{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/neydarsoefnun-fyrir-haiti","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/neydarsoefnun-fyrir-haiti","uid":"neydarsoefnun-fyrir-haiti","type":"post","prismicId":"X3S-xxIAACQA1NpE","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2010-01-14T12:26:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Geigvænleg eyðilegging blasir við á Haítí í kjölfar jarðskjálftans síðastliðinn þriðjudag. UNICEF hefur opnað fyrir söfnunarnúmerin 908-1000, 908-3000 og 908-5000 til stuðnings við hjálparstarf í þágu barna á Haítí. Einnig er tekið á móti framlögum hér á síðunni."},"page_title":{"text":"Neyðarsöfnun fyrir Haítí"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"83d41148-4d82-5434-b9c3-748da1e3f209","primary":{"text":{"html":"

Þó erfitt sé að henda nákvæmar reiður á umfangi hamfaranna að svo stöddu er ljóst að ástandið á Haítí er grafalvarlegt og að þörf er á meiriháttar neyðaraðstoð samhliða leitar- og björgunarstörfum. Fyrstu upplýsingar gefa til kynna að mannfall sé mikið og eyðilegging útbreidd. Höfuðborgin Port-au-Prince varð verst úti í skjálftanum en fleiri þéttbýlisstaðir, eins bæirnir  Jacmel og Carrefour, eru líka illa leiknir. Hver klukkustund skiptir máli þegar kemur að því að bjarga fólki úr húsarústum þannig að starf leitar- og björgunarsveita er í forgangi fyrst um sinn. Sjúkrahús á svæðinu eru illa skemmd eða hrunin og anna engan veginn fjölda slasaðra.

Kallað eftir stuðningi frá Íslendingum
UNICEF á Íslandi kallar eftir stuðningi almennings til að mæta hinni brýnu þörf fórnarlamba hamfaranna. Börn eru afar berskjölduð fyrir öllum þeim hættum sem fylgja í kjölfar náttúruhamfara. Það er UNICEF því mikið metnaðarmál að bregðast hratt og örugglega við neyðinni sem nú ríkir á Haítí.

Hægt er að styðja við neyðaraðgerðir UNICEF með því að fara á íslenska heimasíðu samtakanna, unicef.is, eða hringja í eftirfarandi söfnunarnúmer:
908-1000 fyrir 1000 króna framlag
908-3000 fyrir 3000 króna framlag
908-5000 fyrir 5000 króna framlag

Hjálpargögn UNICEF berast til Haítí
Fyrsta sending af hjálpargögnum frá UNICEF kemur til landsins í dag. Sendingin inniheldur 10 þúsund neyðarskýli, 4.600 vatnsbrúsa, 5,5 milljónir vatnshreinsitafla, 556.000 saltlausnir til að koma í veg fyrir ofþornun af völdum niðurgangs, ásamt fleiri gögnum sem geta sinnt grunnþörfum allt að 10 þúsund fjölskyldna. Hjálpargögn fyrir 20 þúsund fjölskyldur til viðbótar verða send á næstu dögum.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S-xxIAACQA1NpE"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}