{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/dregid-ur-ungbarnadauda-i-sierra-leone","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/dregid-ur-ungbarnadauda-i-sierra-leone","uid":"dregid-ur-ungbarnadauda-i-sierra-leone","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N1w","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2007-04-16T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Í heilsugæsluátaki sem hófst í dag í Síerra Leóne er áætlað að gefa 1,2 milljón kvenna á aldrinum 15-49 ára bólusetningu gegn stífkrampa og 85 þúsund börn frá 0-59 mánaða munu fá A-vítamín og lyf við ormum í maga."},"page_title":{"text":"Dregið úr ungbarnadauða í Síerra Leóne"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"9aa88d80-091d-586e-82aa-dde25a551938","primary":{"text":{"html":"
Í heilsugæsluátaki sem hófst í dag í Síerra Leóne er áætlað að gefa 1,2 milljón kvenna á aldrinum 15-49 ára bólusetningu gegn stífkrampa og 85 þúsund börn frá 0-59 mánaða munu fá A-vítamín og lyf við ormum í maga.

UNICEF, WHO og aðrir samstarfsaðilar styrkja þetta átak sem mun standa í heila viku. Markmiðið er að draga úr hárri tíðni ungbarnadauða vegna stífkrampa, sem er einn af skaðlegustu sjúkdómunum í landinu. Tíðni ungbarnadauða er sú hæsta í Síerra Leóne eða 167 dauðsföll af 1000 lifandi fæddum.

Með því að útrýma dauða mæðra vegna stífkrampa og vernda ungabörn þeirra verður hægt að draga verulega úr dauðsföllum í landinu. Átakið mun auka vitund almennings á mikilvægi hælsuverndar mæðra og ungabarna og styrkja eftirlit með sjúkdómum í landinu. Átakinu verður fylgt eftir í maí og nóvember.

Stífkrampi er sjúkdómur sem hægt er að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Hins vegar deyja um 180 þúsund nýfædd börn úr stífkrampa árlega í heiminum. Um 30 þúsund mæður deyja árlega vegna sjúkdómsins og er hann valdur að a.m.k. einu af hverjum tuttugu dauðsföllum mæðra.

Í Síerra Leóne má rekja 14% dauðsfalla ungabarna til stífkrampa. Ein orsök er lítið hreinlæti þar sem börn eru fædd, sér í lagi geta börn þá smitast þegar klippt er á naflastrenginn. Eins má rekja smitleið kvenna eða mæðra til óhreinlætis.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N1w"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}