{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/bjorgun-barnahermanna-i-haettu-vegna-fjarskorts","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/bjorgun-barnahermanna-i-haettu-vegna-fjarskorts","uid":"bjorgun-barnahermanna-i-haettu-vegna-fjarskorts","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L4u","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2020-02-12T09:00:01+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NzAwMmJiZjgtOGU1My00MDI3LTg2ODktYzRiZTQzOWYyMTEz_uni284222.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C212%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NzAwMmJiZjgtOGU1My00MDI3LTg2ODktYzRiZTQzOWYyMTEz_uni284222.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C37%2C1536%2C1076&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NzAwMmJiZjgtOGU1My00MDI3LTg2ODktYzRiZTQzOWYyMTEz_uni284222.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=408%2C0%2C721%2C1152&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"UNICEF hefur gefið út viðvörun um að mikilvæg starfsemi stofnunarinnar í Suður-Súdan er snýr að barnahermönnum sé nú í hættu sökum fjárskorts."},"page_title":{"text":"Björgun barnahermanna í hættu vegna fjárskorts"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"d6aaa311-d216-56f1-a647-6e137ec7e4ef","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NzAwMmJiZjgtOGU1My00MDI3LTg2ODktYzRiZTQzOWYyMTEz_uni284222.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1152&w=1536&h=1152","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"f9e6a372-790d-532c-966a-4eea59170cbc","primary":{"text":{"html":"
12. febrúar 2020 UNICEF hefur gefið út viðvörun um að mikilvæg starfsemi stofnunarinnar í Suður-Súdan er snýr að barnahermönnum sé nú í hættu sökum fjárskorts. Verkefnið snýr að stuðningi við börn eftir að þau hafa verið leyst undan ánauð hermennsku.

Í dag er Alþjóðadagur gegn notkun barna í hernaði, eða Dagur Rauðu Handarinnar, og eins og staðan er í dag eru 900 börn skráð til að vera leyst undan hermennsku í Suður-Súdan innan tíðar. UNICEF  skortir hins vegar fjármagn til að mæta þeim og aðstoða við að aðlagast lífinu utan átakasvæða.

Um er að ræða þriggja ára björgunar– og endurkomuprógramm sem kostar aðeins sem nemur 250 þúsund krónur á hvert barn.  Í prógramminu felst félags- og sálfræðistuðningur, vinna með félagsráðgjafa, vinna við að hafa uppi á fjölskyldu barnanna og eftir atvikum sameina, menntun og önnur nauðsynleg aðstoð og þjónustu til að hjálpa börnum endurheimta líf sitt við eðlilegar aðstæður.

„Orðið vonbrigði kemst ekki nærri því að ná utan um hvernig mér líður yfir þessari stöðu,“ segir Mohamed Ag Ayoya, fulltrúi UNICEF í Suður-Súdan.

„Börn eru skráð, staðfest og tilbúin til að vera útskrifuð, UNICEF býr yfir þrautreyndu og árangursríku prógrammi en samt sem áður skortir okkur fjármagn til að halda áfram þessari gríðarmikilvægu vinnu. Ég er afar sár fyrir hönd þeirra barna sem eru reiðubúin að hefja nýtt líf og endurheimta barnæskuna sem þau voru svipt.“

Vonir standa til að hægt verði að mynda sameinaða ríkisstjórn í Suður-Súdan síðar í þessum mánuði og að því fylgi viðvarandi friður. UNICEF bindur því sömuleiðis vonir við að samhliða því verði fleiri börn leyst undan hermennsku í landinu sem þá munu þurfi nauðsynlega á stuðningi, aðstoð og þjónustu að halda. Sem fyrr segir er komin mikil reynsla á vinnu UNICEF með fyrrverandi barnahermönnum og ávinningur hennar óumdeildur. Reynslan sýnir því miður líka að án þessa stuðnings er hættunni boðið heim og börn glíma við langvarandi og alvarlegar afleiðingar sem aftur geta haft skaðleg áhrif á samfélögin.

Frá árinu 2015 hefur UNICEF komið að því að bjarga 3.677 börnum úr hermennsku og unnið að því að koma þeim aftur inn í samfélagið eftir að þau höfðu verið notuð í átökum stríðandi fylkinga í Suður-Súdan.

Endurkomuprógrammið svokallaða er umfangsmikið og tekur á fjölmörgum áskorunum sem börn standa frammi fyrir eftir að hafa upplifað stríðshrylling og átök.

UNICEF í Suður-Súdan áætlar að þurfa 4,2 milljónir Bandaríkjadala á þessu ári, eða sem nemur rúmlega 500 milljónir íslenskar til að standa undir verkefninu.

„Ég skora á alþjóðasamfélagið að stíga upp og hjálpa UNICEF að fjármagna björgunar- og endurkomuprógrammið fyrir barnahermenn og ekki síst til að viðhalda sáttmálum og alþjóðalögum sem reynir virkilega á um þessar mundir,“ segir Ayoya.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L4u"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}