{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/fyrsta-smitid-stadfest-i-syrlandi","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/fyrsta-smitid-stadfest-i-syrlandi","uid":"fyrsta-smitid-stadfest-i-syrlandi","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L3i","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2020-03-24T18:49:51+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZTc3OGNlOTgtZTAwMy00NDRkLTk2MmUtMWZiOTRmNTE5MGQ5_syrland.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C148%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZTc3OGNlOTgtZTAwMy00NDRkLTk2MmUtMWZiOTRmNTE5MGQ5_syrland.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZTc3OGNlOTgtZTAwMy00NDRkLTk2MmUtMWZiOTRmNTE5MGQ5_syrland.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Fyrsta staðfesta smitið af Covid-19 kórónaveirunni er komið fram í Sýrlandi sem vekur áhyggjur um að aðeins sé tímaspursmál áður en veiran berist í yfirfullar flóttamannabúðir. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) varar við því að laskað heilbrigðiskerfi landsins hafa enga burði til að greina né takast á við stóran faraldur eftir níu ár af stríði."},"page_title":{"text":"Fyrsta smitið í Sýrlandi: Ótti við útbreiðslu í yfirfullum flóttamannabúðum"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"32d11512-dedb-55c5-9711-1066c38c8615","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ZTc3OGNlOTgtZTAwMy00NDRkLTk2MmUtMWZiOTRmNTE5MGQ5_syrland.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"b8a3294a-5245-5a4a-a4a6-4fe88165885a","primary":{"text":{"html":"

24. mars 2020  Fyrsta staðfesta smitið af Covid-19 kórónaveirunni er komið fram í Sýrlandi sem vekur áhyggjur um að aðeins sé tímaspursmál áður en veiran berist í yfirfullar flóttamannabúðir. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) varar við því að laskað heilbrigðiskerfi landsins hafa enga burði til að greina né takast á við stóran faraldur eftir níu ár af stríði.

Óttinn nú beinist ekki síst að viðkvæmum svæðum í norðvestur– og norðausturhluta Sýrlands þar sem hundruð þúsunda hafa flúið heimili sín síðustu mánuði og átök hafa harðnað undanfarið.

Í Idlib-héraði í norðvesturhlutanum eru um 900 þúsund manns sem búa í tímabundnum og yfirfullum flóttamannabúðum, tjöldum, skólum, yfirgefnum verksmiðjum og þar af er ríflega helmingurinn börn.

Þessi ótti um varnarleysi Sýrlendinga gagnvart faraldrinum á einnig við um flóttamannabúðir í nágrannalöndum enda mannmergðin þar mikil og hreinlæti af skornum skammti. UNICEF hefur varað við því að skelfingarástand geti skapast í flóttamannabúðum á Grikklandi en stór hluti flóttamanna þar kemur frá Sýrlandi.

Á grísku eyjunni Lesbos eru til dæmis Moria-flóttamannabúðirnar sem hafa pláss fyrir 2.800 manns. Þar eru nú 19 þúsund manns. Engum dylst hversu fljótt Covid-19 myndi breiðast út við svo skelfilegar aðstæður þar sem börn, á annað þúsund fylgdarlaus, hafa ekki fullnægjandi aðgang að hreinu vatni, hreinlætisvörum og húsnæði. Nær ógjörningur yrði fyrir íbúa í Moriu að verjast veirunni við þær aðstæður sem þar eru. UNICEF hefur því enn á ný ítrekað áskorun sína um að allt flóttafólk verði flutt yfir á meginlandið eins fljótt og auðið er.

Þetta er UNICEF að gera til að bregðast við COVID-19 faraldrinum:

Grípum til nauðsynlegra aðgerða á starfsstöðvum UNICEF til að koma í veg fyrir smit og vinna gegn útbreiðslu með sóttvörnum. Meðal annars með því að útvega hreint vatn, hreinlætisvörur og heilbrigðisþjónustu. Við vitum öll hversu handþvottur er mikilvægur nú um stundir.

Áreiðanleg upplýsingagjöf til almennings og virkjun samfélaga til aðgerða. Barátta gegn rangupplýsingum og falsfréttum.

Vernd barna, þar á meðal félags- og sálfræðiþjónusta.

Að tryggja að börn hafi aðgang að samfelldri menntun og flosni ekki upp frá námi við þær aðstæður sem nú eru.

UNICEF þarf á þínum stuðningi að halda til að ná til og vernda þennan viðkvæma hóp barna og fjölskyldna þeirra við þessar erfiðu aðstæður gegn heimsfaraldri Covid-19 kórónaveirunnar. Þú getur lagt þitt af mörkum með því að senda SMS-ið BARN í númerið 1900 (1.900 kr.).

Þú getur einnig styrkt söfnun UNICEF á Íslandi með framlagi að eigin vali hér.

"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L3i"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}