{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/naer-helmingur-barna-heims-byr-vid-minnst-thjar-loftslagshaettur","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/naer-helmingur-barna-heims-byr-vid-minnst-thjar-loftslagshaettur","uid":"naer-helmingur-barna-heims-byr-vid-minnst-thjar-loftslagshaettur","type":"post","prismicId":"aivhxBEAACoA-b2z","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-06-16T08:00:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aivlAqlQnVZVESLa_UNI880552.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C612%2C3936%2C1865&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aivlAqlQnVZVESLa_UNI880552.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=31%2C0%2C3745%2C2624&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aivlAqlQnVZVESLa_UNI880552.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=374%2C0%2C1641%2C2624&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Þurrkar, mikill hiti og hitabylgjur eru algengasta samsetning loftslagshætta sem ógna milljónum barna um allan heim, samkvæmt nýrri loftslagsskýrslu UNICEF."},"page_title":{"text":"Nær helmingur barna heims býr við minnst þrjár samverkandi loftslagshættur"},"image_text":{"text":"Þorpið Rubkona í Suður-Súdan. Nyekuola Riek stendur með tvíbura sína í fanginu eftir flóð við heimili þeirra. Mynd: UNICEF/UNI880552/ "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"f7c106c3-7dd7-5fc2-b91b-af7638c74416","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Nær helmingur allra barna veraldar, eða 1,1 milljarður barna, býr nú við að minnsta kosti þrjár samverkandi loftslagshættur sem ógna heilsu þeirra, menntun og lífsafkomu, samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF sem birt var í dag. Nánast öll börn heims standa frammi fyrir minnst einni loftslagshættu og varar skýrslan við að rúmlega 4 milljónir barna gætu orðið fyrir allt að sex samverkandi ógnum.
Skýrsla um loftslagsáhættu barna 2026 (e. Children’s Climate Risk Report 2026) byggir á nýjustu tiltæku gögnum til að kortleggja útsetningu barna fyrir átta algengustu loftslagshættunum: strandflóðum, þurrkum, miklum hita, skógareldum, hitabylgjum, áflóðum, sand- og rykstormum og hitabeltisstormum. Í fyrsta sinn sýnir skýrslan nákvæmlega hvar og hversu alvarlegar margar samverkandi loftslagshættur eru fyrir börn og þá grunnþjónustu sem þau reiða sig á, auk þess að benda á hvernig stjórnvöld geta brugðist við með markvissum aðgerðum.
„Hitabylgjur, skógareldar, þurrkar og flóð halda áfram að kollvarpa lífi barna,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Helmingur barna heims býr nú við minnst þrjár samverkandi loftslagshættur sem hafa áhrif á og móta daglegt líf þeirra.“
Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar eru þurrkar, mikill hiti og hitabylgjur útbreiddasta samsetning loftslagshætta. Yfir 296 milljónir barna búa á svæðum þar sem allar þessar þrjár aðstæður koma saman. Næstalgengasta samsetningin – þurrkar, mikill hiti og hitabeltisstormar – hefur áhrif á meira en 115 milljónir barna um allan heim.
Á Sahel-svæðinu í Afríku, sem er meðal þeirra svæða sem verða verst úti, standa meira en 4 milljónir barna frammi fyrir þrefaldri ógn hitabylgna, mikils hita og sand- og rykstorma. Í löndum Asíu, svo sem Bangladess, Mjanmar og Pakistan, verða börn fyrir fleiri loftslagshættum samtímis og af meiri styrkleika en annars staðar í heiminum.
Hátekjulönd eru heldur ekki undanþegin samverkandi loftslagsáföllum. Gögnin sýna til dæmis að á Ítalíu eru meira en 6 milljónir barna útsett fyrir langvarandi hitabylgjum og þurrkum. Landið sýnir þó einnig hvernig fjárfestingar í aðlögun að loftslagsbreytingum geta dregið úr þeirra áhættu sem börn standa frammi fyrir, jafnframt því að undirstrika þörfina fyrir frekari aðgerðir eftir því sem loftslagskrísan versnar.
Auk þessara átta algengustu loftslagshætta greinir skýrslan útsetningu barna fyrir loftmengun og malaríu, tveimur áhættuþáttum sem eru mjög viðkvæmir fyrir áhrifum loftslagsbreytinga. Gögn sýna að loftmengun hefur áhrif á nær öll börn heims, á meðan 1 milljarður barna er útsettur fyrir malaríu, sem bætir enn við hættuna fyrir þau börn sem þegar búa við margar loftslagstengdar ógnir.
