{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/naerri-3-milljonir-barna-i-haettu-vegna-ebolufaraldurs","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/naerri-3-milljonir-barna-i-haettu-vegna-ebolufaraldurs","uid":"naerri-3-milljonir-barna-i-haettu-vegna-ebolufaraldurs","type":"post","prismicId":"ajpNJBIAADMAWd-i","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-06-23T09:08:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ajpPLVbRV8_QfwNR_UNI993889.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C339%2C3600%2C1705&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ajpPLVbRV8_QfwNR_UNI993889.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=3%2C0%2C3419%2C2395&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ajpPLVbRV8_QfwNR_UNI993889.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=809%2C0%2C1498%2C2395&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Staðfest tilfelli orðin 1.000 – Yfir 130 börn hafa misst foreldri eða foreldra vegna faraldursins í Ituri-héraði"},"page_title":{"text":"Nærri þrjár milljónir barna í hættu vegna ebólufaraldurs í austurhluta Kongó"},"image_text":{"text":"Mynd: UNICEF/UNI993889/Mwisha / AFP "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"5dff4627-26af-535d-9b44-62873996499a","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Nærri þrjár milljónir barna og ungmenna í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó standa frammi fyrir aukinni hættu vegna ebólufaraldurs sem nú hefur náð 1.000 staðfestum tilfellum á heimsvísu. UNICEF varar við því að áhrif faraldursins nái langt út fyrir sjálfan sjúkdóminn og ógni einnig aðgengi barna að nauðsynlegri heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Talið er að um 2,95 milljónir barna og ungmenna, 18 ára og yngri, búi á þeim 31 heilsugæslusvæðum sem orðið hafa fyrir áhrifum af faraldrinum. Þau eru því í aukinni hættu bæði vegna smits og vegna röskunar á grunnþjónustu sem þau reiða sig á.

„Starfsfólk okkar í Ituri hefur hitt börn sem hafa misst mæður sínar og í sumum tilvikum báða foreldra vegna ebólu,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Börn reyna að skilja þessa ógn á sama tíma og þau verða fyrir áhrifum af orðrómi og rangfærslum sem dreifast hratt á netinu.“

Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru börn og ungmenni um 15% staðfestra ebólutilfella í austurhluta landsins en rúmlega fjórðungur þeirra sem hafa látist af völdum sjúkdómsins eru undir 18 ára aldri. Þá eru börn með staðfesta ebólusýkingu nær tvöfalt líklegri til að látast en fullorðnir.

Faraldurinn hefur haft sérstaklega alvarleg áhrif í Ituri-héraði, þar sem heilsugæslusvæðin Mongbwalu, Rwampara og Bunia eru enn miðpunktur faraldursins. Þar fá nú 135 börn sem hafa misst foreldri eða foreldra vegna ebólu stuðning, meðal annars sálfélagslega aðstoð, aðgang að félagsþjónustu og úrræði til varanlegrar umönnunar.

UNICEF hefur einnig stutt opnun fyrstu ungbarnamiðstöðvarinnar á svæðinu. Þar fá ungabörn og ung börn örugga umönnun meðan foreldrar eða umönnunaraðilar þeirra eru í meðferð vegna ebólu. Tvær slíkar miðstöðvar til viðbótar eru í undirbúningi.

Börn voru þegar í viðkvæmri stöðu

Áður en ebólufaraldurinn braust út bjuggu mörg börn í Ituri við erfiðar aðstæður. Meira en helmingur barna undir fimm ára aldri þjáist af langvinnri vannæringu og bólusetningarhlutfall er lágt. Meira en eitt af hverjum fimm börnum hefur aldrei fengið fyrsta skammt af bóluefni gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta.

Þessar aðstæður auka hættuna enn frekar. Fyrstu einkenni ebólu geta líkst einkennum annarra sjúkdóma, svo sem malaríu, sem getur tafið greiningu og meðferð. Vannæring gerir börn jafnframt viðkvæmari fyrir alvarlegum veikindum.

Auk hættunnar á smiti standa börn frammi fyrir sorg, félagslegri einangrun, fordómum og andlegu álagi. Faraldrar af þessu tagi geta einnig aukið hættu á ofbeldi og misnotkun, sérstaklega gagnvart konum og stúlkum. Samhliða því geta börn misst aðgang að heilbrigðisþjónustu, næringarstuðningi, menntun, hreinu vatni, hreinlætisaðstöðu og barnaverndarúrræðum.

Í austurhluta Kongó bætast þessar áskoranir við afleiðingar margra ára átaka og fjöldaflótta sem hafa þegar gert börn sérstaklega berskjölduð fyrir ofbeldi og misneytingu.

UNICEF kallar eftir auknum stuðningi

Í bæði Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Úganda vinnur UNICEF með stjórnvöldum og samstarfsaðilum, þar á meðal Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og Africa CDC, að því að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Verkefnin fela meðal annars í sér smitrakningu, forvarnir gegn smiti, örugga greftrun og upplýsingagjöf til samfélaga.

Samhliða því leggur UNICEF áherslu á að viðhalda nauðsynlegri þjónustu fyrir börn, meðal annars á sviði heilbrigðismála, næringar, bólusetninga, menntunar, vatns- og hreinlætismála og barnaverndar.

Enn skortir um 20 milljónir dala af þeim ríflega 70 sem UNICEF áætlaði í kostnað vegna viðbragðsins til að tryggja nauðsynlega aðstoð og stöðva frekari útbreiðslu.

„Börn eru sérstaklega viðkvæm vegna þess að þau eru háð umönnun fullorðinna og geta ekki haldið fjarlægð frá veikum foreldrum eða systkinum á sama hátt og fullorðnir,“ segir Russell. „Til að vernda börn þurfum við öruggan og samfelldan aðgang að þeim samfélögum sem hafa orðið fyrir áhrifum, ásamt þeim fjármunum sem þarf til að ná til allra sem þurfa á aðstoð að halda.“
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"ajpNJBIAADMAWd-i"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}