{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/dagskra-soefnunarinnar-neydarhjalp-ur-nordri","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/dagskra-soefnunarinnar-neydarhjalp-ur-nordri","uid":"dagskra-soefnunarinnar-neydarhjalp-ur-nordri","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBN","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-01-14T01:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Söfnunarátakið Neyðarhjálp úr norðri stendur nú sem hæst en mun ná hámarki í söfnunarþætti á þremur sjónvarpsstöðvum samtímis á morgun, laugardag. Margir skemmtilegir atburðir eru í kringum söfnunina, það stendur nú yfir uppboð, fyrirtæki geta skorað á hvort annað, leikhúsin og bíóhúsin verða með sýningar til styrktar söfnuninni."},"page_title":{"text":"Dagskrá söfnunarinnar Neyðarhjálp úr norðri"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"5bebbb0a-3e9f-5bbe-9ea4-66a0ce5ed97d","primary":{"text":{"html":"
Söfnunarátakið Neyðarhjálp úr norðri stendur nú sem hæst en mun ná hámarki í söfnunarþætti á þremur sjónvarpsstöðvum samtímis á morgun, laugardag.
Margir skemmtilegir atburðir eru í kringum söfnunina, það stendur nú yfir uppboð, fyrirtæki geta skorað á hvort annað, leikhúsin og bíóhúsin verða með sýningar til styrktar söfnuninni, verslanamiðstöðvar á landinu eru með dagskrá, Kramhúsið verður með danstíma og margt fleira. Fólk getur því lagt sitt af mörkum með ýmsum hætti. Vert er að líta nánar á dagskránna sem framundan er í dag og á morgun.

Föstudagur:
Skemmtidagskrá verður fyrir börn og fullorðna í Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi Akureyri kl. 14-18 og sjálfboðaliðar munu safna framlögum í bauka. Einnig mun Regnboginn sýna Í takt við tímann kl. 18, 20 og 22, Borgarleikhúsið sýnir Héra Hérason kl. 20 fer allur ágóði þessara sýninga til landssöfnunarinnar.
Kaffitár selur einnig kaffi frá Aceh-héraði á 700 krónur í verslunum sínum í Kringlunni og Bankastræti til styrktar söfnuninni.
Kramhúsið selur danstíma á 1000 krónur í dag og munu kennarar og starfsfólk Kramhússins gefa vinnu sína. Eftirtaldir tímar eru í boði: Afró kl. 15:35-16:35, Bollywood kl. 16:40-17:40, Yoga og hugleiðsla kl. 16:40-17:40, Jass Funk kl. 17:45-18:45 og Tangó kl. 17:45-18:45. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Laugardagur: Skemmtidagskrá verður fyrir börn og fullorðna í Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi Akureyri kl. 12-18. Sjálfboðaliðar safna framlögum í bauka.
Sjósundsfélag Íslands efnir til sundmaraþons í Nauthólsvík kl. 13:30-16:30 en hitastig í sjónum er um ein gráða. Heitið á sundkappana með framlögum í síma 590 0800
Kaffitár selur áfram kaffi frá Aceh-héraði á 700 krónur í verslunum sínum í Kringlunni og Bankastræti til styrktar söfnuninni.

Á laugardagskvöld verður sjónvarpsþáttur á samtengdri rás RÚV, Stöðvar 2 OG Skjás eins, kl. 19:40-21:40. Þá geta einstaklingar og fyrirtæki gefið tilkynnt stærri framlög í síma 755 5000. Þekkt fólk mun svara í símann.

BM-ráðgjöf skráir stærri framlög fyrirtækja og áskoranir í dag föstudag í síma 590 8000 frá kl. 9-17. Starfsmenn BM-ráðgjafar gefa vinnu sína. Bylgjan og Rás 2 geta sagt frá stærri framlögum og áheitum fyrirtækja sín á milli í dag og á morgun.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBN"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}