{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/fimm-piltar-breyttu-lokaverkefninu-i-otrulegan-fjaroflunarleik","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/fimm-piltar-breyttu-lokaverkefninu-i-otrulegan-fjaroflunarleik","uid":"fimm-piltar-breyttu-lokaverkefninu-i-otrulegan-fjaroflunarleik","type":"post","prismicId":"aimCBhEAACgA9cNc","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-06-10T15:30:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aimCmweQX7-eXLia_Sporkum-af-hjarta-1.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=342%2C41%2C5012%2C2374&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aimCmweQX7-eXLia_Sporkum-af-hjarta-1.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=759%2C0%2C4592%2C3217&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aimCmweQX7-eXLia_Sporkum-af-hjarta-1.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=1764%2C0%2C2012%2C3217&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Strákar í 10. bekk smöluðu saman þjóðþekktum einstaklingum og söfnuðu nærri fjögur hundruð þúsund krónum í neyðarsjóð UNICEF "},"page_title":{"text":"Fimm piltar breyttu lokaverkefninu í ótrúlegan fjáröflunarleik fyrir UNICEF "},"image_text":{"text":"Jonathan, Steinþór, Pétur, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri, Styrmir og Emil á skrifstofu UNICEF á Íslandi í dag. Mynd:UNICEF/Laufey Björk"},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"3f9fda8d-c6cd-5102-93b9-6f44c2978eaa","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Hugmynd sem kviknaði út frá YouTube-áhrifavaldi varð til þess að fimm piltar í 10. bekk Langholtsskóla réðust í ótrúlega metnaðarfullt og umfangsmikið lokaverkefni í skólanum sem á endanum skilaði tæplega 400 þúsund krónum í neyðarsjóð UNICEF á Íslandi. Piltarnir fimm tóku verkefnið alla leið og vöktu þjóðarathygli fyrir „Spörkum af hjarta.“

Vildu styrkja UNICEF og börn

Félagarnir Steinþór, Pétur, Styrmir, Emil og Jonathan voru á heimleið úr skólanum einn daginn þegar YouTube-áhrifavaldarnir Sidemen bárust í tal en sá hópur heldur reglulega góðgerðarleiki í fótbolta. Út frá því kviknaði hugmyndin hjá þessum ungu Þrótturum að gera slíkt hið sama sem lokaverkefni í Langholtsskóla.

Þeir segjast hafa kynnt sér alls konar góðgerðarfélög til að safna fyrir en hafi á endanum valið UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, að þeirra sögn af því að „UNICEF er út um allan heim og vinnur fyrir börn.“

Hinir ungu knattspyrnumenn hófust handa við að senda þjóðþekktu fólki skilaboð á Instagram til að kanna áhuga þeirra á að vera í Stjörnuliðinu í góðgerðarknattspyrnuleik og mæta þar liði þeirra, FC Langó, til styrktar UNICEF.

Fylltu stúkuna og stemmingin ótrúleg

Fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar svöruðu kallinu og úr varð góðgerðarleikurinn Spörkum af hjarta sem fram fór þriðjudaginn 2. júní á AVIS-vellinum í Laugardal. Piltarnir fóru í mikla kynningarherferð á samfélagsmiðlum samhliða skipulagningu leiksins, mættu í viðtöl í fjölmiðlum, létu útbúa búninga með öllu tilheyrandi og úr varð að 530 manns fylltu stúkuna á vellinum og sköpuðu ógleymanlega stemmingu.

Leikurinn sjálfur var taumlaus skemmtun en spilað var á stórum velli í 70 mínútur. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 6-6 og þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að útkljá málin. Þar höfðu unglingarnir í FC Langó betur gegn stjörnumprýddu liði andstæðinganna.

Magnaður árangur og frábært framtak

Þegar upp var staðið höfðu þessir framtakssömu ungu piltar úr Langholtsskóla safnað 390.500 krónum fyrir börn í neyð og UNICEF. Það er ekki á hverjum degi sem skólaverkefni skilar hundruð þúsunda til góðs málefnis, hvað þá að það auki vitund ungs fólks og almennings á starfi UNICEF og mikilvægi þess að láta gott af sér leiða. Þetta tókst þó þeim félögum og þeir Steinþór, Pétur, Styrmir, Emil og Jonathan sýndu að það er meira að segja hægt að gera það í gegnum það sem þeir elska að gera, sem er að spila fótbolta.

Starfsfólk UNICEF á Íslandi færir Steinþóri, Pétri, Styrmi, Emil, Jonathan og öllu því frábæra fólki sem lagði þeim lið, tók þátt, spilaði, þjálfaði, dæmdi og síðasta en ekki síst mætti á leikinn og styrki söfnunina, kærar þakkir fyrir stuðninginn.  Þvílíkir snillingar.

P.S.

Það þarft varla að taka það fram en strákarnir fengu að sjálfsögðu risastórt A í einkunn fyrir lokaverkefnið í Langholtsskóla (og líka frá UNICEF!).
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"aimCBhEAACgA9cNc"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}