{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/heimurinn-enn-haettulegur-fyrir-stulkur","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/heimurinn-enn-haettulegur-fyrir-stulkur","uid":"heimurinn-enn-haettulegur-fyrir-stulkur","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L4U","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2020-03-06T09:54:24+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MjhkZTA2NWItOWViYy00ZDc4LWE2MzMtYjQ1YzFhNTBiYTUx_uni235957.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C147%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MjhkZTA2NWItOWViYy00ZDc4LWE2MzMtYjQ1YzFhNTBiYTUx_uni235957.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1459%2C1022&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MjhkZTA2NWItOWViYy00ZDc4LWE2MzMtYjQ1YzFhNTBiYTUx_uni235957.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=448%2C0%2C639%2C1022&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Fleiri stúlkur stunda nú nám og haldast í námi en nokkru sinni fyrr. En þrátt fyrir glæsilegar framfarir í menntamálum kvenna hefur það litlu skilað í að skapa jafnara og ofbeldisminna umhverfi fyrir stúlkur Þetta kemur fram í nýrri stöðuskýrslu UNICEF, Plan International og UN Woman í dag."},"page_title":{"text":"Aldarfjórðungi síðar er heimurinn enn hættulegur staður fyrir stúlkur"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"bff98e14-d01f-565a-b22d-7d02707bbb7f","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MjhkZTA2NWItOWViYy00ZDc4LWE2MzMtYjQ1YzFhNTBiYTUx_uni235957.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1022&w=1536&h=1022","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"891c4b22-ed9e-53b5-8e11-4c6e663c9649","primary":{"text":{"html":"

Fleiri stúlkur stunda nú nám og haldast í námi en nokkru sinni fyrr. En þrátt fyrir glæsilegar framfarir í menntamálum kvenna hefur það litlu skilað í að skapa jafnara og ofbeldisminna umhverfi fyrir stúlkur Þetta kemur fram í nýrri stöðuskýrslu UNICEF, Plan International og UN Woman.

Skýrslan, sem birtist nú fyrir Alþjóðlegan baráttudag kvenna þann 8. mars næstkomandi, greinir frá því að á heimsvísu hefur stúlkum utan skóla fækkað um 79 milljónir á síðustu tveimur áratugum. Það sem meira er þá urðu stúlkur líklegri til framhaldsnáms en strákar á síðustu tíu árum.

En ofbeldi gegn konum og stúlkum er enn of algengt. Svo dæmi sé tekið þá voru konur og stúlkur 70 prósent allra mansalsþolenda á heimsvísu árið 2016. Ein af hverjum 20 stúlkum á aldrinum 15-19 ára, eða um 13 milljónir, hefur verið nauðgað á lífsleiðinni.

Óefnd loforð

„Fyrir 25 árum síðan gáfu ríkisstjórnir um allan heim stúlkum og konum loforð sem aðeins hefur verið staðið við að hluta. Það hefur tekist að skrapa saman nægum pólitískum vilja til að koma fleiri stúlkum í nám en það hafa orðið vandræðalegar vanefndir á því að veita þeim nægilega hæfni og stuðning til að móta ekki aðeins sína eigin framtíð heldur lifa við öryggi og með reisn,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF.

„Aðgengi að menntun er ekki nóg. Við verðum að breyta framkomu og hegðun fólks gagnvart stúlkum. Raunverulegt jafnrétti mun aðeins nást þegar allar stúlkur eru öruggar fyrir ofbeldi, frjálsar til að njóta réttinda sinna og njóta jafnra tækifæra í lífinu,“ segir Fore.

Stöðuskýrslan, sem ber yfirskriftina A New Era for Girls: Taking stock on 25 years of progress, er gefin út í tengslum við átakið Generation Equality á 25 ára afmæli Peking-sáttmálans, sem markaði tímamót í réttindabaráttu stúlkna og kvenna.

„Það er áríðandi að við látum stjórnvöld axla ábyrgð skuldbindingu sinni við Peking-sáttmálann og þessi skýrsla sýnir okkur heildstætt hvernig heimurinn er fyrir stúlkur 25 árum seinna,“ segir Anne-Birgitte Albrectsen, framkvæmdastjóri Plan International. „Unglingsstúlkur sérstaklega sæta aukinni mismunun vegna aldurs síns og kyns, eru jaðarsettar í samfélögum og haldið utan ákvarðanatöku. Ósýnilegar í opinberri stefnumótun. Valdefling unglingsstúlkna hefur í för með sér þreföld jákvæð áhrif. Á stúlkurnar í dag, þegar þær verða fullorðnar og næstu kynslóð stúlkna á eftir þeim. Ef okkur mistekst að taka á og binda enda á þetta ójafnrétti sem stúlkur um allan heim standa frammi fyrir munum við eiga litla möguleika á að ná jafnréttisákvæði Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2030,“ segir Albrectsen.

