{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/heimsforeldrar-_-soefnunaratak-barnahjalpar-sameinudu-thjodanna","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/heimsforeldrar-_-soefnunaratak-barnahjalpar-sameinudu-thjodanna","uid":"heimsforeldrar-_-soefnunaratak-barnahjalpar-sameinudu-thjodanna","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBt","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2004-09-29T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Um þessar mundir senda landsnefnd UNICEF á Íslandi og frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari heimsforeldra, bréf til allra heimila landsins þar sem Íslendingum er boðið að gerast heimsforeldrar. Heimsforeldrar eru öflugt stuðningsnet fyrir þurfandi börn um allan heim sem fólk getur orðið hluti af með mánaðarlegu fjárframlagi."},"page_title":{"text":"Heimsforeldrar – söfnunarátak Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"eba7a4b5-7083-5582-93da-6bce3d88cea8","primary":{"text":{"html":"
Um þessar mundir senda landsnefnd UNICEF á Íslandi og frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari heimsforeldra, bréf til allra heimila landsins þar sem Íslendingum er boðið að gerast heimsforeldrar. Heimsforeldrar eru öflugt stuðningsnet fyrir þurfandi börn um allan heim sem fólk getur orðið hluti af með mánaðarlegu fjárframlagi. Þú getur skráð þig með einföldum hætti á heimasíðunni eða núna í síma 575 1520.

Við hjá UNICEF Ísland viljum með þessu hvetja Íslendinga til að styðja við bakið á börnum sem minna mega sín í heiminum og sýna hvað er hægt að gera mikið með einlægri samstöðu og vilja til að hjálpa.

Landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi er sjálfseignarstofnun sem var stofnuð í mars á þessu ári. Hún miðar að því að kynna UNICEF og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, og styrkja hin margþættu verkefni UNICEF með fjáröflun. Barnahjálpin er sjálfstæð stofnun sem styðst einungis við frjáls framlög frá ríkisstjórnum, fyrirtækjum og ekki síst einstaklingum.

UNICEF var stofnað árið 1946 og er einn stærsti og virtasti sjóður innan Sameinuðu þjóðanna. Í dag starfa um 7 þúsund manns í 158 löndum á vegum UNICEF. Allt starfið miðar að því að fylgja kjörorðum UNICEF:

Tryggjum hverju barni
heilsuvernd, menntun, jafnrétti, umhyggju
EFLUM MANNÚÐ

Nánari upplýsingar er að finna í síma 552 6300.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OBt"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}