{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/fimm-milljonir-barna-faedst-inn-i-syrlandsstridid","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/fimm-milljonir-barna-faedst-inn-i-syrlandsstridid","uid":"fimm-milljonir-barna-faedst-inn-i-syrlandsstridid","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L8U","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2020-03-16T12:27:02+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZGM3MGM2NTQtN2FlZC00NTVlLTk5ZWEtYWZkNGVmOGMxNDFk_uni310492.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C148%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZGM3MGM2NTQtN2FlZC00NTVlLTk5ZWEtYWZkNGVmOGMxNDFk_uni310492.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZGM3MGM2NTQtN2FlZC00NTVlLTk5ZWEtYWZkNGVmOGMxNDFk_uni310492.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"„Stríðið í Sýrlandi heldur í dag upp á enn ein skammarleg tímamót sín,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í tilefni af því að níu ár eru síðan átök hófust í Sýrlandi. Átök sem enn sér ekki fyrir endann á."},"page_title":{"text":"Sýrlandsstríðið 9 ára: Fimm milljónir barna fæðst inn í stríð"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"f28b5b3e-45f6-532c-a32a-1c3ac6cd83b7","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZGM3MGM2NTQtN2FlZC00NTVlLTk5ZWEtYWZkNGVmOGMxNDFk_uni310492.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"d1ad816f-9a78-58bd-acb7-f83105485f78","primary":{"text":{"html":"

16. mars 2020     „Stríðið í Sýrlandi heldur í dag upp á enn ein skammarleg tímamót sín,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í tilefni af því að níu ár eru síðan átök hófust í Sýrlandi. Átök sem enn sér ekki fyrir endann á.

„Nú þegar stríðið er á tíunda ári munu milljónir barna hefja annan áratug í lífi sínu umkringd stríði, ofbeldi, dauða og flótta. Þörfin fyrir frið hefur aldrei verið brýnni.“

UNICEF segir að rúmlega 4,8 milljónir barna hafi fæðst í Sýrlandi síðan átökin hófust fyrir níu árum síðan. Þar að auki hefur ein milljón barna fæðst á flótta í nágrannalöndum.

Síðan opinberar talningar hófust árið 2014 til ársins 2019 hafa:

Meira en 9 þúsund börn látið lífið eða særst lífshættulega í átökunum.

Nærri 5 þúsund börn- sum allt niður í sjö ára gömul- hafa verið neydd til hermennsku og til að taka þátt í stríðinu.

Nærri 1 þúsund mennta- og heilbrigðisstofnanir hafa sætt árásum.

Þetta eru aðeins opinberar og staðfestar tölur, Raunverulegur fjöldi er að líkindum mun hærri og hræðilegri.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"c90ad4f3-8064-5d8e-905d-52bca33a5527","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NWZiZmVlY2MtN2Q4OS00ZmNiLWEyYWUtYTg5NzVjZTZiYzlm_uni310433.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1025&w=1536&h=1025","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"e67b9541-f708-5a1b-92ad-1af364aebe7c","primary":{"text":{"html":"

„Stríðið í Sýrlandi er eitt það flóknasta í heimi. Átök halda því miður áfram á fjölmörgum stöðum í landinu og harðnandi átök í norðvesturhlutanum hafa skelfilegar afleiðingar fyrir börn. Annars staðar eru mörg börn að ná aftur að tengjast barnæskunni sem þau hafa verið rænd og verið er að endurbyggja líf,“ segir Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og N-Afríku. Hann fylgdi Henriettu Fore í nýafstaðinni heimsókn hennar til Sýrlands.

„Það dylst engum að níu ár af eyðileggingu og átökum hafa farið með landið á heljarþröm. Fjölskyldur hafa sagt okkur að í verstu tilfellunum hafi þær ekki átt annarra kosta völ en að senda börnin í vinnu og gifta dætur sínar ungar. Það eru ákvarðanir sem ekkert foreldri ætti að þurfa að taka í neyð,“ segir Chaiban.

Í norðvesturhluta Sýrlands hafa átök harðnað á ný, sem fyrr segir, og í ofanálag hefur kaldur vetur og slæmt veður gert neyð fólks enn verri og meiri. 960 þúsund manns, þar af 575 þúsund börn, hafa neyðst til að leggjast á vergang og flýja heimili sín síðan í byrjun desember síðastliðnum.

Í norðausturhluta Sýrlands eru minnst 28 þúsund börn frá meira en 60 löndum sem halda til í búðum.

Aðrar afleiðingar níu ára stríðsins eru:

Tveir af hverjum fimm skólum eru ónothæfir þar sem þeir hafa verið eyðilagðir, skemmdir, nýttir til að hýsa fólk á flótta eða þeir teknir yfir af stríðandi fylkingum og nýttir í hernaðarlegum tilgangi.

2,8 milljónir barna eru ekki í skóla í Sýrlandi og nágrannalöndum.

Tvö af hverjum þremur börnum sem vegna fötlunar eða andlegra vandkvæða þurfa á sérstakri aðstoð að halda búa á svæðum þar sem ekkert slíkt er í boði.

Stríðinu hefur fylgt mikil verðbólga og hefur verðið á nauðsynjavöru hækkað tuttugufalt síðan stríðið hófst.

"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"6b005f49-5df3-5819-a7d0-14b583e7f831","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MzIxMjVjMzAtN2RlNS00ZmI2LThkZTctZDNjMDJjOWQ3YmMw_uni310539.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"186658c1-4b90-5ce2-a01e-0a6fe11acd20","primary":{"text":{"html":"

Þetta gerði UNICEF í Sýrlandi í fyrra

UNICEF hefur verið á vettvangi og í framlínunni allt frá upphafi stríðsins og hjá UNICEF á Íslandi hefur verið viðvarandi neyðarsöfnun fyrir börn í Sýrlandi. Við munum aldrei gefast upp eða snúa baki við börnum í neyð. Ásamt samstarfsaðilum hefur UNICEF bara á síðasta ári getað:

Bólusett 750 þúsund börn.

Veitt rúmlega 1 milljón barna félags- og sálfræðiþjónustu.

Gert nærri 3 milljónum barna kleift að stunda formlegt og óformlegt grunnnám.

Tryggt 5,3 milljónum manna öruggt og hreint vatn með bættu veitukerfi.

Útvegað 2 milljónum manna vatn, hreinlætisvörur, hreinlætisaðstöðu og þjónustu.

Fjárþörf UNICEF til að halda áfram lífsnauðsynlegu starfi sínu fyrir börn í Sýrlandi er enn mikil þrátt fyrir stuðning velgjörðarfólks. Við getum meira.

„Eina leiðin til að stöðva krísuna í Sýrlandi er á diplómatískan hátt. Mannúðaraðstoð mun ekki binda enda á stríðið. En hún mun halda lífi í börnum. Við treystum á áframhaldandi gjafmildi styrktaraðila okkar og Heimsforeldra til að halda áfram baráttunni fyrir lífi barna í Sýrlandi,“ segir Chaiban að lokum.

Við erum öll í þessu saman og megum aldrei gefast upp. Stuðningur þinn skiptir raunverulegu máli fyrir börn í neyð. Við minnum á áframhaldandi neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Sýrlandi. Sendu SMS-ið STOPP í númerið 1900 (1.900 kr.)

Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950 eða hér á vefsíðu UNICEF á Íslandi.

"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L8U"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}