{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/blodug-byrjun-a-arinu-fyrir-born-i-sudan-160-drepin","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/blodug-byrjun-a-arinu-fyrir-born-i-sudan-160-drepin","uid":"blodug-byrjun-a-arinu-fyrir-born-i-sudan-160-drepin","type":"post","prismicId":"ad4yWRQAACAAcCef","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-04-14T12:26:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ad4zmJ1ZCF7ETLP-_UNI962591.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C88%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ad4zmJ1ZCF7ETLP-_UNI962591.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=74%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ad4zmJ1ZCF7ETLP-_UNI962591.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=581%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Eftir þriggja ára stríð halda börn áfram að bera þyngstu byrðarnar. Drónaárásir valda nær 80% allra dauðsfalla og meiðsla það sem af er ári."},"page_title":{"text":"Blóðug byrjun á árinu fyrir börn í Súdan: 160 börn drepin"},"image_text":{"text":"Barn í Súdan skimað fyrir vannæringu. Mynd: UNICEF/UNI962591/Elfatih"},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"64430b56-6a8c-58e7-93ed-bdc5756a6fba","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Nú þegar þriggja ára tímamót núverandi borgarastyrjaldar í Súdan nálgast halda átökin þar áfram að koma verst niður á börnum. Á tímabilinu frá janúar til mars á þessu ári hafa að minnsta kosti 160 börn verið drepin og 85 særst alvarlega víðs vegar um landið . Það er 50% aukning ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Flest atvikin áttu sér stað í hérðuðunum Darfúr og Kordofan, þar sem viðvarandi ofbeldi og óhæfuverk hefur ýtt heilu samfélögum að þolmörkum.
Á þessum þremur árum hafa 5 milljónir barna verið hrakin á flótta frá heimili sínu, í mörgum tilfellum ítrekað, eftir því sem víglínur færast til og ofbeldi breiðist út.
„Í þrjú ár hafa börn um allt Súdan verið drepin, særð og hrakin á flótta í ógnvænlegum mæli,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Heimili þeirra, skólar og sjúkrahús verða áfram fyrir árásum. Engin réttlæting er fyrir ofbeldi gegn börnum. Þetta endurspeglar sameiginlegan misbrest aðila að átökunum á að vernda grundvallarréttindi barna.“
Réttindi barna þverbrotin
Á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti halda árásir áfram að eyðileggja heimili, skóla, markaði og sjúkrahús og nýjar árásaraðferðir reynast sífellt skaðlegri. Þannig má rekja 78% mannskæðra árása til drónaárása.
Frá upphafi stríðsins hafa Sameinuðu þjóðirnar staðfest yfir 5.700 alvarleg réttindabrot gegn börnum í Súdan, sem hafa haft áhrif á að minnsta kosti 5.100 börn – þar af hafa yfir 4.300 verið drepin eða særð.
Fjölskyldur búa við þröngar og brothættar aðstæður á meðan grunnþjónusta er að þolmörkum komin. Stór svæði í Súdan eru enn án mannúðaraðstoðar vegna skorts á öryggi, skemmdra innviða eða stjórnsýsluhindrana.
Afleiðingar átaka og óhæfuverka eru hungur, sjúkdómar og hætta á hungursneyð fer vaxandi. Áætlað er að 4,2 milljónir barna í Súdan muni þjást af bráðavannæringu á þessu ári, þar af yfir 825.000 af alvarlegri bráðavannæringu sem er lífshættuleg án tafarlausrar meðferðar.
Ekki horfa fram hjá þjáningum barna
Þrátt fyrir óöryggi og aðgangshindranir heldur UNICEF áfram að veita lífsnauðsynlega þjónustu á sviði heilbrigðis, næringar, vatns, barnaverndar og menntunar víðs vegar um Súdan. Viðbrögðin eru þó undir vaxandi álagi.
Árið 2026 þarf UNICEF 962,9 milljónir Bandaríkjadala til að ná til 7,9 milljóna barna með lífsnauðsynlega aðstoð. Í mars hafði einungis borist 16% af þeirri fjárhæð.
„Til að vernda börn þurfa allir aðilar að átökunum tafarlaust að stöðva alvarleg brot gegn börnum og virða alþjóðalög, þar á meðal að tryggja öruggan, skjótan og óhindraðan aðgang mannúðaraðstoðar um allt land,“ segir Russell í tilkynningu UNICEF. „Við erum þakklát þeim styrktaraðilum sem styðja lífsbjargandi starf okkar. En þörfin fyrir mannúðaraðstoð eru langt umfram það fjármagn sem stendur til boða, og við hvetjum alþjóðasamfélagið eindregið til að auka stuðning sinn. Við getum ekki horft fram hjá þjáningum barna í Súdan.“
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"ad4yWRQAACAAcCef"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}