{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/born-i-somaliu-bera-thungann-af-nidurskurdi-thjoda","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/born-i-somaliu-bera-thungann-af-nidurskurdi-thjoda","uid":"born-i-somaliu-bera-thungann-af-nidurskurdi-thjoda","type":"post","prismicId":"aohTUhIAACcANECe","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-08-21T13:39:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/7hg1G2if-S7YN4ag_UN0910308.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C166%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/7hg1G2if-S7YN4ag_UN0910308.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=5%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/7hg1G2if-S7YN4ag_UN0910308.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=551%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Samantekt á ræðu James Elder, talsmanns UNICEF, á blaðamannafundi í Palais des Nations í Genf á föstudag eftir heimsókn hans til Sómalíu."},"page_title":{"text":"Börn í Sómalíu bera þungann af niðurskurði þjóða til lífsnauðsynlegrar aðstoðar"},"image_text":{"text":"Hin átján mánaða gamla Maida Abdullahi með móður sinni að fá næringarþjónustu á sjúkrahúsi í Deyniile-héraði Mógadisjú.\nMynd:UNICEF/UN0910308/Sewunet "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"eb5085c8-5af4-50f9-b557-1aa82ca950aa","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
„Í Sómalíu í dag er niðurskurður ríkja til mannúðaraðstoðar að loka dyrum að heilbrigðisþjónustu, stöðva næringarþjónustu og gera aðgang að vatni, menntun og vernd sífellt erfiðari. Eins og alltaf eru það börnin sem greiða hæsta verðið.

„Í kjölfar fordæmalauss niðurskurðar á fjármagni til mannúðaraðstoðar hafa þegar 205 heilbrigðis- og næringarstöðvar lokað. Áhrifin komu strax fram hjá börnum. Fyrstu sex mánuði þessa árs fjölgaði börnum sem lögð voru inn á meðferðarstöðvar vegna alvarlegrar bráðavannæringar og fylgikvilla hennar um 32 prósent miðað við sama tímabil í fyrra.

„Færri stöðvar þýða lengri ferðir fyrir mæður og börn þeirra. Lengri ferðir þýða að meðferð hefst síðar. Tafir á meðferð getur þýtt alvarleg veikindi og aukna hættu á dauðsföllum sem hægt er að koma í veg fyrir.

Eyðileggingarmáttur loftslagsvárinnar sýnilegur

„Þetta er alls ekki rétti tíminn til að draga úr stuðningi. Sómalía stendur frammi fyrir versnandi loftslagsvá – alvarlegum þurrkum víða í norðurhlutanum, átökum og fólksflótta, auk þess sem kostnaður við eldsneyti og áburð hefur hækkað í kjölfar stríðsins í Íran. Öflugt El Niño-veðurfyrirbæri, það öflugasta sem mælst hefur, gæti aukið enn frekar á yfirstandandi mannúðarkreppu í Sómalíu með alvarlegum flóðum sem spáð er að nái hámarki á næstu mánuðum.

„Þetta er grimm mótsögn. Verið er að skera niður það fjármagn sem þarf til að vernda viðkvæmustu börnin á sama tíma og neyðaraðstæður barna í Sómalíu verða sífellt alvarlegri og þörfin fyrir stóra styrktaraðila hefur aldrei verið meiri.

Elder fór síðan í máli sínu yfir stöðuna í Sómalíu eftir málaflokkum.

Í heilbrigðisþjónustu benti hann á að vegna niðurskurðar ríkja til alþjóðlegrar þróunaraðstoðar hefði umfang heilbrigðis- næringarþjónustu í landinu dregist saman um 30 prósent. Afleiðingar frekari röskunar gætu orðið skelfilegar.

Nærri ein milljón barna undir fimm ára aldri, unglingsstúlkna og kvenna eiga á hættu að missa aðgang að næringarþjónustu í Sómalíu. 32 aukning í bönum sem leita á meðferðarstöðvar er ekki vegna þess að fleiri börn séu að veikjast. Ástæðan er sú að forvarnarstarf og næringarþjónusta í nærsamfélögum hefur verið skorin niður. Viðkvæm börn eru því síður greind og fá síður meðferð á fyrstu stigum. Þegar þau komast loks á sérhæfðar meðferðarstöðvar eru þau oft mun alvarlegar veik. Meðferð þeirra er jafnframt mun kostnaðarsamari.

Á þessu ári er gert ráð fyrir að nærri 1,9 milljón barna verði fyrir áhrifum vannæringar, þar af tæplega hálf milljón vegna alvarlegrar bráðavannæringar.

„Jafnvel það að koma lífsbjargandi aðstoð til þeirra barna sem þurfa á henni að halda verður sífellt erfiðara. Fjárveitingar til UNHAS í Sómalíu, mannúðarflugþjónustu Sameinuðu þjóðanna sem tryggir mikilvægar flugsamgöngur fyrir lífsbjargandi vöruflutninga og starfsemi UNICEF, voru skornar niður um 40 prósent á milli áranna 2025 og 2026.

