{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/framtid-barna-syrlands","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/framtid-barna-syrlands","uid":"framtid-barna-syrlands","type":"post","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NPR","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2014-01-09T15:40:58+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":""},"page_title":{"text":"Framtíð barna Sýrlands"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"4fd42f12-e834-5a0e-bc2b-d20ca25cd5e8","primary":{"text":{"html":"
Í mars verða liðin þrjú ár frá upphafi átakanna í Sýrlandi. Heil kynslóð barna er að slíta barnsskónum í skugga ofbeldis, flótta og takmarkaðra framtíðarmöguleika. Slíkt getur haft alvarleg og varanleg áhrif á Sýrland og nágrannaríkin.

„Átökin í Sýrlandi nálgast nú enn ein sorgleg tímamót. Við getum ekki setið hjá aðgerðarlaus og horft á heila kynslóð barna týnast í hörmungum stríðsins. Við verðum tafarlaust að grípa til enn róttækari aðgerða ef við ætlum ekki að hætta á að tapa heilli kynslóð af tilvonandi leiðtogum, kennurum, læknum og verkfræðingum og umfram allt friðsömum einstaklingum sem vonin um stöðugt og heilbrigt samfélag veltur á,“ segir Anthony Lake framkvæmdastjóri UNICEF.

Von um betri framtíð

UNICEF, Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), Save the Children, World Vision og fleiri samstarfsaðilar vinna ótrauð að því að vernda réttindi og framtíð þessara barna. Samtökin standa fyrir áframhaldandi og auknu starfi til að tryggja börnum örugga skólagöngu, vernd gegn ofbeldi, sálrænan stuðning og von fyrir framtíðina.

Öll þessi samtök hafa nú hrundið af stað samstilltu átaki til að auka neyðaraðgerðir enn frekar og koma í veg fyrir að framtíð barna Sýrlands glatist í þeim glundroða og hörmungum sem átökin hafa þegar skapað.

Veita þarf börnum aðstoð til að vernda þau fyrir ofbeldi, misbeitingu og misnotkun, menntun til að efla huga þeirra og þroska, og sálrænan stuðning til að hjálpa þeim að vinna úr erfiðri reynslu sinni. Með því að veita þessum börnum hjálp eiga þau betri möguleika á að skapa betri framtíð fyrir sig og fjölskyldur sínar.

„Við verðum að bregðast við – núna.“

Fyrir þær rúmlega 5 milljónir barna sem flúið hafa yfir til nágrannaríkjanna eða eru á vergangi innan Sýrlands, fyrir þær rúmlega 2,3 milljónir manns sem nú hafast við í nágrannaríkjunum verðum við að bregðast við – núna.

„Börn Sýrlands hafa daglega þurft að horfa upp á hrylling og eymd. Draumar þeirra um framtíðina eru í hættu. Við biðjum nú um enn meiri stuðning og samstöðu til að rjúfa þennan vítahring ofbeldis og haturs á svæði sem nú þegar hefur þurft að þola of mikið,“ segir Lake.

Greinargóðar upplýsingar um aðgerðir UNICEF í Sýrlandi og nágrannaríkjunum, sögur og myndir af vettvangi er að finna hér.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NPR"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}