Skýrslan kynnir einnig ramma til að greina mismunandi tegundir áhættu sem börn standa frammi fyrir. Þar er tekið mið af bæði útsetningu fyrir loftslagsáföllum og viðkvæmni þeirra, sem ræðst meðal annars af aðgengi að nauðsynlegri grunnþjónustu á borð við heilbrigðisþjónustu, hreint vatn, menntun og fleira. Hægt er að beita þessari nálgun á ýmsa vegu, allt frá því að skoða áhættu vegna einstakra eða margra loftslagshætta til þess að greina áhættu þvert á samfélagsgeira og þannig varpa ljósi á þær ógnir sem börn standa frammi fyrir í ólíkum aðstæðum.
Til dæmis sýnir greiningin að börn í landluktum og brothættum ríkjum, svo sem Mið-Afríkulýðveldinu og Tsjad, verða fyrir mörgum samverkandi loftslagshættum á sama tíma og þau skortir aðgang að grunnþjónustu. Það gerir þeim mun erfiðara fyrir að takast á við afleiðingarnar og ná sér á strik að nýju. Á sama tíma eru öll börn í 24 smáum eyþróunarríkjum, allt frá Haítí til Vanúatú, útsett fyrir hitabeltisstormum sem geta raskað heilu eyjasamfélögunum í einu og yfirbugað nauðsynlega samfélagsþjónustu.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyImage","id":"176df733-a791-5bdd-b7ff-4d3de0cb4eb2","primary":{"image_text":{"text":"Toamasina á austurströnd Madagaskar. Jacqueline og börn hennar standa við rústir heimilis síns eftir fellibyl í ársbyrjun. Mynd: UNICEF/UNI949431/Andriantsoarana"},"image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aivlAKlQnVZVESLZ_UNI949431.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=4%2C0%2C5756%2C3840&w=1616&h=1078","thumbnails":{"featuresize":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aivlAKlQnVZVESLZ_UNI949431.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C547%2C5760%2C2729&w=2322&h=1100"}}}},"slice_label":null,"slice_type":"image"},{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"88c590bb-a588-5424-8c5f-10f0060e319a","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Skýrslan varar við því að án tafarlausra aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda muni loftslagshættur verða tíðari og alvarlegri. Það muni auka álag á fjárhag og kerfi stjórnvalda og ógna velferð barna enn frekar.
Til að vernda réttindi barna gagnvart loftslagstengdum ógnum og laga samfélög að vaxandi loftslagsbreytingum hvetur UNICEF stjórnvöld, fyrirtæki og aðra viðeigandi aðila til að:
Draga úr losun og grípa til metnaðarfullra aðgerða til að uppfylla gildandi alþjóðlegar skuldbindingar, byggðar á bestu tiltæku vísindum, þar á meðal með hraðri útfösun jarðefnaeldsneytis og réttlátum umskiptum yfir í endurnýjanlega orkugjafa.
Vernda börn með aðlögun að loftslagsbreytingum, áhættuminnkun vegna náttúruhamfara og viðbrögðum við tjóni og skaða sem setja seiglu samfélagsþjónustu í forgang. Tryggja þarf að börn og þjónusta sem skiptir þau sköpum séu hluti af landsáætlunum um aðlögun, stjórnun hamfaraáhættu og viðbragðsáætlunum. Þetta felur meðal annars í sér að þróa öruggt og grænt námsumhverfi, loftslagsþolnar heilbrigðisstofnanir, tryggja fæðuöryggi barna, gera fjölhættuviðvörunarkerfi aðgengileg og gagnleg fyrir börn og þá þjónustu sem þau reiða sig á, auk þess að efla vatns- og hreinlætisþjónustu og félagsleg verndarkerfi sem geta brugðist við áföllum.
Efla þátttöku barna og ungmenna í loftslagsaðgerðum með fjárfestingu í loftslagsfræðslu, þekkingu og færni, og með því að styrkja getu stjórnvalda og sérfræðinga til að virða rétt barna til að láta í sér heyra, tjá skoðanir sínar og taka þátt í ákvörðunum sem hafa áhrif á líf þeirra.
„Þessi greining getur hjálpað stjórnvöldum og ákvörðunaraðilum að skipuleggja betur og fjárfesta markvissar í þrautseigri samfélagsþjónustu,“ sagði Russell. „Þegar við styrkjum heilbrigðis- og menntakerfi og bætum innviði með þarfir barna að leiðarljósi, verndum við þau gegn loftslagstengdum ógnum dagsins í dag og stuðlum að öruggari framtíð þeirra.“
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"aivhxBEAACoA-b2z"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}