{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/askorun-um-urbaetur-i-malefnum-barna-send-til-stjornvalda","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/askorun-um-urbaetur-i-malefnum-barna-send-til-stjornvalda","uid":"askorun-um-urbaetur-i-malefnum-barna-send-til-stjornvalda","type":"post","prismicId":"X3S-nRIAACUA1Nb5","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2011-11-24T10:43:38+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Niðurstöður barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna, vegna framkvæmdar Íslands á barnasáttmála SÞ, voru nýverið kynntar á vegum innanríkisráðuneytisins. Sama dag sendu UNICEF á Íslandi, Barnaheill og Mannréttindaskrifstofa Íslands frá sér sameiginlega áskorun til stjórnvalda um úrbætur í málefnum barna hérlendis.  "},"page_title":{"text":"Áskorun um úrbætur í málefnum barna send til stjórnvalda"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"1ad44eb1-4986-5f01-8c4a-08c9a70c2b9a","primary":{"text":{"html":"

Áskorun félaganna byggir á skuggaskýrslu þeirra til barnaréttarnefndarinnar um stöðu barna á Íslandi með tilliti til ákvæða barnasáttmálans. Nefndinni barst skýrslan á meðan á rannsókn hennar stóð og var þriðja skýrsla íslenskra stjórnvalda til nefndarinnar höfð til hliðsjónar. Meginniðurstöður skuggaskýrslunnar voru að þrátt fyrir að hér á landi hafi verið samþykktar ýmsar aðgerðaráætlanir í málefnum barna hefur aðeins lítill hluti þeirra verið framkvæmdur.

Því skora félögin á stjórnvöld að gera opinbera og tímasetta áfangaáætlun þar sem fram kemur hvernig og hvenær aðgerðaráætlun um stöðu barna og ungmenna verði hrundið í framkvæmd. Einnig hvetja félögin stjórnvöld til að taka fullt tillit til nýkynntra athugasemda barnaréttarnefndar.

Bent er á að þótt barnasáttmálinn hafi verði fullgiltur af íslenskum stjórnvöldum árið 1992 hafi ekki enn tekist að binda hann í lög, einkum vegna þess að Ísland uppfylli ekki 37. grein sáttmálans þar sem segir að ungmenni sem brjóti af sér og þurfi að sæta fangelsisrefsingu eigi að vera aðskilin frá fullorðnum föngum.

Ýmis önnur atriði eru tiltekin í áskoruninni sem og í skuggaskýrslunni sem er ítarleg.

Hægt er að nálgast skuggaskýrsluna hér og áskorunina hér.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S-nRIAACUA1Nb5"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}