{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/barnasattmalinn-kynntur-i-6-bekk","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/barnasattmalinn-kynntur-i-6-bekk","uid":"barnasattmalinn-kynntur-i-6-bekk","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N1G","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2006-04-05T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"UNICEF Ísland dreifir nú í annað sinn bæklingnum „Öll börn eiga rétt“ um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Prentsmiðjuna Odda og Námsgagnastofnun. Bæklingnum er dreift til allra 6. bekkinga á landinu og er ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur."},"page_title":{"text":"Barnasáttmálinn kynntur í 6. bekk"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"08e38221-b0df-57bf-a4e9-efd6784d8edf","primary":{"text":{"html":"
UNICEF Ísland dreifir nú í annað sinn bæklingnum „Öll börn eiga rétt“ um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við Prentsmiðjuna Odda og Námsgagnastofnun. Bæklingnum er dreift til allra 6. bekkinga á landinu og er ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur.

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var undirritaður þann 20. nóvember árið 1989 og er því rúmlega 15 ára um þessar mundir. Öll lönd í heiminum hafa undirritað samninginn, utan tveggja. Aldrei hafa fleiri lönd undirritað slíkan sáttmála. Á Ísland var hann samþykktur árið 1992.

Tilvalinn til að skapa umræður um málefni barna og líðandi stund
Tilgangur bæklingsins er að auka fræðslu og skilning barna á réttindum sínum og skyldum. Tilvalið er að nota hann til kennslu og umræðna um rétt barna til menntunar, læknisþjónustu, verndar frá t.d. þátttöku í stríðum og ekki síst réttinn til að láta skoðanir sínar í ljós. Í því sambandi bendum við á upplýsingasíðu unga fólksins.

Bæklingurinn er unninn að norskri fyrirmynd og er sérstaklega gerður fyrir börn á aldrinum 10-12 ára. Hann segir frá Barnasáttmálanum á mjög einfaldan hátt og fylgja frásagnir barna frá öðrum heimshlutum með. Þannig er einnig hægt að leiða hugann að aðstæðum barna úti í heimi og hér heima í tengslum við efni bæklingsins.

Verkefnablað fyrir kennara fylgir bæklingnum og má sjá á vef Námsgagnastofnunar.

Við hjá UNICEF Ísland vonum að með þessum bæklingi megi hvetja íslensk ungmenni til umhugsunar um aðstæður sínar og að taka skuli tillit til réttmætra skoðana barna í samræmi við aldur þeirra og þroska.

„Þið segið að við séum framtíðin, en við erum líka nútíðin.“ - Börn á sérstöku barnaþingi Sameinuðu þjóðanna, 2002.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N1G"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}