{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/hin-fjoegurra-ara-gamla-su-sze-safnar-8800-bandarikjadoelum-fyrir-boern-i-malasiu","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/hin-fjoegurra-ara-gamla-su-sze-safnar-8800-bandarikjadoelum-fyrir-boern-i-malasiu","uid":"hin-fjoegurra-ara-gamla-su-sze-safnar-8800-bandarikjadoelum-fyrir-boern-i-malasiu","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1N-1","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-08-16T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Malasíubúar eru stoltir af hinni fjögurra ára gömlu Kam Su-Sze en hún hefur safnað meira en 33.000 malasískum ringitum (um 615.000 íslenskum krónum) fyrir UNICEF, með því að selja póstkort sem hún sjálf hafði myndskreytt."},"page_title":{"text":"Hin fjögurra ára gamla Su-Sze safnar 8.800 Bandaríkjadölum fyrir börn í Malasíu"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"dc63ae08-94cd-56ec-831c-31cc12f75a0e","primary":{"text":{"html":"
Malasíubúar eru stoltir af hinni fjögurra ára gömlu Kam Su-Sze en hún hefur safnað meira en 33.000 malasískum ringitum (um 615.000 íslenskum krónum) fyrir UNICEF, með því að selja póstkort sem hún sjálf hafði myndskreytt.
Með hjálp móður sinnar, Kim Tho, framleiddi Su-Sze 3.000 póstkortapakka, hver með 5 póstkortum af mismunandi gerð. Póstkortin voru seld í búðum og á mörkuðum um alla Malasíu.
Póstkort Su-Sze seldust gífurlega vel og hin góðhjartaða litla stúlka gaf, ásamt foreldrum sínum, allan ágóðann til UNICEF.
Su-Sze sýndi hæfileika sína og ákveðni á unga aldri. Hún var til dæmis byrjuð að lesa þegar einungis þrír mánuðir höfðu liðið frá tveggja ára afmæli hennar. Hún sýndi einnig snemma mikla hæfileika í myndlist.
Löngun Su-Sze litlu til þess að hjálpa börnum sem eiga um sárt að binda hófst eftir að hún og fjölskylda hennar sluppu heil undan flóðbylgjunni sem skall á Phuket á Taílandi, þar sem þau voru í jólaleyfi í fyrra.

„Su-Sze er einstök stúlka sem setur aðra í forgang,” sagði Gaye Phillips, fulltrúi UNICEF í Malasíu við viðtöku fjárframlagsins frá Su-Sze og fjölskyldu hennar. „Það skipti ekki máli hversu lítill þú kannt að vera – þú getur skipt sköpum í heiminum.”
Framlag Su-Sze mun nýtast til verkefna UNICEF með börnum í Malasíu sem unnin eru í samvinnu við stjórnvöld þar í landi sem og önnur innlend og erlend hjálparsamtök.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1N-1"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}