{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/atak-um-brjostagjoef-i-irak","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/atak-um-brjostagjoef-i-irak","uid":"atak-um-brjostagjoef-i-irak","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1Ny8","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2007-08-13T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Sumarið í Írak er heitt, Celsíusgráðurnar nálgast 50 og það gæti þýtt að hættulegir sjúkdómar herji á yngstu börnin. UNICEF er í miðju átaki um að auka brjóstagjöf mæðra og bæta næringargjöf í landinu. Barnahjálpin varar við því að samblanda af miklum hita, skorti á drykkjarvatni og hreinlæti."},"page_title":{"text":"Átak um brjóstagjöf í Írak"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"8e6c7aa1-1c37-5d72-988d-87b89b458d1b","primary":{"text":{"html":"<p>Sumarið í Írak er heitt, Celsíusgráðurnar nálgast 50 og það gæti þýtt að hættulegir sjúkdómar herji á yngstu börnin. UNICEF er í miðju átaki um að auka brjóstagjöf mæðra og bæta næringargjöf í landinu. Barnahjálpin varar við því að samblanda af miklum hita, skorti á drykkjarvatni og hreinlæti, sem er raunveruleikinn í mörgum íröskum borgum og flóttamannabúðum í augnablikinu, gæti valdið niðurgangsfaraldri, vannæringu, ofþornun og jafnvel dauða barna. </p><p>Roger Wright, yfirmaður UNICEF í Írak, sagði að yfir milljón barna hafi fæðst í Írak á síðastliðnum 12 mánuðum, a.m.k. 40 þúsund þeirra meðal flóttamanna sem búa í tímabundnum búðum. Brjóstagjöf er það besta fyrir börn fyrstu sex mánuðina og kostar fjölskyldurnar ekki neitt. Stefna stjórnvalda um að dreifa næringardufti fyrir ungabörn í matargjöfum til fjölskyldna gæti orðið stórslys í núverandi aðstæðum, sér í lagi þegar það yrði blandað við óhreint vatn. </p><p>,,Ofþornun sem orsakast af niðurgangi sem orsakast af óhreinu vatni og litlu hreinlæti er nú þegar stærsta dánarorsök yngstu barnanna í Írak,&quot; sagði Wright. ,,Hreinlæti er lítið fyrir en er nú verra í flóttamannavandanum og ofbeldinu, brjóstagjöf er besta vörnin sem hægt er að gefa íröskum börnum.&quot; Um þessar mundir er tíðni niðurgangs helmingi meiri en meðaltalið fyrir þennan tíma árs. Aðeins 25% barna undir 6 mánaða ára fá brjóstagjöf. </p><p>Fyrsta vikan í ágústmánuði 2007 var alheimsvika brjóstagjafa og því notar UNICEF tækifærið til að auka áhersluna á brjóstagjöf víða um heim.</p>"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1Ny8"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}