{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/hvad-gerir-unicef-fyrir-boern-sem-bua-a-goetunni","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/hvad-gerir-unicef-fyrir-boern-sem-bua-a-goetunni","uid":"hvad-gerir-unicef-fyrir-boern-sem-bua-a-goetunni","type":"post","prismicId":"X3S8NRIAACMA1MwJ","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2015-06-09T11:18:20+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTM3OWE5OTItYTk4My00MjdiLTg1YTAtNjUzYTQ1NzQwNDgz_un058027_med-res.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C148%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTM3OWE5OTItYTk4My00MjdiLTg1YTAtNjUzYTQ1NzQwNDgz_un058027_med-res.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTM3OWE5OTItYTk4My00MjdiLTg1YTAtNjUzYTQ1NzQwNDgz_un058027_med-res.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=447%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Börn búa á götunni vegna ólíkra ástæðna. Sum hafa flúið heimili sín vegna ofbeldis, sum eiga ekki fjölskyldu og önnur hafa einfaldlega týnt foreldrum sínum í mannmörgum borgum."},"page_title":{"text":"Hvað gerir UNICEF fyrir börn sem búa á götunni?"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"977971a7-16e4-5621-ba2b-539cf471d87f","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/MTM3OWE5OTItYTk4My00MjdiLTg1YTAtNjUzYTQ1NzQwNDgz_un058027_med-res.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C1536%2C1024&w=1536&h=1024","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"dcf4b669-dc0a-57c7-a0f8-17a70336aca6","primary":{"text":{"html":"

Börn búa á götunni vegna ólíkra ástæðna. Sum hafa flúið heimili sín vegna ofbeldis, sum eiga ekki fjölskyldu og önnur hafa einfaldlega týnt foreldrum sínum í mannmörgum borgum.

Að búa á götunni er ákaflega hættulegt, sérstaklega fyrir börn sem hafa litlar varnir. Börn sem búa á götunni verða fyrir margs konar ofbeldi; það er ráðist á þau, þau verða fyrir kynferðislegu ofbeldi, þeim er rænt og þau eru seld mansali. Öll tapa þau bernskunni og þurfa eins síns liðs að reyna að lifa af í hættulegum aðstæðum.

UNICEF leggur áherslu á heildræna nálgun og vinnur með yfirvöldum, einkageiranum, frjálsum félagasamtökum og öðrum aðilum að því að kortleggja, meta og bæta barnavernd á öllum sviðum samfélagsins.

Við berum kennsl á börn sem eru ein á ferð og sameinum þau fjölskyldum sínum eða finnum fyrir þau varanlegt heimili.\r
\t

Við útbúum barnvæn svæði þar sem börn geta leikið sér, lært og fengið sálrænan stuðning í öruggu umhverfi.\r
\t

Við fylgjumst með, greinum frá og bregðumst við alvarlegum mannréttindabrotum gegn börnum.\r
\t

Við vinnum hörðum höndum að því að fyrirbyggja að börn lendi á götunni og að koma í veg fyrir ofbeldi gegn þeim.

Heimsforeldrar taka þátt í því að skapa öryggi fyrir börn sem búa í hættulegum aðstæðum. Viltu vera með í baráttunni? Skráðu þig sem heimsforeldri núna!
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S8NRIAACMA1MwJ"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}