{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/ekki-val-heldur-skylda-ad-verja-bornin","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/ekki-val-heldur-skylda-ad-verja-bornin","uid":"ekki-val-heldur-skylda-ad-verja-bornin","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L4A","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2019-12-27T11:20:26+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/M2E1ZjlhZWMtNTBiNC00ZDQwLThhYjAtYTliN2FjOWQxOWIw_un0348583.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C148%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/M2E1ZjlhZWMtNTBiNC00ZDQwLThhYjAtYTliN2FjOWQxOWIw_un0348583.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/M2E1ZjlhZWMtNTBiNC00ZDQwLThhYjAtYTliN2FjOWQxOWIw_un0348583.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Eftir níu ár af stríði halda börn í Sýrlandi áfram að upplifa ólýsanlegt ofbeldi, áföll og þjáningar,“ segir Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Átök hafa farið harðnandi í norðvesturhluta Sýrlands að undanförnu og sem fyrr eru það börn, sá hópur sem síst skyldi, sem bera þungan af því."},"page_title":{"text":"Alltaf í skotlínunni: Ekki val heldur ófrávíkjanleg skylda að verja börnin"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"d1558abd-204a-5c99-a840-d20aca522a94","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/M2E1ZjlhZWMtNTBiNC00ZDQwLThhYjAtYTliN2FjOWQxOWIw_un0348583.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"6159efb7-df66-59a7-93db-2efacc458de2","primary":{"text":{"html":"
27. desember 2019 „Eftir níu ár af stríði halda börn í Sýrlandi áfram að upplifa ólýsanlegt ofbeldi, áföll og þjáningar,“ segir Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Átök hafa farið harðnandi í norðvesturhluta Sýrlands að undanförnu og sem fyrr eru það börn, sá hópur sem síst skyldi, sem bera þungan af því.

„Meira en 500 börn létu lífið eða særðust í átökum í norðvesturhluta Sýrlands á fyrstu níu mánuðum þessa árs,“ segir Chaiban og bendir á að desembermánuður nú hafi verið einstaklega blóðugur þar sem að minnsta kosti 65 börn hafi látið lífið eða særst.

Bardagar hafa undanfarið geisað í þéttbýlum svæðum Ma‘arat An-Nu‘man, sunnan Idlib-borgar, sem hafa neytt þúsundir fjölskyldna til að flýja heimili sín norður. Frá 11. desember hafa rúmlega 130 þúsund manns, þar af rúmlega 60 þúsund börn, flúið heimili sín í sunnanverðri Idlib, norðanverðri Hama og vestanverðri Aleppo vegna harðnandi átaka.

„Þessi fólksflutningar hafa sett aukið álag á gestgjafasamfélögin og yfirfullar neyðarbúðir,“ segir Chaiban. „Margar fjölskyldur hafa ekki enn fundið húsaskjól og sofa því undir berum himni.“

„Þessi harðnandi átök og vergangur fólks nú kemur á tíma þegar hitastig á þessum svæðum lækkar hratt, það rignir og flóð eru tíð. Börn sem búa í búðum og öðrum illa einangruðum húsakosti eru úrvinda eftir ótal ferðalög og flótta í kuldanum. Þau eru berskjölduð fyrir veikindum og dauða.“

Chaiban segir að viðhalda verði mannúðaraðstoð á svæðunum svo hægt sé að koma þessum hundruð þúsunda barna um norðvesturhéruðin sem og annars staðar í Sýrlandi til bjargar.

„Það verður að verja börn öllum stundum, líka á átakatímum. Það er ófrávíkjanleg skylda stríðandi aðila, ekki bara val hverju sinni. UNICEF krefst þess að stríðandi fylkingar leiti friðsamlegra úrlausna og setji börnin í fyrsta sætið í eitt skipti fyrir öll.“

Heimsforeldrar taka virkan þátt í baráttu UNICEF um allan heim og leggja sitt að mörkum svo UNICEF nái markmiðum sínum. Á Íslandi eru yfir 27.000 heimsforeldrar sem hjálpa UNICEF í verkefnum sínum með mánaðarlegum framlögum.

Þú getur skráð þig sem Heimsforeldri hér.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L4A"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}