{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/hjalpargoegn-til-barna-innan-syrlands","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/hjalpargoegn-til-barna-innan-syrlands","uid":"hjalpargoegn-til-barna-innan-syrlands","type":"post","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NNL","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2013-10-28T14:01:10+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":""},"page_title":{"text":"Hjálpargögn til barna innan Sýrlands"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"01d844de-8f72-5ac2-9360-e622f07114ba","primary":{"text":{"html":"
Leiguflug á vegum UNICEF lenti í Líbanon í síðustu viku með nauðsynleg hjálpargögn, lyf og matvæli, fyrir börn innan Sýrlands. Í vélinni voru yfir 28 tonn af hjálpargögnum, þar á meðal 265.000 skammtar af MMR-bóluefni (gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum) og vítamínbættur ungbarna- og barnamatur.

„Þessi hjálpargögn eru sérstaklega mikilvæg til að ná til barna sem hafa misst af reglubundnum bólusetningum vegna stríðsástandsins. Að sama skapi mun vítamínbætti barnamaturinn hjálpa ungum börnum sem þurfa sárlega á næringu að halda,“ segir Youssouf Abdel-Jelil, talsmaður UNICEF í Sýrlandi.

Veturinn er í nánd

Endir á átökunum er ekki í sjónmáli og aðstæður barna verður sífellt erfiðari. Starfsfólk á vegum UNICEF sem hefur ferðast á milli sjúkrahúsa í borgum Sýrlands greinir frá fjölda barna sem komið er með til aðhlynningar á sjúkrahúsin vegna bráðavannæringar.  Álagið sem fylgir stríðsástandi og áhrif hækkandi matvælaverðs auk matvælaskorts á sumum svæðum hefur nú þegar stefnt lífi ótal barna í hættu. Komandi vetur mun gera ástandið enn alvarlegra.

Þú getur hjálpað!

UNICEF leggur kapp á að koma vítamínbættum mat til yfir 50.000 barna á næstu þremur mánuðum á þeim svæðum í Sýrlandi þar sem hvað hörðust átök hafa geisað.

Framlög í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn frá Sýrlandi fara meðal annars í verkefni eins og þessi. Við höldum söfnuninni áfram. Hægt er að leggja sitt af mörkum með því að senda sms-ið unicef í númerið 1900 og styrkja þannig um 1500 krónur. Kærar þakkir fyrir stuðninginn.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S-LxIAACUA1NNL"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}