„Síðan í Peking 1995 þar sem fókusinn var fyrst settur á stúlkubörn höfum við ítrekað heyrt stúlkur standa upp fyrir réttindum sínum og kalla eftir ábyrgð. En heimsbyggðin hefur ekki haldið í við væntingar þeirra um ábyrga stjórnun, líf án ofbeldis og vonina um fjárhagslegt sjálfstæði,“ segir Phumzile Mlambo-Ngcuk, framkvæmdastýra UN Women.

„Svo lengi sem konur og stúlkur þurfa að eyða þrefalt meiri tíma og orku en menn við að hugsa um heimilið er ómögulegt að ná markmiðum um jöfn tækifæri til menntunar og starfa. Það er öllum fyrir bestu að þetta breytist. Að því ógleymdu að sú hæfni og þekking sem stúlkur afla sér þarf að hæfa nýjum áherslum á atvinnumarkaði sem verður sífellt tæknivæddari og stafrænn og binda verður enda á ofbeldi gegn þeim,“ bætir Mlambo-Ngcuk við.

Margvíslegar hættur á nýrri öld

Hættur steðja að stúlkum úr öllum áttum á 21. öldinni. Á netinu, í kennslustofum, heima og í samfélaginu með tilheyrandi afleiðingum. Skýrslan greinir frá því að barnahjónabönd og afskræming á kynfærum stúlkna hafi áhrif á milljónir þeirra. Á hverju ári eru 12 milljónir stúlkna giftar og fjórar milljónir standa frammi fyrir hættunni á kynfæralimlestingu. Á heimsvísu eru stúlkur á aldrinum 15-19 ára jafnlíklegar til að réttlæta heimilisofbeldi gegn konum og strákar á sama aldri.

Skýrslan beinir einnig sjónum sínum að neikvæðri þróun í næringu og heilsu stúlkna sem margar hverjar kunna að hafa þótt óhugsandi fyrir 25 árum síðan. Óhollt mataræði og aðgangshörð markaðssetning sem beint er að börnum hafa orðið til þess að frá árinu 1995 til 2016 hefur yfirþyngd hjá stúlkum á aldrinum 5-19 ára tvöfaldast.

Áhyggjur af andlegri heilsu stúlkna samhliða aukinni tækninotkun hafa vaxið síðustu 25 árin. Samkvæmt skýrslunni eru sjálfsvíg nú önnur helst dánarorsök stúlkna á aldrinum 15-19 ára í heiminum. Stúlkur eru í enn í aukinni hættu gagnvart kynsjúkdómum. 970 þúsund stúlkur á aldrinum 10-19 ára eru HIV-smitaðar í dag samanborið við 740 þúsund árið 1005. Stúlkur á þessu aldursbili eru 3 af hverjum 4 smituðum í heiminum.

Skýrslan kallar eftir og hvetur til eftirfarandi aðgerða:

Auka tækifæri stúlkna burtséð frá uppruna, kynþætti, fjárhags- og samfélagsstöðu og hvetja þær til að vera djarfir og metnaðarfullir breytingasmiðir og lausnahönnuðir. Virkja raddir þeirra, skoðanir og hugmyndir um málefni er varða líkama þeirra, samfélög, menntun og framtíð. Engar ákvarðanir fyrir stúlkur án stúlkna.

Auka fjárfestingu í stefnumálum og verkefnum tengdum stúlkum sem flýta fyrir framþróun þeirra í takt við raunveruleika dagsins í dag og fjórðu iðnbyltingarinnar. Binda enda á kynbundið ofbeldi, barnahjónabönd, kynfæralimlestingar og tryggja að stúlkur hafi aðgang að upplýsingum og þjónustu varðandi heilsu sína.

Stórauka þarf fjárfestingu í rannsóknum og gagnaöflun sem og greiningu. Engin leið er að draga fram hvernig við erum að standa okkur í skuldbindingum okkar gagnvart stúlkum ef gæðagögn liggja ekki fyrir.

Sækja má skýrsluna í heild sinni hér á vef UNICEF:
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L4U"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}