{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/einblina-tharf-a-verst-settu-boernin","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/einblina-tharf-a-verst-settu-boernin","uid":"einblina-tharf-a-verst-settu-boernin","type":"post","prismicId":"X3S8NRIAACMA1MxV","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2016-04-14T08:26:25+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZDIxYWU1NjAtMjI5YS00OGFiLWIyYzAtZDEwNjU5NTQyZThm_report_card_13_3.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C105%2C1021%2C484&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZDIxYWU1NjAtMjI5YS00OGFiLWIyYzAtZDEwNjU5NTQyZThm_report_card_13_3.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=15%2C0%2C989%2C693&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZDIxYWU1NjAtMjI5YS00OGFiLWIyYzAtZDEwNjU5NTQyZThm_report_card_13_3.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=293%2C0%2C433%2C693&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Fjölskyldur þeirra barna sem hafa það verst á Íslandi eru með 38% lægri tekjur en fjölskyldur með meðaltekjur. Þrátt fyrir þetta er Ísland með einna mestan tekjujöfnuð meðal efnameiri ríkja. Þetta fram í skýrslunni „Fairness for Children: A league table of inequality in child well-being in rich countries,“ sem UNICEF birtir í dag og er ætlað að varpa ljósi á hversu langt ríki leyfa verst stöddu börnum sínum að falla frá meðaltalinu. Skýrslan er hluti af Report Card-rannsóknaritaröð UNICEF, sem mælir velferð barna í efnameiri ríkjum heims."},"page_title":{"text":"Einblína þarf á verst settu börnin"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"49fe3dc3-8219-5175-a966-323026a7a4c2","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NDExNDU3MGEtOTgxZC00OTNkLWFhNmMtMjA5YjBjMjQzMmU5_un05814.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C5760%2C3840&w=5760&h=3840","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"56be62da-5aa5-58a4-a81f-54b6650d516d","primary":{"text":{"html":"
Fjölskyldur þeirra barna sem hafa það verst á Íslandi eru með 38% lægri tekjur en fjölskyldur með meðaltekjur. Þrátt fyrir þetta er Ísland með einna mestan tekjujöfnuð meðal efnameiri ríkja. Þetta fram í skýrslunni Fairness for Children: A league table of inequality in child well-being in rich countries, sem UNICEF birtir í dag og er ætlað að varpa ljósi á hversu langt ríki leyfa verst stöddu börnum sínum að falla frá meðaltalinu. Skýrslan er hluti af Report Card-rannsóknaritaröð UNICEF, sem mælir velferð barna í efnameiri ríkjum heims.

„Skýrslan undirstrikar þá staðreynd að börn hér á landi búa við afar ólíkar aðstæður. Stjórnvöld þurfa að einsetja sér að ná til þeirra barna sem hafa það verst til að tryggja að öll börn eigi jafna möguleika,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Í skýrslunni er sjónum beint að þeim börnum sem verst standa í fjórum flokkum. Skoðað er hversu langt fyrir neðan meðaltalið þau 10% barna sem hafa það verst mælast, en horft er til efnahags, menntunar, heilsufars og lífsánægju.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"ab9e656a-8823-52f3-b2a8-720d75a881f9","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"62d86c6c-5ecc-5093-844c-5698a015ae72","primary":{"text":{"html":"
Svipuð rannsókn var birt árið 2010, byggð á gögnum frá 2008, og því gefst tækifæri til að bera saman stöðuna í dag við þá stöðu sem var fyrir tíma alþjóðlegu fjármálakreppunnar. Athygli vekur að bæði Ísland og Svíþjóð, sem í fyrri mælingu komu einna best út, mælast nú fyrir neðan miðju þegar allir flokkarnir fjórir eru teknir saman. Danmörk, Finnland og Noregur skipa sér í efstu þrjú sætin.

Þrátt fyrir að í síðustu mælingu hafi áhrif góðærisins ennþá gætt er umhugsunarefni hvað Ísland fellur um mörg sæti í samanburði við önnur ríki.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"cb70a7a8-063d-5f92-a4a4-04141bfb5b11","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZTMzYzVmM2ItZTE5Ny00OWRhLWFkYzMtMGFlMTgxOGY4ZmNi_report_card_13_4.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C971%2C672&w=971&h=672","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"2d184952-e1a0-5fd9-8264-09719d61613e","primary":{"text":{"html":"
Ef litið er á mælingu á efnahagslegum jöfnuði, versnaði staða verst stöddu barnanna í 19 af 37 ríkjum frá árinu 2008 til 2013. Fram kemur í skýrslunni að Ísland sé eitt þeirra ríkja þar sem stjórnvöld hafi náð hvað mestum árangri í að nýta millifærslur í skattkerfinu til tekjujöfnunar, en þar teljast t.d. barnabætur, húsaleigubætur og vaxtabætur. Ef ekki væri fyrir þessi úrræði væri bilið á milli verst stöddu barnanna og þeirra í miðjunni nærri tvöfalt meira en raunin er.\r
\r
„Þar sem efnahagsleg staða fjölskyldna hefur víðtæk áhrif á börn er mikilvægt að stjórnvöld í efnameiri ríkjum grípi til aðgerða til að draga enn frekar úr efnahagslegum ójöfnuði. Dæmin frá best stöddu ríkjunum sýna að pólitískur vilji og áherslur í stefnumótun eru mikilvæg til að auka jöfnuð,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"738c2849-3875-5668-a9ab-206c93deefb9","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZDIxYWU1NjAtMjI5YS00OGFiLWIyYzAtZDEwNjU5NTQyZThm_report_card_13_3.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1021%2C693&w=1021&h=693","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"b4fd9dff-9ce9-574f-972a-33554c4c4021","primary":{"text":{"html":"
Þegar kemur að því hvernig börn meta eigið heilsufar mælist Ísland neðarlega og hefur lækkað nokkuð frá 2008, er nú í 31. sæti af 35 ríkjum en var í 17. sæti af 24 við síðustu mælingu. Rúm 22% barna á Íslandi segjast finna daglega fyrir einhverjum af eftirfarandi einkennum: Höfuðverk, magaverk, bakverk, depurð, eða því að vera uppstökk.

Í öllum ríkjum í skýrslunni koma unglingsstúlkur verr út úr mælingu á heilsufari en unglingsdrengir, en á Íslandi eru stúlkur 11% líklegri til að kvarta undan eigin heilsufari en drengir. Sami munur á stöðu kynjanna kemur fram þegar þau eru beðin að meta lífsánægju sína. Við 11 ára aldur er lítill munur á kynjunum, en hann eykst þegar þau eru spurð 13 ára gömul og er orðinn nærri tvöfaldur þegar 15 ára unglingar eru spurðir um lífsánægju sína.

„Þessi skýrsla ásamt skýrslunni sem við gáfum út í byrjun árs, Réttindi barna á Íslandi: Börn sem líða efnislegan skort, minna okkur á að við verðum að hafa hagsmuni og velferð allra barna að leiðarljósi,“ segir Bergsteinn Jónsson hjá UNICEF á Íslandi. „Við megum ekki láta neina hópa barna dragast aftur úr.“
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"1ec3cf14-c3b2-5b1d-915a-0adc900eac99","primary":{"text":{"html":""}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S8NRIAACMA1MxV"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}