{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/neydarhjalp-ur-nordri","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/neydarhjalp-ur-nordri","uid":"neydarhjalp-ur-nordri","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1N_3","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-01-06T01:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Samstarfshópur einstaklinga, fyrirtækja og fjölmiðla undirbýr nú landssöfnun til styrktar þeim sem þjást vegna hamfaraflóðanna í Asíu. Söfnunin hefst á mánudag og nær hámarki með sjónvarpsútsendingu laugardaginn 15. janúar. Verndari söfnunarinnar og talsmaður verður Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands."},"page_title":{"text":"Neyðarhjálp úr norðri"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"db2d83a7-3099-5dec-9c76-c2cc22d5b3c3","primary":{"text":{"html":"<p>Samstarfshópur einstaklinga, fyrirtækja og fjölmiðla undirbýr nú landssöfnun til styrktar þeim sem þjást vegna hamfaraflóðanna í Asíu. Söfnunin hefst á mánudag og nær hámarki með sjónvarpsútsendingu laugardaginn 15. janúar. Verndari söfnunarinnar og talsmaður verður Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands. </p><p>Söfnunin fer fram undir kjörorðunum Neyðarhjálp úr norðri. Landsmönnum mun gefast kostur á að hringja í söfnunarsíma alla næstu viku en á laugardag verður bein útsending með þátttöku allra sjónvarpsstöðva – Sjónvarpsins, Stöðvar tvö og Skjás eins. Þann sama dag verður einnig safnað í Smáralind og Kringlunni, en gert er ráð fyrir að yfir 100 þúsund manns heimsæki þessar tvær verslunarmiðstöðvar. </p><p>Allt fé sem safnast fer til neyðarhjálpar og uppbyggingar á hamfarasvæðunum í gegnum hjálparstarf Rauða kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Barnaheill, SOS barnaþorpa og UNICEF.</p>"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1N_3"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}