{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/bjoerk-i-banda-aceh","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/bjoerk-i-banda-aceh","uid":"bjoerk-i-banda-aceh","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N1I","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2006-02-06T01:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Björk Guðmundsdóttir fór til Banda Aceh, á norðanverðri Súmötru í Indónesíu, dagana 26.-27. janúar. Tilgangur heimsóknar hennar var að heimsækja verkefni og uppbyggingarstarf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eftir flóðbylgjuna sem reið yfir löndin við Indlandshaf fyrir rúmu ári síðan."},"page_title":{"text":"Björk í Banda Aceh"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"2c473f59-d074-51d1-bdde-ba67b6339112","primary":{"text":{"html":"
Björk Guðmundsdóttir fór til Banda Aceh, á norðanverðri Súmötru í Indónesíu, dagana 26.-27. janúar. Tilgangur heimsóknar hennar var að heimsækja verkefni og uppbyggingarstarf Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eftir flóðbylgjuna sem reið yfir löndin við Indlandshaf fyrir rúmu ári síðan.

Army of Me
Björk gaf út geisladisk með endurhljóðblöndunum af laginu Army of me í byrjun maí á síðasta ári og að hennar frumkvæði rann ágóði hans til neyðaraðgerða UNICEF um allan heim. Á umslagi geisladisksins skrifaði Björk þetta: „Hér er að finna endurhljóðblandanir sem flæddu inn á vefsíðuna mína fyrir tilstilli skapandi náttúruafla. Ég beindi svo þessum jákvæðu bylgjum til barna sem liðu þjáningar þegar þau urðu fyrir flóðbylgju eyðileggjandi náttúruafla.“ Platan er enn fáanleg hér á landi.

Heiður fyrir UNICEF
Björk er ekki velgjörðarsendiherra UNICEF en vonast er til að ferðin sé byrjun á langtímasambandi UNICEF og Bjarkar. Landsnefnd UNICEF í Bretlandi hafði veg og vanda af ferðinni, en það er UNICEF á Íslandi mikill heiður að hún skuli leggja Barnahjálpinni lið með þessum hætti.

Í viðtali við Síðdegisútvarpið á föstudaginn sl. sagði Björk að eyðileggingin og fjöldagrafirnar hefðu verið það skelfilegasta sem hún hefði séð á ævi sinni. Fréttablaðið, laugardaginn 4. febrúar, er með ítarlegt viðtal við Björk um ferðina. Þar segir hún meðal annars að miklir öfgar hafi mætt sér á staðnum, bæði varð hún vitni að kraftaverkum og eins hafi hún hitt fólk sem aldrei mun bera bætur eftir þessar hörmungar.

Aceh-hérað
Aceh-hérað varð hvað verst úti í hamförunum og hefur starf UNICEF þar verið umfangsmikið. Björk heimsótti verkefni sem snúa að vernd og menntun barna, auk þess sem hún hitti fórnarlömb flóðbylgjunnar.

Árangur UNICEF í Indónesíu til þessa:
1. UNICEF hefur veitt meira en 90% barna á aldrinum 6 mánaða til 15 ára bólusetningu gegn mislingum. Auk þess hafa tæp hálf milljón barna fengið A vítamín.
2. UNICEF hefur veitt um 200 þúsund konum og börnum net til varnar skordýrum og flugum.
3. 376.600 manns hafa fengið aðgang að hreinu vatni.
4. Nærri 54.000 börn hafa fengið félagsráðgjöf eða tekið þátt í skipulögðum leikjum sem er hluti af áfallahjálpinni.
5. UNICEF kom upp fjölda svokallaðra skráningarmiðstöðva í Aceh-héraði sem var hluti af að vernda þau börn sem fundust á lífi.
6. 230.000 bókum og fleiri skólagögnum hefur verið dreift til 830.000 barna og hefur UNICEF byggt 135 skóla og um 200 bráðabyrgðaskóla. Takmarkið er að byggja 500 varanlega skóla fyrir börn í Indónesíu.

UNICEF eru stærstu barnahjálparsamtök í heimi og hafa 60 ára reynslu af neyðar- og þróunaraðstoð. Til að ná markmiðum sínum vinnur UNICEF náið með öðrum alþjóðlegum hjálparstofnunum, stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og samfélögunum sjálfum við að koma hjálpargögnum fljótt til þeirra sem mest þurfa á þeim að halda.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N1I"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}