{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/haiti-tiu-ar-fra-skjalftanum","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/haiti-tiu-ar-fra-skjalftanum","uid":"haiti-tiu-ar-fra-skjalftanum","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L2o","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2020-01-08T11:55:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MDU5MDcyZTAtYzg0Zi00ZmQ0LWJlYWQtODdlZGI0NWY2NDQw_uni79234.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C146%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MDU5MDcyZTAtYzg0Zi00ZmQ0LWJlYWQtODdlZGI0NWY2NDQw_uni79234.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=39%2C0%2C1457%2C1021&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MDU5MDcyZTAtYzg0Zi00ZmQ0LWJlYWQtODdlZGI0NWY2NDQw_uni79234.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C639%2C1021&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Þann 12. janúar næstkomandi verða tíu ár síðan jarðskjálfti af stærðinni 7 lagði stóra hluta Haítí í rúst og gjöreyðilagði mikið af viðkvæmum innviðum þjóðarinnar. Skjálftinn stóri átti upptök sín um 25 kílómetra frá Port-au Prince og fylgdu margir eftirskjálftar í kjölfarið, sumir allt að 5,9 að styrk."},"page_title":{"text":"Haítí: Áratugur í skugga skjálftans"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"8caec951-62e2-5eb8-975c-470c04e51720","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MDU5MDcyZTAtYzg0Zi00ZmQ0LWJlYWQtODdlZGI0NWY2NDQw_uni79234.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1021&w=1536&h=1021","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"14cc4cac-aee0-55a7-ab54-127be0c468d1","primary":{"text":{"html":"
8. janúar 2020  Þann 12. janúar næstkomandi verða tíu ár síðan jarðskjálfti af stærðinni 7 lagði stóra hluta Haítí í rúst og gjöreyðilagði mikið af viðkvæmum innviðum þjóðarinnar. Skjálftinn stóri átti upptök sín um 25 kílómetra frá Port-au Prince og fylgdu margir eftirskjálftar í kjölfarið, sumir allt að 5,9 að styrk. Enn liggur ekki fyrir nákvæmlega hversu margir létu lífið í náttúruhamförunum en áætlanir gera ráð fyrir að það séu upp undir hundrað þúsund manns, þó mun hærri tölur hafi vissulega verið nefndar.

Tíu árum síðar er Haítí enn eyríki í skugga skjálftans og áskoranirnar þar ótalmargar.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"245e0d05-a61d-5557-b4b8-a2fd68f5a156","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MmUzNDMxN2UtMzk4Zi00ZDQwLTg4NjgtYjE1YjRhNDgzMjdh_uni100300.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"3126fe95-30be-5bf0-97ff-87c6d9542abd","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"2d1ffcd7-b456-53fe-8f20-881654c4cbd0","primary":{"text":{"html":"
Strax eftir skjálftann stóra, þökk sé nær fordæmalausum stuðningi, gat UNICEF brugðist skjótt við og sent starfsfólk sitt á hamfarasvæðin til að bregðast við, bjarga lífum, veita neyðaraðstoð, hreint vatn, hreinlætisaðstöðu, mat, skjól og heilbrigðisþjónustu. Þá var eitt stærsta verkefni UNICEF að annast og styðja börn sem orðið höfðu viðskila við foreldra sína eða forráðamenn. UNICEF hefur, ásamt samstarfsaðilum, haldið áfram mikilvægu starfi í þágu barna á Haítí allar götur síðan.

Börn og fjölskyldur á Haítí eiga þó enn í vök að verjast. Haítí er eitt allra fátækasta ríki veraldar. Af 11 milljónum íbúa lifa 6 milljónir undir fátæktarmörkum, sem miðast við 2.41 Bandaríkjadali á dag.  2,5 milljónir búa við sára fátækt, sem miðast við 1,23 dali á dag. UNICEF telur að 4,6 milljónir manna, þar af 1,9 milljónir barna, þurfi á mannúðaraðstoð að halda.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"24bd1c39-207b-5979-a29f-4c4609446090","primary":{"text":{"html":""}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"15893569-07ee-5049-b27d-1b6fe1dbbe36","primary":{"text":{"html":"
Árið 2019 var íbúum Haítí afar erfitt erfitt. Viðkvæmt og óstöðugt efnahags- og stjórnmálaumhverfi, innanlandsátök, versnandi fæðuöryggi, vannæring og smitsjúkdómafaraldrar hafa gert lítið til að hjálpa til við að endurreisa samfélögin. Í febrúar, september og október síðastliðnum var ríkinu hreinlega lokað (e. countrywide shutdown) vegna ástandsins og aðgengi fólks að grunnþjónustu á borð við spítala, heilbrigðisstofnanir, skóla og félagsþjónustu því takmarkað verulega. Sem betur fer hefur ákveðið jafnvægi náðst og börn hafa getað sótt skóla á ný. En betur má ef duga skal enda rekur Haítí lestina meðal ríkja í Karíbahafi og Suður-Ameríku þegar kemur að réttindum barna.

UNICEF ætlar hins vegar ekki að gefast upp í baráttu sinni fyrir öryggi, velferð og lífi barna og ætlar sér að starfa með stjórnvöldum og samstarfsaðilum til að ná til barna í viðkvæmri stöðu sem þurfa á aðstoð að halda.

UNICEF hefur sett sér það markmið að safna tæplega 19 milljónum dala fyrir starfsemi sína á Haítí í þágu barna og fjölskyldna á árinu 2020.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"a5fffea5-6ec2-5e44-b218-7e4581c49915","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MDgxODBhNDEtN2Q3Yi00Yjc2LWE3OWUtZjQyYjdkYmY3NTdl_uni78200.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L2o"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}