{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/flod-i-vestanverdri-og-mid-afriku","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/flod-i-vestanverdri-og-mid-afriku","uid":"flod-i-vestanverdri-og-mid-afriku","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N0e","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2007-09-26T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Óvenju mikil rigning hefur valdið flóðum og sent fjölda fólks á vergang. Aðstæður eru sérstaklega slæmar í vestanverðri og mið-Afríku og beinir UNICEF sjónum sínum að Ghana, Togo og Burkina Faso, en þessi lönd eru talin í mestri þörf fyrir neyðaraðstoð."},"page_title":{"text":"Flóð í vestanverðri og mið-Afríku"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"363df3e9-5a47-5e1e-a861-850bfd13ab52","primary":{"text":{"html":"
Óvenju mikil rigning hefur valdið flóðum og sent fjölda fólks á vergang. Aðstæður eru sérstaklega slæmar í vestanverðri og mið-Afríku og beinir UNICEF sjónum sínum að Ghana, Togo og Burkina Faso, en þessi lönd eru talin í mestri þörf fyrir neyðaraðstoð.

Síðan rigningarnar hófust fyrir fjórum vikum hafa UNICEF og önnur hjálparsamtök aðstoðað fjölda fólks í löndum eins og Máritaníu, Nígeríu og Malí.

Vert er að minnast á það að í Ghana og Tógó hafa flóðin átt sér stað á sérstaklega fátækum svæðum þar sem börn búa við verstu hugsanlegu aðstæður á sviði heilsugæslu og næringar. Að auki koma flóðin á sama tíma og malaríutímabilið er í hámarki. Það mun leiða til þess að vatnið verður gróðrastía fyrir moskítóflugur. Þetta þýðir að þó svo flóðin minnki þá munu hjálparstofnanir þurfa að hafa í huga aðrar hugsanlegar langtíma afleiðingar þeirra.

Neyðaraðgerðir UNICEF

Ghana: Í Ghana eru flóðin mestmegnis í norðurhluta, austur- og vesturhluta landsins og talið er að 260 þúsund manns þurfi hjálp. Hjálparteymi UNICEF hefur verið sent á vettvang og hafa metið aðstæður og þarfir fólks. Áætlanir munu taka mið af tveimur þáttum, þ.e.:
- Fólk hefur misst búfénað sem mun leiða til hækkana í matarverði.
- Teymið metur aðstæður svo að mikil hætta sé á sjúkdómsfaröldrum vegna mengunar vatnsbóla og óhreinlætis.

Heilsugæslu- og sjúkrabyrgðir hafa verið send á svæðið, sem og skólagögn. Þar á meðal eru lyf, vatnshreinsitöflur, hreinlætisvörur fyrir ungabörn, eldunaráhöld, moskító-flugnanet, tjöld, sápur, dúkar og plastmál/fötur. Skólapakkar (1 skólapakki inniheldur skólagögn fyrir 80 nemendur og 1 kennara) hafa verið sendir en fréttir berast um það að skólar, sem gerðir eru úr leir, hafi eyðilagst.

Á sviði vatns- og hreinlætis vinnur UNICEF með ríkisstjórn og öðrum samstarfsaðilum við að forgangsraða aðgerðum og koma af stað áætlun sem mun draga úr möguleikum á sjúkdómsfaröldrum. Þau verkefni sem ráðist verður fyrst í er að skrá þau vatnsból og borholur sem talið er að séu menguð, skoða á hvaða svæði hægt sé að koma upp vatnstönkum og auka fræðslu á hreinlæti meðal íbúanna.

UNICEF hefur áhyggjur af því að börn munu þjást af vannæringu vegna þess að búfénaður hefur minnkað verulega vegna flóðanna. Sömuleiðis voru alvarlegir þurrkar á svæðunum í júní og júlí. Verið er að hrinda af stað áætlun sem mun mæta þessu vandamáli.

Tógó: Síðustu tölur benda til að fórnarlömb flóðanna í Tógó séu um 40 þúsund. Skrifstofa UNICEF í Tógó fékk send neyðargögn á sviði vatns- og hreinlætis frá UNICEF á Fílabeinsströndinni og í Benin. Fimm sjúkrapakkar (1 sjúkrapakki inniheldur sjúkragögn fyrir 10 þúsund manns yfir 3 mánuði) hafa einnig verið sendir og verið er að leita leiða til að kaupa tíu til viðbótar. Auk þess er ætlunin að kaupa heilsugæslu- og hreinlætisvörur sem koma í veg fyrir kólerufaraldur. Landsskrifstofan vinnur náið með Rauða krossinum á sviði vatns- og hreinlætis.

Hætta á malaríu er mjög mikil. Ætlunin er að dreifa 15 þúsund malaríu-flugnanetum fyrir þau 40 þúsund fórnarlömb sem búa á flóðasvæðunum vegna þess að þau heimili þeirra hafa skemmst og sefur fólk t.d. í þaklausum húsum. Tjöld, teppum og dúkum hefur verið dreift.

Um 88 skólar eru illa skemmdir og flóðin hafa því seinkað skólaárinu um mánuð þar sem þessir skólar eru taldir ónothæfir. Um 100 brýr hafa eyðilagst.

Búrkína Fasó: Talið er að fórnarlömb flóðanna séu nærri 50 þúsund manns á 45 svæðum í Búrkína Fasó. UNICEF hefur veitt næringarkex og malaríu-flugnanet.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1N0e"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}