{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/minnst-12-born-drepin-i-arasum-i-sudan","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/minnst-12-born-drepin-i-arasum-i-sudan","uid":"minnst-12-born-drepin-i-arasum-i-sudan","type":"post","prismicId":"atiDkBIAACsAi_Ng","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-10-21T09:19:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/9UpDLWxjtT90pn8o_UN0933363.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C93%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/9UpDLWxjtT90pn8o_UN0933363.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/9UpDLWxjtT90pn8o_UN0933363.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=455%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Árásir hafa verið gerðar í Vestur-Kordofan og Khartoum undanfarna daga."},"page_title":{"text":"Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan"},"image_text":{"text":"Lítil stúlka í Súdan hallar sér að móður sinni sem fær heilbrigðisfræðslu í Port Sudan. (Myndin tengist efni fréttar ekki.) \nMynd: UNICEF/UN0933363/UNICEF "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"27af5091-1201-569e-9ba3-9ff46740fe01","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Að minnsta kosti 12 börn, allt niður í tveggja ára gömul, eru sögð hafa verið drepin í tveimur aðskildum árásum í ríkjunum Vestur-Kordofan og Khartoum í Súdan á undanförnum dögum.

Laugardaginn 17. október voru að minnsta kosti níu börn, fimm drengir og fjórar stúlkur á aldrinum fimm til tíu ára, drepin í árás á búðir fyrir fjölskyldur á flótta austan við Sanakit í Vestur-Kordofan.

Tveimur dögum síðar, mánudaginn 19. október, lenti vopnaður dróni á íbúðarsvæði í Khartoum. Þar er talið að þrjú börn, tvær stúlkur og einn drengur á aldrinum tveggja til sex ára, hafi verið drepin ásamt föður sínum.

„Í Vestur-Kordofan voru börn drepin í búðum sem fjölskyldur þeirra höfðu flúið til í leit að öryggi. Í Khartoum eru þrjú ung börn sögð hafa verið drepin ásamt föður sínum í eigin hverfi, í borg þar sem margar fjölskyldur hafa snúið aftur til að byggja líf sitt upp á ný,“ segir Angela Kearney, starfandi fulltrúi UNICEF í Súdan.

„Fjölskyldur í Súdan gera allt sem þær geta til að vernda börnin sín, hvort sem þær flýja heimili sín eða snúa aftur heim. Hvorugt tryggir þeim öryggi. Allir aðilar að þessum átökum verða að vernda börn, hvar sem þau eru.“

Börn víðs vegar um Súdan búa enn við lífshættulegt ofbeldi eftir meira en þriggja ára átök. Fyrir fjölskyldur sem hafa þegar þurft að þola flótta og gríðarlegar þjáningar veita jafnvel þau skjól sem þær leita til enga tryggingu fyrir öryggi.

UNICEF skorar á alla aðila að átökunum að virða skyldur sínar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarrétti og vernda almenna borgara og borgaralega innviði. Vernda verður börn hvar sem þau eru og á öllum tímum.
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er sem fyrr á vettvangi í Súdan við afar erfiðar og hættulegar aðstæður að reyna eftir bestu getu að veita börnum og fjölskyldum lífsnauðsynlega mannúðaraðstoð.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"atiDkBIAACsAi_Ng"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}