{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/disukoekur-til-styrktar-neydarhjalp-unicef","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/disukoekur-til-styrktar-neydarhjalp-unicef","uid":"disukoekur-til-styrktar-neydarhjalp-unicef","type":"post","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NKD","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2013-12-04T15:50:49+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":""},"page_title":{"text":"Dísukökur til styrktar neyðarhjálp UNICEF"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"1797de07-c0d3-5084-94b0-41a6df1b2c59","primary":{"text":{"html":"
Bloggsíðan Dísukökur.is hefur notið mikilla vinsælda að undanförnu. Höfundur hennar er hin stórsniðuga Hafdís Priscilla Magnúsdóttir sem sérhæfir sig í uppskriftum sem eru lausar við hveiti og sykur.

Þær henta því þeim sem eru sykursjúkir, á lágkolvetnafæði eða langar einfaldlega að prófa eitthvað nýtt og hollara fyrir jólin.

Látum gott af okkur leiða í jólabakstrinum

Eftir að hafa séð fréttir af eyðileggingu og neyð á Filippseyjum í kjölfar fellibylsins í byrjun nóvember ákváðu Hafdís og Ágúst Ævar Guðbjörnsson, margmiðlunarhönnuður, að sameina krafta sína í þágu góðs málefnis. Úr varð uppskriftabókin „Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi“ sem inniheldur fjórtán, valdar uppskriftir af Dísukökur.is. Prentun.is í Hafnarfirði gáfu prentunina og á aðeins fáeinum dögum varð þessi fallega hugmynd að veruleika.

Uppskriftabókin kostar 990 krónur og öll sú upphæð rennur til neyðarsöfnunar UNICEF fyrir börn á Filippseyjum.

„Skilaboðin eru svolítið þau að láta gott af okkur leiða í jólabakstrinum,“ segir Hafdís.

„Markmiðið er að selja að lágmarki 1500 bæklinga fyrir aðfangadag og þannig leggja okkar af mörkum til að hjálpa börnum sem nú eiga um sárt að binda á Filippseyjum.“

Þessa fallegu uppskriftabók má nálgast hér.

Við hjá UNICEF erum Hafdísi, Ágústi og prentun.is innilega þakklát fyrir þetta frábæra framtak! Upp með svuntuna og allir að baka!
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NKD"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}