{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/hin-tyndu-boern_-uganda","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/hin-tyndu-boern_-uganda","uid":"hin-tyndu-boern_-uganda","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OCN","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2004-07-19T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"UNICEF vakti í dag athygli á eymd þúsunda barna sem hafa verið rænd frá heimilum sínum af uppreisnarhernum, LRA, í Norður-Úganda og gerð að stríðsmönnum og kynlífsþrælum. Þessi harmleikur hefur afmáð hugmyndina um áhyggjulausa og frjálsa barnæsku í huga þúsunda barna og unglinga í Úganda."},"page_title":{"text":"Hin ,,týndu börn” Úganda"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"c88946de-efe1-5c45-b40c-11705d46c866","primary":{"text":{"html":"
UNICEF vakti í dag athygli á eymd þúsunda barna sem hafa verið rænd frá heimilum sínum af uppreisnarhernum, LRA, í Norður-Úganda og gerð að stríðsmönnum og kynlífsþrælum. Þessi harmleikur hefur afmáð hugmyndina um áhyggjulausa og frjálsa barnæsku í huga þúsunda barna og unglinga í Úganda. UNICEF skoraði á stjórnvöld í Úganda og á alþjóðasamfélagið til að koma í veg fyrir þetta ,,stríð gegn börnum”.

,,Heimurinn er að vakna við þá martröð sem á sér stað í Súdan, en hann má ekki gleyma harmleiknum í nágrannaríkinu Úganda, þar sem um 12 þúsund drengjum og stúlkum hefur verið rænt frá heimilum sínum af LRA (Lord’s Resistance Army) síðust tvö árin,” sagði framkvæmdastjóri UNICEF, Carol Bellamy.

Þó svo meira en 1,2 milljónir manna hafa horfið í átökunum í Úganda þá eru þessi átök ólík öllum öðrum því þau er beinlínis hægt að kalla ,,stríð gegn börnum,” segir Bellamy í grein sem birtist í Herald Tribune á föstudaginn og í fréttum UNICEF í dag, 19.júlí.

Hún segir í greininni að hún hafi séð marga hræðilega hluti í starfi sínu hjá UNICEF, en ,,fátt hefur verið eins áhrifamikið og að sjá barnaræningjana sem eru á ferli í Norður-Úganda,” segir Bellamy. ,,Það eru 44 þúsund börn á landsbyggðinni sem flýja hverja einustu nótt til borgarinnar frá árásum uppreisnarhersins.”

Árásirnar flokkast sem gróf brot á mannréttindum. ,,Börn eru mjög oft neydd til að drepa foreldra sína eða önnur börn. Börnin, sum allt niður í sex ára, eru notuð sem kynlífsþrælar fyrir herinn, látin vinna sem þrælar eða neydd til að ganga í herinn. LRA álítur að börn eigi að byrja í stríði við sjö ára aldur,” bætir Bellamy við.

Verndun barna er eitt af megináherslum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, þ.e.a.s. að vernda börn gegn stríði, vinnuþrælkun og kynferðismisnotkun. Því miður eru áhyggjulaus æskuár ekki sjálfgefinn hlutur á mörgum stöðum í heiminum. Í því sambandi leggur UNICEF m.a. áherslu á að öll börn séu skráð svo hægt sé að fylgjast með þeim og grípa til aðgerða ef þau hverfa.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OCN"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}