{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/eitt-af-hverjum-fjorum-boernum-er-i-haettu","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/eitt-af-hverjum-fjorum-boernum-er-i-haettu","uid":"eitt-af-hverjum-fjorum-boernum-er-i-haettu","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBF","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-09-29T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Um 27 milljónir barna og 40 milljónir þungaðra kvenna eru ekki bólusett ár hvert og í 41 landi eru færri börn bólusett í dag en fyrir áratug síðan."},"page_title":{"text":"Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"70dee9d5-a722-59df-b926-bdc88d8ce5c2","primary":{"text":{"html":"
Eitt af hverjum fjórum börnum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Um 27 milljónir barna og 40 milljónir þungaðra kvenna eru ekki bólusett ár hvert og í 41 landi eru færri börn bólusett í dag en fyrir áratug síðan. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, Progress for Children, sem kynnt var í New York í dag.

Mörg lönd hafa ekki náð viðunandi árangri í bólusetningum barna og þungaðra kvenna, þrátt fyrir betra aðgengi að ódýrari bóluefnum, samkvæmt nýrri skýrslu sem UNICEF kynnti í dag.

Meira en 70% barna um heim allan hafa verið bólusett reglulega ár hvert síðan árið 1990. Á sérstöku Barnaþingi SÞ árið 2002 gaf alþjóðasamfélagið skuldbindingu um að a.m.k. 90% barna undir eins árs aldri fengju reglulegar bólusetningar fyrir árið 2010.

Í þessu eintaki af skýrslunni Progress for Children kemur fram að í 103 löndum eru 90% barna bólusett og í öðrum 16 löndum er stöðugum árangri náð. Samt sem áður er árangur í 74 löndum ekki nógu góður. Árlega fæðast 130 milljón börn og bætast við hóp þeirra sem eiga rétt á bólusetningum.

„Áætlað er að bólusetning komi þegar í veg fyrir dauðsföll um tveggja milljóna barna undir fimm ára aldri,“ sagði framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, við kynningu á skýrslunni í New York í dag. „Bólusetning er áhrifaríkasta og ódýrasta (cost-effective) leiðin til að bjarga lífi barna sem við vitum um. Við verðum að vernda þann árangur sem við höfum náð í mörgum löndum og auka árangur okkar í öðrum.“

Um 10,6 milljón börn undir fimm ára aldri deyja árlega. Hægt væri að koma í veg fyrir tvo þriðju þessarra dauðsfalla og þar á meðal 1,4 milljón dauðsföll með einfaldri bólusetningu. Helstu dánarorsakir eru mislingar, flensublóðfíkils-lungnabólga (Haemophilus influenza týpa b), kíghósti (pertussis) og stífkrampi hjá nýfæddum börnum. Koma má í veg fyrir alla þessa sjúkdóma með bólusetningum.

Í nánustu framtíð mun vera hægt að bjarga lífi 1,1 milljón barna til viðbótar þegar ný bóluefni gegn rótavírus og pneumokokkum (pneumococcus), eða niðurgangi og lungnabólgu, verða aðgengileg. Allt í allt væri hægt að draga úr tíðni dauðsfalla meðal barna undir fimm ára aldri um fjórðung með bólusetningum, ef miðað er við takmarkið um að 90% barna fái reglulegar bólusetningar.

„Með því að auka bólusetningar, gera ný bóluefni aðgengileg og tengja bólusetningar við önnur atriði sem bjarga lífum, eins og dreifingu á malaríu-netum, getum við virkilega bætt lífslíkur barna,“ sagði Veneman.

Skýrslan sýnir fram á mikla mismunum milli barna hvað varðar aðgengi að bólusetningum. Árið 2003 voru 90% barna í iðnríkjunum bólusett. Dauðsföll vegna sjúkdóma sem hægt er að bólusetja fyrir í þessum löndum eru nú mjög sjaldgæf. Meirihluti landa í Rómönsku Ameríku og við karabíska hafið, í Mið-og Austur-Evrópu og í fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna, Miðasturlöndum og Norður-Afríku hafa náð árangri. Samt sem áður eru aðeins 52% barna í Vestur- og Mið-Afríku bólusett reglulega og því þarf virkilega að bæta um betur á þessu svæði.

Niðurstöðurnar eru þó ekki alslæmar. Bólusetning hefur aukist mjög mikið í nokkrum fátækum löndum. Sem dæmi voru 84% barna í Eritreu bólusett árið 2003, miðað við 18% árið 1990. Í Níger voru 25% barna bólusett árið 1990, en nú eru 64% bólusett og í Úganda hefur talan hækkað úr 52% yfir í 82%.

Auk þess hefur dauðsföllum vegna mislinga fækkað um næstum helming á síðastliðnum fimm árum, samkvæmt grein sem birtist í læknatímaritinu Lancet fyrir á árinu. Innan fimm ára gætu mislingar orðið sjaldgæfur sjúkdómur í þróunarlöndunum.

UNICEF er leiðandi í bólusetningum barna í heiminum í dag. UNICEF útvegar bóluefni til yfir 40% barna í heiminum og er fjórðungur árlegra útgjalda UNICEF veitt til bólusetninga. Árið 2004 veitti UNICEF meira en 2,8 milljörðum skammta af bóluefnum til barna í yfir 100 löndum. Síðan árið 1988 hefur UNICEF veitt 12 milljörðum skammta af bóluefnum gegn mænusótt, en þeim sjúkdómi hefur nánast verið útrýmt.

UNICEF vinnur með ríkisstjórnum, trúar- og samfélagsleiðtogum og öðrum hjálparsamtökum til að ná til allra barna.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"12afa736-9cc0-5c41-8b0e-22458f30a53b","primary":{"text":{"html":"

"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBF"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}