{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/bjoerk-gefur-ut-geisladisk-til-styrktar-unicef","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/bjoerk-gefur-ut-geisladisk-til-styrktar-unicef","uid":"bjoerk-gefur-ut-geisladisk-til-styrktar-unicef","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBZ","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-04-30T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Næstkomandi mánudag, 2. maí, mun geisladiskur sem Björk Guðmundsdóttir gefur út til styrktar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vera dreift í búðir hér á landi. Drifin áfram af þeim hrikalegu áhrifum sem hamfarirnar í kjölfar flóðbylgnanna í Asíu höfðu á börn á svæðinu, ákvað Björk að setja saman safn af útgáfum annarra á lagi hennar „Army of Me“."},"page_title":{"text":"Björk gefur út geisladisk til styrktar UNICEF"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"75a31cd6-4d8c-5e99-8bb7-fefdaeb8832c","primary":{"text":{"html":"
Næstkomandi mánudag, 2. maí, mun geisladiskur sem Björk Guðmundsdóttir gefur út til styrktar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vera dreift í búðir hér á landi.

Drifin áfram af þeim hrikalegu áhrifum sem hamfarirnar í kjölfar flóðbylgnanna í Asíu höfðu á börn á svæðinu, ákvað Björk að setja saman safn af útgáfum annarra á lagi hennar „Army of Me“.

„Hér er að finna endurhljóðblandanir sem flæddu inn á vefsíðuna mína fyrir tilstilli skapandi náttúruafla. Ég beindi svo þessum jákvæðu bylgjum til barna sem liðu þjáningar þegar þau urðu fyrir flóðbylgju eyðileggjandi náttúruafla,“ skrifar Björk á hlið geisladisksins. Diskurinn hefur að geyma 20 lög frá ýmsum löndum, m.a. eitt frá Dr. Gunna.

Allur ágóði af sölu geisladisksins mun renna til neyðaraðstoðar UNICEF víðsvegar um heiminn, þar sem UNICEF aðstoðar börn sem hafa lent í hættu líkt og börnin á hamfarasvæðunum í Asíu. Þegar neyðarástand á sér stað, veitir UNICEF meðal annars:

- neyðarbirgðir, þar á meðal nauðsynleg lyf, sölt gegn ofþornun og næringu í æð.

- A-vítamín bætiefni sem efla til muna ónæmiskerfi barna.

- nauðsynlegar vörur fyrir vatnsöflun og hreinlæti fjölskyldna, til dæmis vatnsgeyma, fötur, sápu og vatnshreinsitöflur. M.a. til að koma í veg fyrir farsóttir.

- skólavörur (e. school-in-a-box), gögn fyrir kennara, en nauðsynlegt er að börnin missi ekki úr námi og haldi einhverri kjölfestu í sínu daglega lífi.

- sálrænan stuðning til barna og þjálfun og handleiðslu til kennara, sjúkrastarfsmanna og annarra sem hafa lykilhlutverki að gegna í samfélaginu.
Allir sem að verkefninu koma, frá listamönnunum til framleiðenda geisladisksins hafa gefið vinnu sína til styrktar börnum í neyð. Smekkleysa gefur út diskinn hér á Íslandi.

Hægt er að kaupa geisladiskinn beint frá útgáfufyrirtæki Bjarkar á vefsíðunni www.onelittleshop.com, og hámarka þannig framlagið til neyðaraðgerða UNICEF.

Einnig er hægt að styrkja UNICEF á reglubundinn hátt með því að gerast heimsforeldri og bæta þannig líf barna sem líða skort víðsvegar um heiminn. Hægt er að gerast heimsforeldri með því að hringja í 575-1520 eða skrá sig hér á síðunni.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBZ"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}