{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/oennur-tegund-hamfara-gaeti-fylgt","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/oennur-tegund-hamfara-gaeti-fylgt","uid":"oennur-tegund-hamfara-gaeti-fylgt","type":"post","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OB7","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2005-01-03T01:00:00+0000","category":null,"feature_image":{"url":null,"thumbnails":{"cardpic":null,"smaller":null}},"excerpt":{"text":"Hætta er á að önnur tegund hamfara bíði þeirra sem björguðust frá flóðunum í Asíu. Um þessar mundir ógna sjúkdómar, hungursneyð og heimilisleysi lífi og bata milljóna manna. UNICEF og aðrar hjálparstofnanir vinna nú hörðum höndum að því að bjarga mannslífum og veita fórnarlömbum flóðanna alla þá aðstoð sem hægt er við erfiðar aðstæður."},"page_title":{"text":"Önnur tegund hamfara gæti fylgt"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"aa0accf2-83b8-510c-b4cc-0abcbbee927b","primary":{"text":{"html":"
Hætta er á að önnur tegund hamfara bíði þeirra sem björguðust frá flóðunum í Asíu. Um þessar mundir ógna sjúkdómar, hungursneyð og heimilisleysi lífi og bata milljóna manna. UNICEF og aðrar hjálparstofnanir vinna nú hörðum höndum að því að bjarga mannslífum og veita fórnarlömbum flóðanna alla þá aðstoð sem hægt er við erfiðar aðstæður.

UNICEF eru stærstu barnahjálparsamtök í heimi og hafa nær 60 ára reynslu af neyðar- og þróunaraðstoð. UNICEF leggur áherslu á að tryggja það að þörfum barna sé mætt, hvort sem það er að veita þeim lífsnauðsynleg lyf, bólusetningar, hreint vatn eða annað, eða að veita þeim áfallahjálp og koma skólastarfi af stað á ný.

Til að ná markmiðum sínum vinnur UNICEF náið með öðrum alþjóðlegum hjálparstofnunum, stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og samfélögunum sjálfum til að koma hjálpargögnum til fólks sem mest þurfa á þeim að halda.

Starf UNICEF felst aðallega í þremur eftirfarandi þáttum, þ.e. vatn og hreinlæti, heilsa og næring, og vernd og fræðsla.

1. Vatn og hreinlæti
Helsta forgangsverkefni í hamförum sem þessum er að veita fólki hreint drykkjarvatn og að setja upp hreinlætisaðstöðu til að koma í veg fyrir að sjúkdómar á borð við kóleru og niðurgang breiðist út. UNICEF sér um að veita:
• Saltupplausn til að koma í veg fyrir ofþorfnun vegna niðurgangs;
• Hreinlætiskassa – einn slíkur kassi veitir 10 fjölskyldum vatnshreinsitöflur, sápur, bala og fleira;
• Vatnsgeymslutanka sem geyma vatnsforða fyrir samfélög og fjölskyldur;
• Hreint vatn í tönkum til þeirra sem skortir vatn;
• Vatnsdælur fyrir brunna;
• Grundvallarhreinlætisaðstöðu;
• Fræðslu um hreinlæti á máli innfæddra
• Þjálfað starfsfólk til að hjálpa ríkisstjórnum að meta þarfir fólks og bregðast skjótt við þeim.

2. Heilsa og næring
Fátæk börn, í þeim löndum sem urðu fyrir flóðunum, eiga þegar í mikilli hættu á vannæringu og á að fá smitsjúkdóma. Þar sem milljónir þeirra eru nú heimilislausar eftir hamfarirnar, ógna sjúkdómar, hungur og öndunarfærasýkingar lífi þeirra. UNICEF og samstarfsaðilar veita:
• Neyðargögn eins og teppi og tjöld;
• Bóluefni gegn mislingum og öðrum sjúkdómum, sérstaklega til heimilislausra barna;
• Nálar, sótthreinsiefni og kælibox til að geyma bóluefni;
• Moskítónet og lyf við malaríu þar sem við á;
• Sýklalyf til að koma í veg fyrir sýkingar;
• A-vítamín skammta til að bæta ónæmiskerfið;
• Prótínkex og aðrar næringaríkar vörur;
• Aðstoð við mæður sem hafa börn sín á brjósti;
• Næringu og bætiefni fyrir minnstu börnin;
• Þjálfun til starfsfólks á sviði heilsugæslu og efla átak til að auka fræðslu um heilsufar.

3. Vernd og fræðsla Hamfarirnar síðustu daga hafa eyðilagt líf barna. Mörg þeirra hafa misst fjölskyldumeðlim og mörg eru munaðarlaus. Skólar eru eyðilagðir og margir kennarar látnir. Án þessa verndandi kerfis sem börn eru svo háð verða lífslíkur þeirra hverfandi. Minni líkur eru á því að þau geti nokkurn tímann átt eitthvað sem líkist venjulegu lífi á ný. UNICEF og samstarfsaðilar eru nú að:
• Bera kennsl á, skrá og veita heilsugæslu til þeirra barna sem hafa orðið viðskila við fjölskyldu sína;
• Búa til kerfi til að sameina börn við fjölskyldur sínar eða nánustu ættingja;
• Veita stuðning í formi skjóls, verndar og umhyggju til þeirra barna sem hafa orðið viðskila við fjölskyldu sína eða eru orðin munaðarlaus;
• Veita börnum sálræna aðstoð, þar á meðal að veita þeim leikföng og skipuleggja starfsemi fyrir þau;
• Koma upp tímabundnum skólastofum með þeim grundvallargögnum sem til þarf;
• Veita skólagögn, þar á meðal bækur, blýanta og krít.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S_ThIAACMA1OB7"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}