{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/neydarhjalp-ur-nordri-tilkynning","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/neydarhjalp-ur-nordri-tilkynning","uid":"neydarhjalp-ur-nordri-tilkynning","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OCB","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-06-24T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Næstkomandi sunnudag, 26. júní kl. 11:00, munu hjálparsamtökin fimm, sem stóðu að söfnunarátakinu Neyðarhjálp úr norðri, efna til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu. Þá verður hálft ár liðið frá því að flóðbylgjurnar við Indlandshaf tóku líf yfir 200 þúsund manna og skildu milljónir eftir án heimilis, lifibrauðs og ástvina."},"page_title":{"text":"Neyðarhjálp úr norðri - Tilkynning"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"f4aa3d20-5ea3-5acc-a0a9-d34fe2d2b875","primary":{"text":{"html":"
Næstkomandi sunnudag, 26. júní kl. 11:00, munu hjálparsamtökin fimm, sem stóðu að söfnunarátakinu Neyðarhjálp úr norðri, efna til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu. Þá verður hálft ár liðið frá því að flóðbylgjurnar við Indlandshaf tóku líf yfir 200 þúsund manna og skildu milljónir eftir án heimilis, lifibrauðs og ástvina.

Munu framkvæmdastjórar samtakanna fimm kynna fjölmiðlum lokatölur söfnunarinnar og hvernig þau hafa varið fjármunum til neyðar- og uppbyggingarstarfa.

Myndband sem byggir á lagi sem Egill Ólafsson og Kristján Hreinsson sömdu fyrir söfnunarátakið í janúar, og kór Kársnesskóla flytur með Agli, verður frumsýnt á blaðamannafundinum. Sjónvarpsstöðvarnar þrjár; Ríkissjónvarpið, Stöð 2 og Skjár einn, sem tóku þátt í söfnuninni, munu sýna myndbandið á næstunni sem þakklætisvott aðstandenda söfnunarinnar til allra þeirra sem lögðu málefninu lið.

Með kærri kveðju,

Barnaheill-Save the Children á Íslandi, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, SOS-barnaþorpin og UNICEF-Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OCB"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}