{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/ebolufaraldur-heimt-lif-600-barna","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/ebolufaraldur-heimt-lif-600-barna","uid":"ebolufaraldur-heimt-lif-600-barna","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L3Q","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2019-09-03T15:32:04+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/OWQ5MTQ5NWItMjM4My00N2I4LWJmZDUtNjFkMTMyMzkyNjY1_un0335213.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C148%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/OWQ5MTQ5NWItMjM4My00N2I4LWJmZDUtNjFkMTMyMzkyNjY1_un0335213.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/OWQ5MTQ5NWItMjM4My00N2I4LWJmZDUtNjFkMTMyMzkyNjY1_un0335213.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Nær 600 börn hafa látið lífið af völdum ebólufaraldurs í norðausturhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó. Alls hafa 850 börn smitast af þessari banvænu veiru síðan faraldurinn braust út í ágúst 2018 en heildartala látinna er nú kominn yfir tvö þúsund manns. Sú staðreynd ætti að vekja alla til vitundar um mikilvægi þess að ráða niðurlögum þessa skelfilega smitsjúkdóms, segir Edouard Beigbeder, yfirmaður UNICEF í Afríkuríkinu."},"page_title":{"text":"Ebólufaraldur heimt líf 600 barna"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"361ae787-10f0-5fe6-a102-cd278607e775","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/OWQ5MTQ5NWItMjM4My00N2I4LWJmZDUtNjFkMTMyMzkyNjY1_un0335213.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"735d7e5e-ec8c-56fd-aa5e-1caf326721ba","primary":{"text":{"html":"

Nær 600 börn hafa látið lífið af völdum ebólufaraldurs í norðausturhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó. Alls hafa 850 börn smitast af þessari banvænu veiru síðan faraldurinn braust út í ágúst 2018 en heildartala látinna er nú kominn yfir tvö þúsund manns. Sú staðreynd ætti að vekja alla til vitundar um mikilvægi þess að ráða niðurlögum þessa skelfilega smitsjúkdóms, segir Edouard Beigbeder, yfirmaður UNICEF í Afríkuríkinu.

UNICEF vinnur náið með samstarfsaðilum á svæðinu með það að markmiði að ráða niðurlögum ebólufaraldursins. Það gerir UNICEF með því að:

Upplýsa, vernda og virkja samfélögin. UNICEF vinnur náið með áhrifafólki, trúarleiðtogum, eftirlifendum og fjölmiðlum á svæðinu til að fræða fólk um einkenni, forvarnir og meðhöndlun á sjúkdómnum.

Draga úr útbreiðslu með smitvörnum. UNICEF hefur komið upp handlaugum í meira en 2.500 heilsugæslustöðvum, 2.300 skólum og rúmlega 7.000 mikilvægum samgöngustöðum. Þá hefur Unicef séð um dreifingu á hitamælum og klór til að meðhöndla vatn og gert rúmlega tveimur milljónum manns kleift að nálgast hreint og öruggt drykkjarvatn.

Senda átta næringarsérfræðinga til að veita börnum jafnt sem fullorðnum aðstoð í meðhöndlunarmiðstöðvum fyrir ebólasjúklinga. Þetta er í fyrsta skipti sem slík sérfræðiaðstoð er nýtt til að bregðast við ebólufaraldri og hefur hún mælst vel fyrir.

Starfa í yfir 6.509 skólum vítt og breitt um svæðið og svæði sem skilgreind eru sem hættusvæði og byggja þannig upp verndað umhverfi fyrir börn. Þetta felur í sér að dreifa vatni og hreinlætisvörum. Þá hafa rúmlega 32 þúsund kennarar og skólastjórar og hátt í milljón nemendur fengið fræðslu um ebólaveiruna.

"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"6c029adf-e2cf-565d-aee0-aeec142495fa","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZWI3YTc0ZDktYThjYi00MzBmLThjYTQtZTlkN2EyZjYxMjg4_un0334774.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"cbee1f63-26c3-5870-ab4e-07dfadd7c15b","primary":{"text":{"html":"

„Nú þegar tilfellum fjölgar er mikilvægt að muna að hvert þeirra er ekki bara tölfræði á blaði heldur sonur einhvers, dóttir, móðir, faðir, bróðir eða systir einhvers. Hvert dauðsfall skilur eftir syrgjandi fjölskyldu í sárum og sívaxandi ótta,“ segir Beigbeder. Hann segir lykilatriði í því að ráða niðurlögum faraldursins sé að koma í veg fyrir smit meðal barna enda séu þau hlutfallslega í meirihluta þeirra sem smitast. UNICEF sé að vinna með samstarfsaðilum sínum að því með því að mæta brýnni sem og langtímaþörfum barnanna og fjölskyldna þeirra með ofangreindum leiðum. En betur má ef duga skal segir Beigbeder.

„Raunveruleikinn er sá að við þurfum miklu meiri alþjóðlegan stuðning. Ebólufaraldrar þurfa einstaklega mikla fjárfestingu samanborið við aðra faraldra því það er nauðsynlegt að meðhöndla 100 prósent tilfella með tilheyrandi eftirliti og eftirfylgni. UNICEF þarf 126 milljónir dala til að mæta þörfum barna og samfélaga hér núna og í nánustu framtíð. Eins og er hefur UNICEF aðeins fjármagnað 31 prósent af þeirri upphæð.“

Heimsforeldrar taka virkan þátt í baráttu UNICEF um allan heim, meðal annars í baráttunni við ebólufaraldurinn. Á Íslandi eru yfir 27.000 heimsforeldrar sem hjálpa UNICEF í verkefnum sínum.

Hægt er að skrá sig sem heimsforeldri hér: https://unicef.is/heimsforeldrar
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L3Q"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}