{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/gaza-fjogur-born-drepin-voruhus-eydilagt-og-vatnsveita-skemmd","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/gaza-fjogur-born-drepin-voruhus-eydilagt-og-vatnsveita-skemmd","uid":"gaza-fjogur-born-drepin-voruhus-eydilagt-og-vatnsveita-skemmd","type":"post","prismicId":"apFVoBIAACkACG4g","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-08-28T09:34:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTg4ZjJjZTItOWEzNS00NzhkLTkxYzktMGE0NmFmMGU3OGYw_black_1x1_icelandic.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C296%2C1080%2C512&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTg4ZjJjZTItOWEzNS00NzhkLTkxYzktMGE0NmFmMGU3OGYw_black_1x1_icelandic.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C182%2C1080%2C757&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTg4ZjJjZTItOWEzNS00NzhkLTkxYzktMGE0NmFmMGU3OGYw_black_1x1_icelandic.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=188%2C0%2C676%2C1080&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"„Það er verið að drepa og særa börn og á sama tíma eyðileggja nauðsynlega þjónustuinnviði og lífsnauðsynleg hjálpargögn.“ – Edouard Beigbeder"},"page_title":{"text":"Gaza: Fjögur börn drepin, vöruhús fullt af næringarfæði eyðilagt og vatnsveita UNICEF skemmd í árásum"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"0397f567-ebb9-59fd-84b5-e3802451d5ec","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Minnst fjögur börn hafa látið lífið og fjölmörg særst í árásum á Gaza-ströndinni síðastliðna daga. Vöruhús var m.a. eyðilagt sem hýsti hjálpargögn á borð við meðferðarfæði fyrir vannærð börn, og þá skemmdist vatnsveitustöð á vegum UNICEF verulega.

Börnin sem drepin voru í árásunum voru tveir drengir, tveggja og fjögurra ára, 10 ára stúlka sem var í tjaldi þegar hún varð fyrir skoti og 16 ára drengur sem lést af áverkum eftir loftárás.

Þann 25. ágúst særðust þrjú börn eftir að hafa orðið fyrir skotum og tvö 11 ára gömul börn særðust af völdum sprengjubrota. Áverkarnir voru það alvarlegir að börnin verða aldrei söm, að því er fram kemur í fréttatilkynningu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í dag.

Þennan sama dag var vöruhús með hjálpargögnum gjöreyðilagt í loftárás. Þar var geymt næringarfæði sem notað er til meðferðar á vannærðum börnum fyrir andvirði tæplega 100 milljóna króna. Þessi lífsnauðsynlegu hjálpargögn átti að nota til að styðja við ríflega 40 þúsund börn á aldrinum 6-23 mánaða og tæplega 5 þúsund barnshafandi konur og konur með börn á brjósti.

Þann 24. ágúst síðastliðinn urðu svo miklar skemmdir á vatnsbirgða- og afsöltunarstöð UNICEF í Deir Al Balah svæðinu eftir loftárás. Rúmlega 4.000 manns, þar af 2.000 börn, reiða sig á hreint og öruggt drykkjarvatn frá stöðinni. UNICEF og samstarfsaðilar hafa brugðist við með að flytja vatnstankabifreiðar á svæðið til að mæta þörfum fjölskyldna.

„Það er verið að drepa og særa börn og á sama tíma eyðileggja nauðsynlega þjónustuinnviði og lífsnauðsynleg hjálpargögn. Það eykur aðeins á þjáningu barna og fjölskyldna þeirra sem þegar berjast fyrir lífi sínu við núverandi aðstæður,“ segir Edouard Beigbeder, svæðisstjóri UNICEF í Mið-Austurlöndum.

UNICEF krefst þess enn á ný að alþjóðleg mannúðarlög og mannréttindalög verði virt að fullu, sérstaklega er kveða á um vernd barna og réttinda þeirra, borgarlega innviða og nauðsynlegrar þjónustu sem börn þurfa á að halda til að lifa af. Og að skjótt, öruggt og óhindrað aðgengi mannúðaraðstoðar sé tryggt.

Börnin á Gaza þurfa þinn stuðning.

Hringdu í 907-3014 og gefðu 3.000 krónur.

Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102015 / Kennitala: 481203-2950

Við tökum einnig við styrkjum í gegnum AUR appið í númerið: 123 789 6262 eða @unicef.

"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"apFVoBIAACkACG4g"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}