{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/nyjar-rannsoknir-syna-ad-i-fyrsta-skipti-eru-daudsfoell-barna-faerri-en-10-milljonir-a-ari","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/nyjar-rannsoknir-syna-ad-i-fyrsta-skipti-eru-daudsfoell-barna-faerri-en-10-milljonir-a-ari","uid":"nyjar-rannsoknir-syna-ad-i-fyrsta-skipti-eru-daudsfoell-barna-faerri-en-10-milljonir-a-ari","type":"post","prismicId":"X3S_AxIAACQA1NzU","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2007-09-13T02:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Nýjar alþjóðlegar tölur sýna að mikill árangur hefur náðst í baráttunni við barnadauða, þar á meðal hefur dánartíðni barna undir fimm ára lækkað verulega. Dauðsföll meðal barna telja nú 9,7-10 milljónir á ári og hafa aldrei verið færri, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn. Til samanburðar dóu 13 milljónir barna á árinu 1990."},"page_title":{"text":"Nýjar rannsóknir sýna að í fyrsta skipti eru dauðsföll barna færri en 10 milljónir á ári"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"f1df8e8a-166f-5865-a619-c2e72ae02d56","primary":{"text":{"html":"
Nýjar alþjóðlegar tölur sýna að mikill árangur hefur náðst í baráttunni við barnadauða, þar á meðal hefur dánartíðni barna undir fimm ára lækkað verulega. Dauðsföll meðal barna telja nú 9,7-10 milljónir á ári og hafa aldrei verið færri, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn. Til samanburðar dóu 13 milljónir barna á árinu 1990.

„Þetta er söguleg stund,“ sagði framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman. „Fleiri börn lifa af í dag en nokkru sinni áður. Við verðum að byggja á þessum árangri til að hægt sé að ná Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun.“

Eitt af Þúsaldarmarkmiðunum er að lækka tíðni ungbarnadauða um tvo þriðju á árunum 1990 og 2015. Það myndi bjarga lífum 5,4 milljónum barna fyrir árið 2015.

Veneman benti þó á að ekki væri rúm fyrir andvaraleysi. „Það er óviðunandi að 9,7 milljónir barna týna lífi árlega. Hægt er að koma í veg fyrir flest þessarra dauðsfalla og, eins og dæmin sanna, eru lausnir okkar að skila árangri. Við vitum að hægt er að bjarga lífum barna með samþættum aðgerðum á sviði heilsugæslu í nánu samstarfi við samfélögin sjálf.“

Rannsóknin
Þessar nýju tölur, sem verið er að vísa í, koma frá mismunandi heimildum frá löndunum sjálfum. Þar á meðal eru tvær víðtækar rannsóknir meðal heimila; Multiple Indicator Cluster Survey (MICS) og Demographic Household Survey (DHS). Nýjasta rannsóknin (MICS) var gerð í yfir 50 löndum á árunum 2005-6. Saman eru þessar tvær rannsóknir stærsta upplýsingaveitan í tengslum við þróun Þúsaldarmarkmiðanna og grundvöllurinn að upplýsingum um lífsafkomu barna.

Útkoma rannsóknanna er í takt við þann árangur sem náðst hefur í fækkun dauðsfalla vegna mislinga en fyrr á árinu var tilkynnt um 60% fækkun á dauðsföllum vegna mislinga síðan árið 1999. Ef einungis er litið til sunnanverðrar Afríku nemur fækkunin 75%.

Þróun á dánartíðni barna eftir heimshlutum
Hröð lækkun er á dauðsföllum barna undir fimm ára í Rómönsku Ameríku og Karabíska hafinu, Mið og Austur-Evrópu, fyrrum sambandslýðveldum Sovétríkjanna, austurhluta Asíu og Kyrrahafinu.

Fjöldi landa hafa náð sérstaklega góðum árangri síðan síðasta rannsókn var gerð á árunum 1999 til 2000. Marokkó, Víetnam og Dóminíska lýðveldið hafa t.a.m. dregið úr dauðsföllum barna undir fimm ára um meira en einn þriðju. Á Madagaskar hefur dauðsföllum fækkað um 41% og á Saó Tóme og Prinsípe hefur þeim fækkað um 48%.

Af þeim 9,7 milljónum barna sem láta lífið á hverju ári eru 3,1 milljón frá Suður-Asíu og 4,8 milljón frá sunnanverðri Afríku. Í þróunarlöndunum er dánartíðni barna sérstaklega há meðal barna sem búa úti á landsbyggðinni og meðal hinna fátækustu.

Í iðnríkjum eru að meðaltali sex dauðsföll á hverjar 1000 lifandi fæðingar.

Rómanska Ameríka og eyjar Karabíska hafsins virðast vera á réttri leið með að ná Þúsaldarmarkmiðunum þar sem aðeins 27 dauðsföll eru á hverjar 1000 lifandi fæðingar, miðað við 55 þúsund árið 1990.

Mikilvægur árangur hefur náðst í sunnanverðri Afríku. Sem dæmi hefur dánartíðni barna undir fimm ára lækkað um 29% í Malaví milli áranna 2000 og 2004. Í Eþíópíu, Mósambík, Namibíu, Níger, Rwanda og Tansaníu hefur tíðnin lækkað um meira en 20%.

Hæstu dánartíðnina má þó enn finna í Vestur- og Mið-Afríku. Í suðurhluta Afríku hefur útbreiðsla HIV/alnæmis orðið til þess að draga úr þeim árangri sem náðst hefur á fækkun dauðsfalla vegna annarra sjúkdóma.

Leiðir til árangurs
Árangrinum má þakka samþættum aðgerðum á sviði heilsugæslu, s.s. aukinni brjóstagjöf, bólusetningu gegn mislingum, dreifingu A-vítamíns og útbreiðslu malaríu-flugnaneta. Einnig hefur verið mikill áhugi fyrir hendi meðal ríkisstjórna, einkaaðila, alþjóðasjóða og almennings um að taka á þessum málum og veita þeim stuðning.

Bakgrunnur
Nýjar tölur á sviði Þúsaldarmarkmiðanna vera kynntar reglulega það sem af er þessu ári. Tölur er varða dánartíðni barna yngri en fimm ára á alþjóðavísu eru birtar af hópi sem samanstendur af UNICEF, Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, Alþjóðabankanum, Mannfjöldadeild S.þ., Harvard háskóla og fleirum.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_AxIAACQA1NzU"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}