{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/olfus-aetlar-ad-verda-barnvaent-sveitarfelag","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/olfus-aetlar-ad-verda-barnvaent-sveitarfelag","uid":"olfus-aetlar-ad-verda-barnvaent-sveitarfelag","type":"post","prismicId":"X3S35hIAACQA1L6G","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[],"post_type":null,"breadcrumbs":[],"date":"2020-06-25T14:31:56+0000","category":null,"feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NWM1MDJmN2QtMzg0Yi00ZmQ2LTljZDQtNjA4YjFlNjk0NGJi_undirritun_i_olfus.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C449%2C4656%2C2206&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NWM1MDJmN2QtMzg0Yi00ZmQ2LTljZDQtNjA4YjFlNjk0NGJi_undirritun_i_olfus.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=113%2C0%2C4430%2C3104&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NWM1MDJmN2QtMzg0Yi00ZmQ2LTljZDQtNjA4YjFlNjk0NGJi_undirritun_i_olfus.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=1354%2C0%2C1941%2C3104&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Grétar Ingi Erlendsson, formaður bæjarráðs Ölfuss, undirrituðu í dag samstarfssamning um verkefnið Barnvæn sveitarfélög. Með undirskriftinni bætist Ölfus í myndarlegan hóp sveitarfélaga sem hefja nú vinnu við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu sína með stuðningi félagsmálaráðuneytisins og UNICEF á Íslandi."},"page_title":{"text":"Ölfus ætlar að verða barnvænt sveitarfélag"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsImage","id":"2057dee9-5faa-59d7-abf9-f02327928e69","primary":{"caption":"","credit":"","newsimage":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/NWM1MDJmN2QtMzg0Yi00ZmQ2LTljZDQtNjA4YjFlNjk0NGJi_undirritun_i_olfus.jpg?auto=compress%2Cformat&rect=0%2C0%2C4656%2C3104&w=4656&h=3104","thumbnails":{"featuresize":null}}}},{"__typename":"PrismicPostBodyUniImpNewsContent","id":"7fe2fdc4-8b56-5fcb-aed4-f5f09b6b8102","primary":{"text":{"html":"
24. júní 2020  Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, og Grétar Ingi Erlendsson, formaður bæjarráðs Ölfuss, undirrituðu í dag samstarfssamning um verkefnið Barnvæn sveitarfélög. Með undirskriftinni bætist Ölfus í myndarlegan hóp sveitarfélaga sem hefja nú vinnu við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu sína með stuðningi félagsmálaráðuneytisins og UNICEF á Íslandi.

Þátttaka Ölfuss í Barnvænum sveitarfélögum er liður í að byggja upp breiðfylkingu sveitarfélaga á Íslandi sem láta sér mannréttindi barna varða, með Barnasáttmálann að leiðarljósi og auknu samstarfi milli ríkis og sveitarfélaga.

Öll sveitarfélög verði Barnvæn sveitarfélög

Akureyrarbær hóf vinnu við að verða Barnvænt sveitarfélag árið 2016, og varð í lok maí fyrst sveitarfélaga á Íslandi til að hljóta þá viðurkenningu.  Áhugi á þátttöku í verkefninu hefur verið mikill og biðlistar myndast þar sem UNICEF hefur hingað til ekki getað annað eftirspurn áhugasamra sveitarfélaga. Þann 18. nóvember 2019, í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna gengu félags- og barnamálaráðherra og UNICEF á Íslandi til samstarfs við framkvæmd verkefnisins undir formerkjum Barnvæns Íslands. Markmið samstarfsins er að tryggja aðgengi allra sveitarfélaga að stuðningi við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á næstu tíu árum. Á næstu tveimur árum er stefnt að því að vel á annan tug sveitarfélaga bætist í hópinn. Félagsmálaráðuneytið og UNICEF á Íslandi sendu öllum sveitarfélögum landsins nýverið formlegt erindi með boði um þátttöku og hafa viðtökur verið vonum framar.

Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna

Hugmyndafræði Barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities, en það hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga um allan heim. Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og UNICEF á Íslandi styður sveitarfélögin í innleiðingu sinni á Barnasáttmálanum.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra: „Fjölmörg sveitarfélög  hafa nú hafið vinnu við að verða Barnvænt sveitarfélag og það er alltaf ánægjulegt þegar nýtt sveitarfélag bætist í hópinn. Ég hef lagt áherslu á málefni barna í minni ráðherratíð og því er það mikið gleðiefni að sjá hversu mörg sveitarfélög eru að vinna að því að tryggja réttindi barna enn frekar hér á landi.“

Grétar Ingi Erlendsson, formaður bæjarráðs Ölfuss: „Við hlökkum til þessarar vinnu með UNICEF á Íslandi og ráðuneytinu. Við horfum björtum augum til framtíðar og kýlum á þetta,“ sagði Grétar Ingi við undirritunina.

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi: „Það er djarft skref af Ölfusi að stíga að verða barnvænt sveitarfélag. Þrátt fyrir mjúkt yfirheiti þá er þetta krefjandi verkefni sem felur m.a. í sér að hleypa ungmennum sveitarfélagsins að lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku – þeim og samfélaginu öllu til hagsbóta. Við hlökkum til að styðja við Ölfus á þessari vegferð og sjá þau innleiða verkefnið á sinn einstaka og öfluga hátt.“

Nánari upplýsingar um Barnvæn sveitarfélög eru aðgengilegar á vefsíðunni www.barnvaensveitarfelog.is og geta áhugasamir einstaklingar, kjörnir fulltrúar og starfsfólk sveitarfélaga nálgast þar allar nauðsynlegar upplýsingar um innleiðingu Barnasáttmálans.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"X3S35hIAACQA1L6G"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}