{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/allir-styrktarsamningar-vid-unicef-a-islandi-heidradir","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/allir-styrktarsamningar-vid-unicef-a-islandi-heidradir","uid":"allir-styrktarsamningar-vid-unicef-a-islandi-heidradir","type":"post","prismicId":"X3S-xxIAACQA1Npa","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2009-07-24T14:20:13+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Vegna efnahagsþrenginganna á Íslandi og tengdrar umræðu vill UNICEF á Íslandi m.a. koma á framfæri að allir styrktarsamningar sem fyrirtæki, sjóðir og einstaklingar hafa gert við UNICEF hafa verið heiðraðir og að engir fjármunir UNICEF á Íslandi töpuðust við fall bankanna á haustdögum 2008."},"page_title":{"text":"Allir styrktarsamningar við UNICEF á Íslandi heiðraðir"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"e0a682f0-6b99-574e-9c1c-5392e4aba8ad","primary":{"text":{"html":"<p>Vegna efnahagsþrenginga og tengdrar umræðu vill UNICEF á Íslandi koma á framfæri að allir styrktarsamningar sem fyrirtæki, sjóðir og einstaklingar hafa gert við UNICEF, allt frá stofnun samtakanna hérlendis, hafa verið heiðraðir. UNICEF á enga óuppgerða kröfu í þrotabú íslenskra fyrirtækja eða einstaklinga. Jafnframt hefur verið staðið við allar skuldbindingar gagnvart þróunarverkefnum í þágu barna þrátt fyrir gengislækkun íslensku krónunnar og erfiðar ytri aðstæður. Einnig má taka fram að engir fjármunir UNICEF á Íslandi töpuðust við fall bankanna á haustdögum 2008.</p><p>Starf UNICEF á Íslandi stendur vel og viljum við koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu aðila sem styrkja starfið.  Íslenskir heimsforeldrar UNICEF hafa aldrei verið fleiri en í júlímánuði 2009 en heimsforeldrar styðja UNICEF með mánaðarlegum framlögum og eru öflugasta stuðningsnet samtakanna. Þá hefur UNICEF átt í ánægjulegu samstarfi við ýmis fyrirtæki þrátt fyrir dökkar horfur í efnahagsmálum. Þessi viðbrögð gefa okkur góð fyrirheit um að Íslendingar muni ótrauðir styðja áfram við börn sem búa við sára neyð víða í heiminum.</p><p><strong>Börn bera enga ábyrgð</strong>Börn þessa heims bera ekki ábyrgð á hinni alþjóðlegu fjármálakreppu. Þau eru einungis fórnarlömb hennar. Viðbúið er að framlög til þróunarsamvinnu dragist saman á alþjóðlegum grundvelli á komandi misserum. Í því ljósi er enn mikilvægara en áður að standa vörð um réttindi og hagsmuni barna. Með liðsstyrk stuðningsaðila okkar mun mun UNICEF vera þar í fararbroddi sem fyrr.</p>"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S-xxIAACQA1Npa"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}