzU0NzMtYzFkOS00YmJmLTg1MGMtNTUzZDBjNDllMDU2_uni325619.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C148%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZmYzMzU0NzMtYzFkOS00YmJmLTg1MGMtNTUzZDBjNDllMDU2_uni325619.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZmYzMzU0NzMtYzFkOS00YmJmLTg1MGMtNTUzZDBjNDllMDU2_uni325619.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Áætlað er að 116 milljónir barna komi í heiminn í skugga COVID-19 heimsfaraldursins segir UNICEF sem beinir nú kastljósinu að barnshafandi konum og nýburum í tilefni af Mæðradeginum þann 10. maí næstkomandi."},"page_title":{"text":"Álag á heilbrigðiskerfi ógn við kornabörn og óléttar konur í heimsfaraldri COVID-19"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"5a5f2622-0d26-5e52-a773-c5e6cff749d4","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZmYzMzU0NzMtYzFkOS00YmJmLTg1MGMtNTUzZDBjNDllMDU2_uni325619.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"b57a5e47-7e12-5c15-92b0-c4457fd495c9","primary":{"text":{"html":"
7. maí 2020   Áætlað er að 116 milljónir barna komi í heiminn í skugga COVID-19 heimsfaraldursins segir UNICEF sem beinir nú kastljósinu að barnshafandi konum og nýburum í tilefni af Mæðradeginum þann 10. maí næstkomandi.  UNICEF óttast að gríðarlegt álag á heilsbrigðisstofnanir og heilsugæslur víðs vegar um heiminn vegna heimsfaraldursins ógni öryggi barnshafandi kvenna og nýfæddra barna. Þá séu dæmi um skort á heilbrigðisstarfsfólki, þar á meðal ljósmæðrum, sem sent hafi verið í önnur verkefni við að annast COVID-19 sjúklinga.

„Milljónir mæðra um allan heim hófu vegferð sína að því að verða foreldrar í veröld sem var. Nú þurfa þær að búa sig undir að fæða börn inn í veröldina eins og hún er orðin. Þar sem verðandi mæður veigra sér við því að leita til heilbrigðiskerfisins af ótta við smit, þar sem verðandi mæður fara á mis við nauðsynlega bráðaþjónustu af því að álagið á heilbrigðiskerfið er svo mikið og lokanir strangar,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF. „Það er erfitt að ímynda sér hversu mikið kórónaveirufaraldurinn hefur endurmótað móðurhlutverkið.“

Meira en 128 þjóðir halda sérstaklega upp á Mæðradaginn en samkvæmt tilkynningu UNICEF eru þetta þjóðirnar sem áætlað er að flest börn hafi og muni fæðast síðan COVID-19 varð heimsfaraldur í byrjun mars:

Áætlað er að rúmlega 20 milljónir barna fæðist í Indlandi, 13,5 milljónir í Kína, 6,4 milljónir í Nígeríu, 5 milljónir í Pakistan og 4 milljónir í Indónesíu. Flestar þessara þjóða voru fyrir faraldurinn með háa tíðni nýburadauða og óttast er hún kunni nú að hækka við vegna hans. En meira að segja ríkari þjóðir fara ekki varhluta af þessu ástandi. Í Bandaríkjunum er áætlað að 3,3 milljónir barna fæðist á tímabilinu 11. mars til 16. desember og í New York eru yfirvöld að leita leiða til að útbúa fæðingamiðstöðvar þar sem mörgum konum hugnast ekki að koma á sjúkrahús í ástandinu.

UNICEF segir að þó engar vísbendingar séu um að barnshafandi konum stafi meiri hætta af COVID-19 en öðrum þá verði þjóðir samt sem áður að tryggja aðgengi þeirra að mæðravernd, fæðingaþjónustu og ungbarnavernd.

Fyrir hönd mæðra um allan heim krefur UNICEF stjórnvöld úrbóta með því að tryggja allt ofangreint og meira til eins og að heilbrigðisstarfsfólk hafi aðgang að hlífðarfatnaði, COVID-prófunum og sóttvörnum sé fylgt í einu og öllu.

Og þrátt fyrir að enn sé ekki vitað hvort vírusinn smitist milli móður og barns á meðgöngu eða fæðingu þá mælir UNICEF engu að síður með því að barnshafandi konur og nýbakaðar mæður fylgi dæmigerðum smitvarnarráðstöfunum. Eru þær þó hvattar til að halda áfram að gefa börnum sínum brjóst sem fyrr þar sem veiran hefur ekki fundist í brjóstamjólk.

Fyrir COVID-19 faraldurinn var áætlað að 2,8 milljónir barnshafandi kvenna og nýbura létust á ári hverju, 1 á 11 sekúndna fresti. Flest þessara dauðsfalla var af orsökum sem auðvelt er að koma í veg fyrir.

„Þessi Mæðradagur er sérstaklega átakanlegur fyrir marga þar sem svo margar fjölskyldur hafa ekki getað hist svo lengi vegna kórónaveirunnar,“ segir Fore. „En þetta er líka tími samstöðu. Við getum hjálpað við að bjarga lífum með því að tryggja að hver einasta barnshafandi kona fái þann stuðning og þjónustu sem hún þarf til að fæða barn í öryggi á komandi mánuðum.“

UNICEF þarf á þínum stuðningi að halda til að ná til, vernda og aðstoða viðkvæman hóp barna og fjölskyldur þeirra í erfiðum aðstæðum í heimsfaraldri Covid-19 kórónaveirunnar. Þú getur lagt þitt af mörkum. Sendu sms-ið BARN í númerið 1900 (1.900 kr.).

Þú getur einnig styrkt söfnun UNICEF á Íslandi með framlagi að eigin vali hér.

Í tilefni Mæðradagsins þann 10. maí næstkomandi býður UNICEF á Íslandi upp á sanna Mæðradagsgjöf. Með Mæðradagsgjöf UNICEF ert þú að gefa börnum sem þjást af alvarlegri vannæringu sanna lífsbjörg.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"926e4a7f-cbe9-584c-a6f6-8616a6c6ac6a","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/YTkwNjg5NTgtMGVjMC00OGVhLWE1MzUtMTM4ZDZmYjkxMmY0_uni321984.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1025&w=1536&h=1025","thumbnails":{"featuresize":null}}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L5i"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}