{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/arsfundur-unicef-a-islandi-verdur-manudaginn-19-juni-kl-10-11","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/arsfundur-unicef-a-islandi-verdur-manudaginn-19-juni-kl-10-11","uid":"arsfundur-unicef-a-islandi-verdur-manudaginn-19-juni-kl-10-11","type":"post","prismicId":"X3S8NRIAACMA1MxD","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2017-06-16T11:47:44+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZmQ4ZDlhYTQtNTUyOC00ZDMyLThmMjUtMzk2NzVkMDUzZDA5_capture.png?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C170%2C673%2C319&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZmQ4ZDlhYTQtNTUyOC00ZDMyLThmMjUtMzk2NzVkMDUzZDA5_capture.png?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C94%2C673%2C472&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZmQ4ZDlhYTQtNTUyOC00ZDMyLThmMjUtMzk2NzVkMDUzZDA5_capture.png?auto=compress%2Cformat&rect=130%2C0%2C412%2C659&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Á fundinum kom fram að UNICEF á Íslandi safnaði alls rúmlega 630 milljónum króna árið 2016, sem er hlutfallslega hæsta framlag allra landsnefnda UNICEF. "},"page_title":{"text":"Ársfundur UNICEF á Íslandi var haldinn í dag - Rætt um niðurstöður ársins 2016, barnvæn sveitarfélög og störf UNICEF í Írak."},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"75aa9ae9-988a-5d00-9dbf-2fb6263d3fb4","primary":{"text":{"html":"

19. júní 2017

Ársfundur UNICEF á Íslandi var haldinn fyrr í dag í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands. Þar kom fram að UNICEF á Íslandi safnaði alls rúmlega 630 milljónum króna árið 2016. Líkt og undanfarin ár safnaði íslenska landsnefndin hlutfallslega hæsta framlagi allra landsnefnda. Langstærsti hluti söfnunarfjársins, eða um 80%, kom frá einstaklingum sem láta sig málefni barna varða: Heimsforeldrum UNICEF.

Ársskýrslu UNICEF á Íslandi fyrir árið 2016 má nálgast hér, sem og fyrri ársskýrslur.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"aa3448f6-8bd4-5f1a-96e2-866b8216839d","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MjRmMjY5YmMtZDI2My00OTBlLTgyMTYtMGRjZGM2NWMxZGI2_picture1.png?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C750%2C449&w=750&h=449","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"9449e542-a306-5d0e-b408-45484d028464","primary":{"text":{"html":"

Dagskrá fundarins hófst með því að Guðrún Ögmundsdóttir, formaður stjórnar UNICEF á Íslandi, bauð gesti velkomna.

Þá hélt Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF, tölu og fór yfir starf UNICEF á síðasta ári. Þar kom meðal annars fram að þjónustuver UNICEF var sett á laggirnar snemma á árinu, þar sem þjónustufulltrúar eiga í samskiptum við heimsforeldra og aðra sem láta sig málið varða.

Þá gaf UNICEF út skýrslu í upphafi árs um börn sem líða efnislegan skort á Íslandi, en um hana hefur mikið verið fjallað í opinberri umræðu. Í henni kom fram að um 6,100 börn á aldrinum 1-15 ára líða efnislegan skort hér á landi. Höfundur skýrslunnar er Lovísa Arnardóttir en ritstjóri Sigríður Víðis Jónsdóttir.

Auk þess var tilraunaverkefninu réttindaskólar komið á laggirnar á árinu með góðum árangri, en verkefnið felst í að þátttökuskólar leggja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til grundvallar í öllu sínu starfi.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"2ba11880-40c9-5513-aa77-6e704a616e91","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MzMwNmQwNWItOWQwZS00MTdlLTg0NWYtMzdiZDBhZWIyY2Ex__mg_5728-2.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C5472%2C3648&w=5472&h=3648","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"009b97d0-e8cb-5676-8d70-e1fc6dd2aad9","primary":{"text":{"html":"
Þá sagði Bergsteinn Jónsson frá vel heppnuðum söfnunarátökum ársins 2016. Þar á meðal var herferðin Segjum stopp þar sem safnað var fyrir börn frá Sýrlandi og átakið Ekki horfa  fyrir vannærð börn í Nígeríu. Þá gekk sala sannra gjafa fyrir jólin framar öllum vonum, en landsmenn keyptu sannar gjafir að andvirði rúmlega 24 milljóna króna. Það er um 71% vöxtur frá árinu 2015.

Ungmennaráð UNICEF réðst einnig í átak á árinu sem bar nafnið #30sek þar sem þau vöktu athygli á því að á hálfrar mínútu frest neyðist barn til að leggja á flótta sökum stríðs, fátæktar eða umhverfisáhrifa.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"6ccc577d-6a81-53f1-8570-75d2e3323b2e","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"c9e7bd8f-7275-51c2-8c27-b980a1c641db","primary":{"text":{"html":"
Alfa Aradóttir, deildarstjóri forvarna- og frístundamála Akureyrarbæjar, sagði frá þátttöku bæjarins í verkefninu barnvæn sveitarfélög, sem er samstarfsverkefni UNICEF á Íslandi og umboðsmanns barna. Barnvæn sveitarfélög er innleiðingarlíkan sem styður sveitarfélög í innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og er Akureyri fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að taka þátt í verkefninu.

Samstarfið við Akureyrarbæ hefur gengið vonum framar og standa vonir til að fleiri sveitarfélög bætist í hópinn á næstu misserum.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"d8f8824d-1488-5512-be6a-8c7e542661df","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZGFjZGQxZGMtYzVkOC00ZGM0LTg4NDAtNDI3MGM5MGJlODI5__mg_5739-2.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C5472%2C3648&w=5472&h=3648","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"f4c9c595-6374-5b49-a0c2-0b93ccd2b43a","primary":{"text":{"html":"
Að lokum sagði Gísli Einarsson frá ferð sinni til Íraks, en þangað fór hann á vegum RÚV í samstarfi við UNICEF og kynntist baráttu UNICEF fyrir börn á flótta frá Mósúl. Gísli heimsótti flóttamannabúðir og heyrði sögur barna sem höfðu orðið vitni að atburðum sem ekkert barn ætti að upplifa.

Hann sagði frá starfi UNICEF á svæðinu, meðal annars því að UNICEF heldur úti barnvænum svæðum þar sem börn geta leikið sér, fengið menntun, heilsugæslu og sálfræðilega aðstoð á öruggu svæði.

Á aðalfundi UNICEF á Íslandi, sem haldinn var fyrir ársfundinn, sat Pétur Einarsson sinn seinasta stjórnarfund. Í hans stað tók sæti Erna Kristín Blöndal, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Norrænnar stofnunar um fólksflutninga (NIM). UNICEF á Íslandi þakkar Pétri hjartanlega fyrir vel unnin störf og býður Ernu Kristínu velkomna til starfa.

"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"63edc51c-2424-5e3d-9495-3bfd379600f6","primary":{"text":{"html":""}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S8NRIAACMA1MxD"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}