{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/ein-milljon-barna-tharf-tafarlausa-adstod","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/ein-milljon-barna-tharf-tafarlausa-adstod","uid":"ein-milljon-barna-tharf-tafarlausa-adstod","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N1A","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2008-05-22T14:04:11+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"UNICEF telur að ein milljón barna í Mjanmar þurfi á tafarlausri aðstoð að halda. Hættan á að lífshættulegir sjúkdómar taki að breiðast út eykst með hverjum degi."},"page_title":{"text":"Ein milljón barna þarf tafarlausa aðstoð"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"1c4bb994-29d0-5b80-9d34-743546fe0d27","primary":{"text":{"html":"
Neyðarhjálp fyrir fórnarlömb hvirfilbylsins Nargis heldur áfram. Sameinuðu þjóðirnar telja að um tvær og hálf milljón manns þurfi á aðstoð að halda, þar af eru 40 prósent börn. Í bænum Laputta hafa um 30 prósent barna veikst af niðurgangi eða blóðkreppusótt.

Hættan á að lífshættulegir sjúkdómar taki að breiðast út eykst með hverjum degi. Fjöldi fólks sefur á berangri án nokkurrar verndar gegn náttúruöflunum og vatnsból eru flest menguð. Búðir fyrir þá sem misst hafa heimili sín eru óskipulagðar og skortir viðunandi hreinlætisaðstöðu. Þegar það bætist ofan á matarskort er heilsu barna stefnt í mikinn voða; við slíkar aðstæður geta sjúkdómar eins og mislingar valdið mörgum dauðsföllum. Því hefur UNICEF hafið bólusetningarherferð gegn mislingum á svæðinu.

„Ég hræðist mest að stór mislingafaraldur brjótist út á hamfarasvæðunum, sérstaklega í búðum fyrir heimilislausa,“ sagði yfirmaður heilbrigðismála hjá UNICEF, dr. Peter Salama.

Smellið hér til að styrkja!

70 prósent ekki fengið aðstoðÁ mánudaginn hitti James Holmes, aðstoðarframkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna, ráðamenn í herforingjastjórninni í Mjanmar og ræddi við þá um leiðir til að bæta neyðaraðstoðina. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, er væntanlegur til Mjanmar í dag, fimmtudag, til að kynna sér ástandið á hamfarasvæðunum og til að ræða frekar við ráðamenn.

Matvara og lyf berast nauðstöddum á hamfarasvæðunum. Því fer þó fjarri að um sé að ræða nægilegt magn til að mæta hinni miklu þörf bágstaddra á svæðinu. Sameinuðu þjóðirnar telja t.d. að allt að 70 prósent þeirra sem urðu fyrir áhrifum að hvirfilbylnum hafi ekki fengið aðstoð í formi matvæla.

Styrkið neyðarhjálpina í Mjanmar
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N1A"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}