"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyImage","id":"2a0ce7d4-c59d-56a8-b385-dc1dafccb16d","primary":{"image_text":{"text":"Mynd: UNICEF/UN0910265/Sewunet "},"image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/b7FAPna6KSNNzUCD_UN0910265.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C0%2C1535%2C1024&w=1616&h=1078","thumbnails":{"featuresize":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/b7FAPna6KSNNzUCD_UN0910265.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C108%2C1536%2C728&w=2322&h=1100"}}}},"slice_label":null,"slice_type":"image"},{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"451c7953-f188-5597-956c-2700dd2ff423","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Elder segir það þyngra en tárum taki að horfa upp á þennan niðurskurð í samhengi við þann árangur sem náðst hefur. Á árunum 2021 til 2025 studdi UNICEF meðferð meira en 2,25 milljóna barna með alvarlega bráðavannæringu. Árið 2025 náðist 97,6 prósenta batahlutfall. Árið 2024 náði bólusetningarátak gegn kóleru, sem UNICEF studdi, til meira en 885.000 einstaklinga í áhættuhópi og náði þannig til meira en 90 prósenta markhópsins. Þessi árangur sé nú í hættu.

„Við höfum úrræðin. Við höfum samstarfsaðilana. Það sem vantar er fjármagnið.

Vatn: Núverandi þurrkar verða enn alvarlegri vegna þess að mannúðaraðstoð er að hverfa. Meira en 1,6 milljónir manna þurfa aðgang að öruggu vatni en meira en 800.000 eiga á hættu að missa nauðsynlegar hreinlætisvörur.

„Á sama tíma hefur verð á vatni í dreifbýli og á svæðum þar sem hirðingjabúskapur er stundaður fjórfaldast. 200 lítra tunna sem áður kostaði um 2 Bandaríkjadali kostar nú 8 dali. Þrátt fyrir þetta hefur UNICEF tryggt meira en einni milljón manna aðgang að neyðarþjónustu og sjálfbærum vatnslausnum. Án stöðugrar fjármögnunar er þessi árangur hins vegar einnig í hættu.

Menntun: Menntun verndar börn gegn misnotkun, barnahjónaböndum og barnavinnu og gefur þeim – og samfélögum þeirra – leið út úr fátækt. Margra ára rausnarleg fjárfesting gefenda í framtíð barna er hins vegar að tapast mun hraðar en hún var byggð upp. Niðurskurður til menntamála nam 30 milljónum dala í fyrra og búist við að helstu gefendur dragi framlög sín saman um meira en helming á þessu ári. Ríflega 78 þúsund nemendur hafa þegar hætt í skóla. Hundruð þúsunda eru í hættu á að flosna upp frá námi.

Vernd barna: Enn á ný verður að skoða núverandi niðurskurð í samhengi við það sem hefur áunnist – og þar með það sem nú er í hættu. Árin 2024 og 2025 fengu þúsundir barna sem áður höfðu tengst vopnuðum hópum eða voru í hættu á að verða ráðin til þeirra stuðning við að snúa aftur til samfélagsins.

„Sómalía er eitt þeirra landa þar sem tilkynnt hefur verið um hvað mestan fjölda alvarlegra brota gegn börnum. Þrátt fyrir það hafa að minnsta kosti 65 þjónustustöðvar og úrræði fyrir vernd barna lokað vegna niðurskurðar á fjármagni. Önnur þjónusta – svo sem málsmeðferð og stuðningur við börn, sálfélagslegur stuðningur, leit að fjölskyldum og aðlögun barna að samfélaginu á ný – er einnig í hættu vegna fjárskorts.

Niðurskurður ógn við öryggi og efnahagslega velsæld alls staðar

„Í samtengdum heimi ógnar niðurskurður á þróunaraðstoð hvar sem er öryggi og efnahagslegri velsæld alls staðar. Þetta á ekki síður við um Sómalíu en önnur lönd heims. Spurningin er því ekki hvort Sómalía þurfi minni aðstoð vegna þess að heimurinn sé orðinn erfiðari. Spurningin er hvort heimurinn hafi efni á að gera Sómalíu enn viðkvæmara ríki á sama tíma og þessar áskoranir margfaldast. Svarið ætti að vera nei.

„Þrátt fyrir þessar áskoranir heldur almenningur í Sómalíu og stofnanir áfram að aðlagast. Stjórnvöld efla stefnumótun, regluverk og innlend kerfi á meðan mannúðarsamtök leita stöðugt leiða til að vinna á skilvirkari, staðbundnari og sjálfbærari hátt.

„Sómalía ætti hins vegar ekki að þurfa að velja á milli þess að bregðast við þurrkum og byggja upp samfélagið til lengri tíma, á milli þess að meðhöndla veik börn og koma í veg fyrir vannæringu eða á milli neyðarvatnsþjónustu og sjálfbærra vatnskerfa.

Krísur stoppa ekki við landamæri

„Og umheimurinn ætti ekki að haga sér eins og krísur sem þessar stoppi við landamæri. Í heimi samtengdra hagkerfa, loftslagsáfalla og fólksflótta höfum við ekki efni á að veikja þau kerfi sem vernda fólkið sem verður verst úti.

„Vernd barna er ekki valkvæður kostnaður. Að koma í veg fyrir þjáningar er ekki óhagkvæmni. Og að leggja niður árangursríka mannúðaraðstoð þegar þörfin er mest er ekki sparnaður. Það er ákvörðun um að greiða hærra verð síðar – í fjármunum, öryggi, glötuðum tækifærum til þróunar og í sumum tilfellum, með lífi barna.“

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, vinnur að því að vernda réttindi allra barna, alls staðar, sérstaklega þeirra barna sem búa við hvað mestan ójöfnuð og við erfiðustu aðstæður. Í meira en 190 löndum og landsvæðum vinnum við að því að gera allt sem í okkar valdi stendur til að börn lifi af, dafni og fái tækifæri til að nýta hæfileika sína til fulls.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"aohTUhIAACcANECe"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}