{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/boernin-i-beslan-ari-sidar","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/boernin-i-beslan-ari-sidar","uid":"boernin-i-beslan-ari-sidar","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1N_F","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-08-25T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Þann 1. september 2004, fyrir ári síðan, réðust gíslatökumenn inn í skóla númer eitt í Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi. Tilhlökkun barna og foreldra við upphaf nýs skólaárs breyttist fljótt í martröð. Þremur dögum síðar voru yfir 170 börn látin ásamt hundruðum fullorðinna."},"page_title":{"text":"Börnin í Beslan ári síðar"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"fa100f91-c602-5a4a-bd77-3309cb7fbf9d","primary":{"text":{"html":"
Þann 1. september 2004, fyrir ári síðan, réðust gíslatökumenn inn í skóla númer eitt í Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi. Tilhlökkun barna og foreldra við upphaf nýs skólaárs breyttist fljótt í martröð. Þremur dögum síðar voru yfir 170 börn látin ásamt hundruðum fullorðinna.

Börnin sem lifðu harmleikinn af misstu systkini, foreldra og vini og upplifðu atburði sem ekkert barn á að þurfa að upplifa. Gíslatakan vakti mikla heimsathygli þar sem um var að ræða árás sem beint var að saklausum börnum í pólitísku markmiði og því sérstaklega grimmdarleg.

UNICEF starfaði í nágrenninu þegar harmleikurinn átti sér stað og gat því komið fljótt til hjálpar. Flest börnin höfðu verið lögð inn á fjóra spítala í Vladikavkaz og sá UNICEF að mikil þörf var á grundvallarsjúkragögnum og lyfjum. UNICEF útvegaði því strax verkjalyf, sárabindi og annað slíkt. Nokkrum dögum síðar veitti UNICEF 5 spítölum í Beslan og Vladikavkaz sjúkragögn eins og rúm, teppi, dýnur, hjartalínurit, lín, sápur, hanska, plástra, sprautur og fleira.

UNICEF var til staðar með skólagögn, húsgögn og tæki þegar börnin snéru aftur í skólana og hefur ekki yfirgefið börnin síðan. Nú mun UNICEF útvega skólagögn til tveggja nýrra skóla sem voru tilbúnir við upphaf skólaársins í ár og mun hýsa um 600 nemendur.

Líkamlega hafa krakkarnir náð sér að fullu, en þau eru enn að vinna úr hinu mikla sálræna áfalli sem fylgdi í kjölfarið. UNICEF telur að öll börn í Beslan hafi orðið fyrir áhrifum af gíslatökunni á einn eða annan hátt.

Nú þegar ár er liðið frá atburðunum opna börn og ungmenni ljósmyndasýningu sem unnin var á námskeiði sem UNICEF hélt og markar opnun sýningarinnar þau tímamót sem fórnarlömb gíslatökunnar minnast um þessar mundir.

UNICEF hefur aðstoðað við að leiða teymi ráðgjafa í skólanum og í samfélaginu sem ætlað er að hjálpa börnum og fjölskyldum þeirra að byggja upp líf sitt að nýju. Um 7 þúsund börn og foreldrar mun njóta aðstoðarinnar. Mörg barnanna þurfa að fá hjálp við að komast aftur í skóla og öðlast trú á skólakerfið að nýju.

Það sem gerðist í Beslan er mikill harmleikur í heimshluta sem þegar hefur þurft að upplifa ofbeldi og óstöðugleika. Mikilvægt er að leggja niður ágreining og vinna að friði. UNICEF styður fræðslu um frið fyrir börn og ungmenni í Norður-Ossetíu, Ingushetíu, Tsjetsjníu, Kabardino-Balkaria og Dagestan og hvetur til umræðna og umburðarlyndis milli barna á þessum ólgusvæðum.

Fulltrúar UNICEF geta gefið fjölmiðlum viðtöl á ensku um ástandið í Beslan. Upplýsingar hjá UNICEF Ísland í síma 552 6304 (Anna).
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"ef8897f7-595c-5f09-a345-5f0122c1a4ef","primary":{"text":{"html":"

"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1N_F"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}