{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/allt-gert-til-ad-koma-i-veg-fyrir-maenusottarfaraldur-i-nigeriu","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/allt-gert-til-ad-koma-i-veg-fyrir-maenusottarfaraldur-i-nigeriu","uid":"allt-gert-til-ad-koma-i-veg-fyrir-maenusottarfaraldur-i-nigeriu","type":"post","prismicId":"X3S8NRIAACMA1Mwj","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2016-11-22T11:42:43+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"■ UNICEF og samstarfsaðilar ráðast í víðtæka bólusetningarherferð: 41 milljón barna bólusett ■ Yfir 12 milljónir hafa safnast í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi ■ Fleiri en 131.000 börn meðhöndluð gegn vannæringu"},"page_title":{"text":"Allt gert til að koma í veg fyrir mænusóttarfaraldur í Nígeríu"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"77dbac09-323a-57aa-addb-5970eff255dd","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZmZjOTA0ZWQtYTc2Yi00ZjQ5LTg4MGEtYTdhNzc0MmZhYWIz_un036355.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C5472%2C3648&w=5472&h=3648","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"42aed4ae-f094-53b2-80f5-33e225b01b4f","primary":{"text":{"html":"

Umfangsmikið bólusetningarátak gegn mænusótt stendur nú yfir í Nígeríu eftir að þrjú tilvik af veikinni greindust í norðausturhluta landsins þar sem mörg hundruð þúsund börn eru í lífshættu vegna vannæringar. Yfir 40 milljón börn verða bólusett til að hindra að mænusóttarfaraldur brjótist út, enda hafði ekkert tilfelli komið upp í Afríku í tvö ár og í sjónmáli er að útrýma þessum skæða sjúkdómi á heimsvísu.

Um leið og börnin í Borno-héraði í Nígeríu eru bólusett eru þau skimuð fyrir vannæringu og vísað í meðferð við henni ef þörf krefur. Í gegnum bólusetningarátakið er þannig hægt að ná til barna sem eru vannærð og veita þeim hjálp.

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna vannærðra barna í Nígeríu og nágrannaríkjunum er enn í fullum gangi og hægt er að styrkja hana með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr).
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"bbd6d05d-01b8-50f9-a0d2-c5567a99e681","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"e3ab5313-5dd6-543f-9412-bc392c658d7e","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":null,"thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"e4454503-2367-539e-bd87-ef12b61f1e9e","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"618cfdf1-c3d0-5faf-9515-93fcef34c893","primary":{"text":{"html":"
Yfir 12 milljónir króna hafa safnast í neyðarsöfnuninni hér á landi.

„Mörg þúsund manns hafa stutt söfnunina og það er okkur mjög mikilvægt að finna þennan mikla stuðning. Þetta er ómetanlegt, enda er neyðin á svæðinu gríðarleg og þörf á að stórauka aðgerðir UNICEF. Í húfi eru raunveruleg líf, raunveruleg börn og raunverulegur möguleiki á að koma í veg fyrir að þau láti lífið,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Síðastliðna mánuði hafa 131.349 börn fengið meðferð gegn vannæringu í norðausturhluta Nígeríu, þar sem ástandið er verst. Auk þess hafa börn annars staðar í landinu fengið hjálp, sem og í nágrannaríkjunum.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"9bcdef93-450c-53cb-9525-473d7c562333","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/N2IzMWRiZGQtMDg0Ni00YTliLWI3ZDUtMmIzODlkM2FkMmE3_un036154.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C3264%2C2448&w=3264&h=2448","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"4ebfaed1-6499-58e7-8dd7-63e2af3f9c44","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"5e3feed0-c126-54e9-a495-df86a416af3b","primary":{"text":{"html":"
Mænusóttartilfellin sem upp komu nýverið bætast ofan á einstaklega erfiða stöðu á svæðinu. Sums staðar í Borno-héraði í Nígeríu eru allt að 15% barna alvarlega bráðavannærð.

Þar sem margir flóttamenn eru á ferð yfir landamærin er hætta á að mænusótt breiðist út til nágrannaríkjanna og því mikilvægt að hafa hraðar hendur á til að hemja útbreiðslu veikinnar. Bólusetningarnar fara af þessum sökum einnig fram í Níger, Tsjad, Kamerún og Mið-Afríkulýðveldinu.

„Við gerum allt sem við getum ásamt samstarfsaðilum okkar til að koma í veg fyrir að veikin breiðist út. Umfang viðbragðanna sýnir alvarleika aðstæðnanna,“ segir Bergsteinn Jónsson.

Gríðarlegur árangur hefur náðst í baráttunni gegn mænusótt á heimsvísu og Nígería er eina landið í Afríku þar sem ekki hefur tekist að útrýma sjúkdómnum. Ríki er talið laust við hann þegar engin tilfelli hafa greinst þar í þrjú ár. Í Nígeríu hafði náðst tímamótaárangur og ekki orðið vart við mænusótt í tvö ár þegar tilfellin þrjú komu upp í norðausturhluta landsins. Mikið kappsmál er því að hindra frekari útbreiðslu sjúkdómsins, samhliða því að meðhöndla börn gegn vannæringu.

Hægt er að styrkja neyðarhjálp UNICEF með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr).

Einnig er hægt að styrkja neyðarsöfnunina hér eða með því að leggja inn á neyðarreikninginn: 701-26-102050 (kt. 481203-2950).
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S8NRIAACMA1Mwj"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}